Fíkn

Fréttamynd

Kerfið sem á að vernda börnin en bregst þeim

Það er eitthvað alvarlegt að þegar foreldrar þurfa að óttast kerfið sem á að hjálpa börnunum þeirra. Félagslega kerfið og heilbrigðiskerfið eru að bregðast börnunum okkar. Það er eitthvað mikið að í samfélagi sem veitir ekki eigin börnum lífsnauðsynlega heilbrigðisþjónustu.

Skoðun
Fréttamynd

Fögnuðu fjöru­tíu árum Krýsu­víkur­samtakanna

Margt var um manninn í fjörutíu ára afmælisveislu Krýsuvíkursamtakanna á sumardaginn fyrsta í Hafnarborg í Hafnarfirði sem lauk svo með styrktartónleikum í Bæjarbíó. Meðal gesta var listamaðurinn Tolli sem færði samtökunum listaverk í tilefni afmælisins.

Lífið
Fréttamynd

Segja borgar­yfir­völd hafa brugðist í­búum al­gjör­lega

Íbúar í hverfi 108 lýstu á íbúafundi í gær yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Reykjavíkurborgar um að heimila staðsetningu Kaffistofu Samhjálpar á Grensásvegi. Um 200 íbúar samþykktu ályktun gegn flutningi kaffistofunnar og vilja að henni verði fundin hentugri staðsetning. 

Innlent
Fréttamynd

Á­fengið yndis­legt ef þú kannt að fara með það

Sigmar Vilhjálmsson segist lengst af hafa kunnað að fara með áfengi en síðan misst tökin. Hann hafi þá byrjað að nota það til að deyfa sig og flýja erfið mál. Hann sé fyrstur í vinahópi sínum til að fara í meðferð.

Lífið
Fréttamynd

Í­búar funda aftur um stöðu Kaffi­stofunnar

Hópur íbúa í hverfi 108 hefur boðað til opins íbúafundur í kvöld til að ræða stöðu Kaffistofu Samhjálpar. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hafnaði nýlega kröfur þeirra um að stöðva framkvæmdir á meðan nefndin fjallar um stjórnsýslukæru íbúanna. Til stendur að opna Kaffistofuna í húsnæði við Grensásveg 46. 

Innlent
Fréttamynd

„Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“

Lára Kristín Pedersen segir matarfíkn hafa læðst aftan að henni á unglingsárum og hún fljótlega farið að hegða sér skaðlega. Hún gaf út bók um matarfíknina fyrir nokkrum árum sem er búið að þýða á ensku. Lára lagði skóna á hilluna í fyrra eftir farsælan knattspyrnuferil, segir auðvelt að missa einlægnina í boltanum og starfar í dag með heimilislausum.

Lífið
Fréttamynd

„Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“

„Þetta byrjaði að þróast hægt og rólega, ég veit ekki hvort ég drekk þetta í mig eða hvort þetta var alltaf þarna og tók sinn tíma,“ segir Rúnar Freyr Gíslason, frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, í viðtali í hlaðvarpinu Jón Ólafs á spjallinu. 

Lífið
Fréttamynd

Nánast hreint kókaín í um­ferð en ekkert fentanyl

Adam Erik Bauer, náttúrufræðingur og doktorsnemi, hefur í tvö ár rannsakað magn ópíóíða, ketamíns og annarra vímuefna í fráveitu með það að markmiði að tryggja rétt viðbragð og auka forvarnir. Nýjustu niðurstöður sýna að kókaín í umferð sé nánast hreint og að töluvert magn sé af oxycontin í umferð. Hann segir þó jákvætt að ekkert fentanýl finnist í fráveitu eða annars staðar.

Innlent
Fréttamynd

Inga sendir boltann á sveitar­fé­lögin

„Eins vil ég ítreka að það er gildandi samningur og ég kann því afar illa við fyrirsögn um að ég sé of upptekin að funda. Það er bara ótrúlega skrítið. Sér í lagi þegar við erum með gildandi samning.“

Innlent
Fréttamynd

Britney farin í með­ferð

Britney Spears hefur ákveðið að fara í meðferð eftir að hafa verið handtekin vegna gruns um að keyra undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna í síðasta mánuði.

Lífið
Fréttamynd

Krefjast þess að fram­kvæmdir við Kaffi­stofuna verði stöðvaðar

Fjörutíu og fjórir íbúar og fasteignaeigendur í hverfi 108 hafa lagt fram stjórnsýslukæru til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna ákvörðunar Reykjavíkurborgar um að veita byggingarleyfi fyrir starfsemi kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Þau krefjast þess að framkvæmdir verði stöðvaðar og vilja að samþykki borgarinnar verði fellt úr gildi. 

Innlent
Fréttamynd

Gestum neyðarskýla fækkar veru­lega milli ára

Gestum neyðarskýla Reykjavíkurborgar hefur fækkað verulega á milli ára. Gestir gista jafnframt færri nætur að meðaltali í skýlunum. Deildarstjóri segir ánægjulegt að sjá slíka fækkun og að hana megi rekja til nýrra úrræða og betri þjónustu við heimilislausa í Reykjavík. Reykjavíkurborg stefni að frekari uppbyggingu húsnæðis á þessu ári.

Innlent
Fréttamynd

Í með­ferð eftir fjár­drátt hjá Við­reisn

Fyrrverandi formaður stjórnar Viðreisnar í Reykjavík segist farinn í meðferð á Vogi til þess að takast á við fíknivanda. Hann var kærður fyrir að draga sér fé úr sjóðum flokksins fyrr í þessum mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Í bataferli frá fíkninni

Breska ungstirnið Lola Young skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún gaf út smellinn Messy árið 2024 en lagið náði gríðarlegum vinsældum um allan heim. Lola seldi upp á tónleika víða og kom fram á ýmsum tónlistarhátíðum en þurfti að draga sig í hlé eftir að hafa misst meðvitund á sviði.

Lífið
Fréttamynd

Leita að fjöl­skyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð

Barnavernd Reykjavíkur leitar að fjölskyldu eða einstaklingi til að reka neyðarheimili í Reykjavík fyrir allt að fjögur börn í allt að þrjá mánuði. Laun fyrir slíka vistun eru um 1,5 milljónir á mánuði óháð því hvort barn dvelur á heimilinu. Aukalega er svo greitt fyrir hvert barn sem dvelur á heimilinu miðað við lengd sem það dvelur.

Innlent
Fréttamynd

Af­greiðslu frestað um viku

Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar hefur frestað um viku að taka fyrir byggingaleyfisumsókn á Grensásvegi 46 vegna kaffistofu sem Samhjálp hyggst reka í húsinu. Til stóð að taka málið fyrir á fundi ráðsins í dag en af því verður ekki. 

Innlent
Fréttamynd

Lentu í harka­legum á­rekstri augna­blikum eftir nauðgun

Karlmaður hefur verið dæmdur til tæplega þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun sem hann tók upp myndskeið af og braut þannig gegn kynferðislegri friðhelgi. Brotaþoli var kærasta mannsins þegar brotin áttu sér stað. Meðal lykilsönnunargagna var mæling á ástandi fólksins sem lenti í harkalegum árekstri skömmu eftir að nauðgunin átti sér stað.

Innlent
Fréttamynd

Spila­fíkn er lýðheilsumál

Víða er marsmánuður tileinkaður vitundarvakningu um spilavanda. Það er full ástæða til að staldra líka við hér á landi. Spilafíkn er alvarlegur heilbrigðis- og geðrænn vandi sem getur haft gríðarleg áhrif á fjárhag, fjölskyldulíf, andlega líðan og í versta falli verið bein ógn við líf fólks.

Skoðun
Fréttamynd

Einn drengur í með­ferð á nýju með­ferðar­heimili

Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í gær. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu.

Innlent
Fréttamynd

„Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“

Átján ára gamall hefur hann farið fimmtán sinnum í innlögn á BUGL, legið yfir hundrað nætur á barna- og unglingageðdeild, verið í neyðarvistun á Stuðlum, búið í sérhæfðu úrræði, fallið sjálfkrafa út úr barnaverndarkerfinu og tvisvar sinnum legið milli lífs og dauða á gjörgæslu. Hann segir íslenska kerfið hafa brugðist ungmennum með fjölþættan vanda,  og vill róttækar breytingar.

Innlent