
Fjármálafyrirtæki

Umsóknarferli lána sjálfvirkt í Íslandsbanka
Viðskiptavinir munu geta skráð sig í viðskipti hjá bankanum í appi eða á vefnum og stofnað bankareikninga og sótt um kreditkort á örfáum mínútum.

Millifærði fyrir mistök í banka
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært íslenskan karlmann á fimmtugsaldri og íslenska konu á fertugsaldri, bæði búsett í Svíþjóð, fyrir að kasta eign sinni á fjármuni sem millifærðir voru af starfsmanni Landsbankans fyrir mistök.

Bankar keppi á jafnræðisgrunni
Arion banki telur brýnt að samkeppnisstaða íslenskra banka gagnvart erlendum keppinautum verði færð á jafnræðisgrunn áður en hafist verður handa við að selja eignarhluti ríkisins í bönkunum.

Bjarni segir eðlilegt að setja fram áætlun vegna Íslandsbanka fyrst
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, flutti munnlega skýrslu um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið á Alþingi í dag. Hann sagði að það væri ekki heilbrigt að ríkið ætti tvo þriðju hluta bankakerfisins og sagði skynsamlegt fyrir ríkið að setja fram trúverðuga áætlun um losun eignarhalds á Íslandsbanka áður en teknar yrðu ákvarðanir varðandi Landsbankann.

Höskuldur furðar sig á umræðu um áhugaleysi útlendinga
Bankastjóri Arion banka segir umræðu um áhugaleysi útlendinga á íslensku fjármálakerfi mjög furðurlega þar sem erlendir fjárfestar hafi keypt meira en 70 prósent af þeim bréfum sem voru seld í vel heppnaðri skráningu Arion banka á hlutabréfamarkað í fyrra. Um var að ræða tvíhliða skráningu samtímis kauphöllunum í Reykjavík og Stokkhólmi.

Leggja til að ríkið selji eignarhluti sína í Landsbankanum í áföngum
Gengið er út frá því að ríkið muni eiga 34 prósenta hlut í Landsbankanum til langframa en það er nákvæmlega jafn stór hlutur og norska ríkið á í DNB bankanum í Noregi. Ein af þeim leiðum sem höfundar hvítbókarinnar leggja til er að ríkið selji eignarhluti sína í Landsbankanum í áföngum eftir skráningu bankans á markað.

Þórdís Anna frá Icelandair til Kviku
Þórdís Anna Oddsdóttir hefur verið ráðin inn í fyrirtækjaráðgjöf Kviku banka.

Reikningur þriggja ára dótturinnar tæmdur vegna „mannlegra mistaka“
Átján ára drengur setti sig í samband við Solveigu Ruth Sigurðardóttur í fyrradag og tjáði henni að þriggja ára dóttir hennar hefði millifært hundrað þúsund krónur á reikning hans.

Ásmundur fyllir í skarð Vilhelms
Ásmundur Tryggvason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka. Hann tekur við keflinu af Vilhelm Má Þorsteinssyni sem á dögunum var kynntur til leiks sem nýr forstjóri Eimskips.

Framtakssjóðurinn Freyja í rekstri Kviku stækkaði í átta milljarða króna
Fyrsta mögulega fjárfesting Freyju er í áreiðanleikakönnun. Kvika leggur sjóðnum til um hálfan milljarð. Hann mun fjárfesta í fimm til sjö óskráðum meðalstórum fyrirtækjum.

Kvika breytti kröfum upp á 660 milljónir í hlutafé
Kvika banki, stærsti hluthafi Kortaþjónustunnar, breytti í síðasta mánuði ríflega 660 milljóna króna kröfum sínum á hendur kortafyrirtækinu í hlutafé.

Ríkisstjórnin frestaði lagabreytingum vegna sölu bankanna
Fjármála- og efnahagsráðherra mun ekki leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um sölumeðferð ríkisins í fjármálafyrirtækjum á yfirstandandi þingi því ríkisstjórnin telur það ekki raunhæft. Til stóð að leggja frumvarpið fram í nóvember samkvæmt þingmálaskrá en henni hefur nú verið breytt.

Auknar starfsheimildir Kviku í Bretlandi
Breska fjármálaeftirlitið hefur veitt dótturfélagi Kviku banka hf., Kviku Securities Ltd., starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða.

Krónan veiktist um 6,8 prósent í fyrra
Til að bregðast við þessari lækkun seldi Seðlabankinnn gjaldeyri á millibankamarkaði í þrjú skipti á síðari hluta ársins.

„Þjóðin var ekki rænd“: Hreiðar Már segir Stanford og Millen fara með rangt mál
Hreiðar Már Sigurðsson segir þjóðina ekki hafa verið rænda og hann og aðrir stjórnendur Kaupþings hafi unnið í góðri trú í aðstæðum og tímum sem eigi sér ekki fordæmi.

Hugsa Kaupþingsmönnum þegjandi þörfina
Við bjóðum ykkur að hrekja ásakanir okkar, og ef þið getið það ekki, þá virðist það liggja fyrir að í þessu tiltekna tilviki borgi glæpir sig á Íslandi, skrifa Karen Millen og Kevin Stanford.

Hreyfingar sjást ekki í netbönkum vegna bilunar
Bilun kom upp í búnaði hjá Reiknistofu bankanna í nótt sem gera það að verkum að hreyfingar sjást ekki í netbanka Landsbankans og Íslandsbanka.

Vill að ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að Landsbankinn verði samfélagsbanki að þýskri fyrirmynd
Fyrrverandi formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vill að ríkisstjórnin breyti Landsbankanum í samfélagsbanka. Hann segir að höfundar hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið hafi hafnað hugmyndinni um samfélagsbanka án rökstuðnings.

Íslendingar pökkuðu í vörn í jólaneyslunni
Kortavelta íslenskra heimila í nýliðnum desembermánuði nam um 86,5 milljörðum króna, sem jafngildir um 4,5 prósent aukningu frá sama mánuði árið áður.

Edda leiðir sameinað svið hjá Íslandsbanka
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslandsbanka.

Vill láta kanna sameiningu Íslandsbanka og Landsbankans
Þingmaður Vinstri grænna vill að ríkisstjórnin kanni það til hlítar hvort hægt sé að sameina Íslandsbanka og Landsbankann áður en teknar verði ákvarðanir um sölu bankanna. Varaformaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir slíkar hugmyndir óráð og hefur efasemdir að það myndi standast samkeppnislög.

Ekki sjálfgefið hvaða banka eigi að selja og hvernig
Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri grænna segir að borið hafi á þröngsýni í umræðu um hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið. Hann segir engan veginn sjálfgefið hvaða banka eigi að selja og hvernig. Velta þurfi upp öllum kostum hvað fjármálakerfið varðar og spyr hvort rétt sé að sameina Landsbankann og Íslandsbanka.

Um 300 milljarðar gætu fengist fyrir Íslandsbanka og helmingshlut í Landsbankanum
Ríkissjóður gæti fengið tæplega 300 milljarða króna fyrir Íslandsbanka og helmingshlut í Landsbankanum, sé eingöngu miðað við bókfært virði eigin fjár. Fyrir það fé væri hægt að leggja innri leið Sundabrautar og byggja nýjan Landspítala við Hringbraut en samt eiga um 200 milljarða króna í afgang.

Býður hlut sinn í Borgun til sölu á ný
Íslandsbanki hefur ákveðið að hefja að nýju söluferli á eignarhlut bankans í Borgun og bjóða þannig til sölu 63,5 prósenta hlut sinn í greiðslukortafyrirtækinu.

Telja æskilegt að afnema bankaskattinn áður en bankarnir verða seldir
Afnema þarf bankaskattinn áður en bankarnir verða einkavæddir. Þetta er samdóma álit dósents í hagfræði og framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs. Stefnt er að lækkun bankaskatts í fjórum jöfnum áföngum á næstu árum.

Gjaldþrot Kredia nam 252 milljónum króna
Engar eignir fundust í búi Credit one ehf., sem rekið hafði smálánafyrirtækið Kredia.

Telur tímabært að hefja undirbúning á sölu bankanna
Framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands segir tímabært að ríkisstjórnin hefji undirbúning á sölu á Íslandsbanka og hluta af Landsbankanum nú þegar hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið liggur fyrir.

Ragnhildur nýr forstjóri Reiknistofu bankanna
Stjórn Reiknistofu bankanna hefur ráðið Ragnhildi Geirsdóttur í starf forstjóra félagsins.

Vill selja ríkiseignir fremur en að þyngja álögur á landsmenn
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, sjálfstæðismaðurinn Óli Björn Kárason, segir ríkið geta kostað vegagerð með því að selja eignir og kveðst andvígur því að álögur verði þyngdar á landsmenn með nýrri tegund skattheimtu.

Aðkoma erlends banka sögð ólíkleg
Hins vegar sé möguleiki á því að stór norrænn banki sjái hag sinn í því að gera íslenskan banka að útibúi.