Í forgangi sé að ræða við starfsfólk SÁÁ og tryggja vinnufrið Lovísa Arnardóttir skrifar 15. september 2026 10:01 Anna Hildur Guðmundsdóttir var kjörin formaður SÁÁ árið 2022. Mynd/Hulda Margrét Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu.
Stjórn SÁÁ kom saman í gær vegna vantraustsyfirlýsingar starfsmanna og alvarlegrar stöðu innan samtakanna. Til fundarins mættu aðalstjórnarmenn, framkvæmdastjórn, fráfarandi forstjóri, fráfarandi yfirmaður lækninga og þrír starfsmenn SÁÁ og tóku til máls. Greint var frá því um helgina að sextíu og þrír starfsmenn SÁÁ skrifuðu undir yfirlýsingu og lýstu yfir vantrausti á formann samtakanna, Önnu Hildi Guðmundsdóttur, og framkvæmdastjórn samtakanna. Þá var einnig greint frá því í síðustu viku að Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga, og Þóra Björk Ingólfsdóttir, fagstjóri á Vík, hefðu báðar tilkynnt að þær myndu láta af störfum hjá samtökunum og að gerður hefði verið starfslokasamningur við Ragnheiði Huldu Friðriksdóttur, forstjóra SÁÁ. María Heimisdóttir landlæknir sagði embættið líta stöðuna innan samtakanna mjög alvarlega. Sjá einnig: „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Í tilkynningu frá aðalstjórn í dag kemur jafnframt fram að stjórn hafi í gær komið saman vegna þessarar stöðu sem upp er komin innan samtakanna og vantraustsyfirlýsingar starfsmanna á framkvæmdastjórn SÁÁ. Á fundinum hafi stjórnin aflað upplýsinga frá ólíkum aðilum og gefið starfsfólki kost á að ræða sín sjónarmið. Að því loknu hafi verið samþykkt ályktun. Í tilkynningu segir að aðalstjórn leggi ríka áherslu á stöðugleika, fagleg vinnubrögð, öryggi og áframhaldandi öfluga þjónustu við skjólstæðinga SÁÁ og að þegar hafi verið kallaðir til utanaðkomandi aðilar og vinna hafin sem miði að því að skapa vinnufrið, öryggi og traust í starfseminni. „Sú vinna verður unnin í samráði við þá sem málið varðar og með hagsmuni starfsfólks, skjólstæðinga og starfsemi SÁÁ að leiðarljósi. SÁÁ telur mikilvægt að sjónarmið starfsfólks fái að koma fram og að tekið sé á ólíkum skoðunum með málefnalegum og faglegum hætti. Forgangsverkefni næstu daga er því að eiga samtal við starfsfólk samtakanna, byggja upp traust og tryggja þann vinnufrið sem nauðsynlegur er fyrir öfluga og trausta þjónustu,“ segir í tilkynningunni og að þess vegna ætli samtökin ekki að veita fjölmiðlum viðtal að svo stöddu. Ályktun í heild sinni: „Aðalstjórn SÁÁ lýsir yfir stuðningi við framkvæmdastjórn félagsins í þeirri vinnu sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta SÁÁ haldi áfram í styrkum farvegi. Þá leggur aðalstjórn áherslu á mikilvægi þess að styðja við stöðugleika, fagleg vinnubrögð og áframhaldandi öfluga þjónustu við skjólstæðinga samtakanna. Aðalstjórn leggur fyrir framkvæmdastjórn að fela utanaðkomandi aðila að skapa vinnufrið, öryggi og traust í starfseminni. Aðalstjórn þakkar starfsfólki sem hefur látið sig málefni félagsins varða þar sem mikilvægt er að sjónarmið þeirra komi fram og að tekið sé á ólíkum skoðunum á málefnalegan hátt. Aðalstjórn óskar eftir því að framkvæmdastjórn upplýsi hana reglulega um framvindu mála og mun fylgjast með þeirri vinnu sem fram undan er, með það að markmiði að viðhalda öflugu starfi SÁÁ, faglegri og traustri þjónustu og góðum starfsanda.“
SÁÁ Heilbrigðismál Geðheilbrigði Vinnustaðamenning Fíkn Tengdar fréttir Ráðherra boðar aukið eftirlit Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins. 10. september 2026 11:46 Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, segir átök innan SÁÁ vera enn eina birtingarmynd langvarandi veikleika í skipulagi þeirrar þjónustu sem samtökin reka. Ríkið eigi að tryggja að skýr mörk séu á milli framkvæmdastjórnar SÁÁ og faglegrar yfirstjórnar sjúkrahússins Vogs og annarrar þjónustu. 9. september 2026 16:44 Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Í hádegisdfréttum verður rætt við formann SÁÁ sem bregst við gagnrýni sem stjórn samtakanna hefur fengið síðustu daga í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við forstjóra SÁÁ. 5. september 2026 11:44 Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda. 4. september 2026 21:54 SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun. 1. september 2026 12:34 Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira
Ráðherra boðar aukið eftirlit Taka þarf á agaleysi í útgjöldum ríkisstofnana segir fjármálaráðherra sem boðar verulega aukið eftirlit. Þingstörf hófust á ný í morgun þegar ráðherra mælti fyrir hallalausum fjárlögum. Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu gjaldahækkanir og óttast að sveitarfélög muni fylgja fordæmi ríkisins. 10. september 2026 11:46
Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, segir átök innan SÁÁ vera enn eina birtingarmynd langvarandi veikleika í skipulagi þeirrar þjónustu sem samtökin reka. Ríkið eigi að tryggja að skýr mörk séu á milli framkvæmdastjórnar SÁÁ og faglegrar yfirstjórnar sjúkrahússins Vogs og annarrar þjónustu. 9. september 2026 16:44
Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Í hádegisdfréttum verður rætt við formann SÁÁ sem bregst við gagnrýni sem stjórn samtakanna hefur fengið síðustu daga í kjölfar þess að starfslokasamningur var gerður við forstjóra SÁÁ. 5. september 2026 11:44
Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda. 4. september 2026 21:54
SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ ætlar að hætta störfum en bæði forstjóri samtakanna og fagstjóri hættu í síðasta mánuði. Lækningastjórinn tilkynnti starfsfólki um þetta í morgun. 1. september 2026 12:34