EM 2020 í handbolta

Nánast hlutkesti um sumar stöður í EM hópnum
Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari segir að það bíði sín erfitt verkefni að velja þá 12 leikmenn sem mæta Dönum í fyrsta leiknum á Evrópumótinu í handbolta í Malmö 10. janúar.

Markvarðarþjálfari íslenska handboltalandsliðsins fór á kostum með gítarinn
Tomas Svensson er aðeins einn besti handboltamarkvörður sögunnar og margfaldur heims- og Evrópumeistari með Svíum. Hann er einnig liðtækur með gítarinn.

Landsliðshlutabréfin hækkuðu hjá þessum sex um helgina
Baráttan um að komast í íslenska EM-hópinn er hörð og harðnaði enn eftir leikina tvo gegn Svíum.

Umfjöllun: Svíþjóð - Ísland 35-31 | Engin vörn í tapi fyrir Svíum
Svíþjóð vann fjögurra marka sigur á Íslandi, 35-31, í seinni vináttulandsleik liðanna.

Umfjöllun: Svíþjóð - Ísland 26-27 | Frábær sigur á Svíum
Þrátt fyrir erfiða byrjun vann Ísland frábæran sigur á Svíþjóð í vináttulandsleik í kvöld.

Síðustu tækifærin til að komast í EM-hópinn
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því sænska undir stjórn Kristjáns Andréssonar í fyrri æfingaleik liðanna af tveimur í dag. Strákarnir okkar héldu til Svíþjóðar í gær og mæta heimamönnum í Kristianstad klukkan 17.00 að íslenskum tíma í kvöld en á sunnudaginn fer leikurinn fram í Karlskrona.

Möguleiki að eignast treyju Arons Pálmars frá HM og styrkja Krabbameinsfélagið í leiðinni
Í dag eru 80 dagar í fyrsta leik íslenska handboltalandsliðsins á EM 2020 og í tilefni af þeim tímamótum þá sagði Handknattleikssambandið frá nýju uppboði í dag.

„Ég er kominn með algjört ógeð á þessum brjálaða handboltamanni sem ég bjó til“
Handknattleiksmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson hefur átt mjög viðburðarríkt ár sem endar síðan á því að hann gefur út opinskáa bók fyrir jólin.

Skyldusigur gegn Andorra í kvöld
Andorra vann sinn fyrsta leik í undankeppni EM á föstudaginn. Liðið hafði áður tapað öllum 56 leikjum sínum í undankeppni EM.

Engir nýliðar í hópi Guðmundar
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, valdi í dag 19 manna hóp fyrir komandi leiki gegn Svíum í mánuðinum.

Elsta liðið sem Ísland hefur teflt fram í landsleik og metið gæti fallið aftur á morgun
Erik Hamrén skrifaði söguna á Laugardalsvellinum á laugardaginn, Enginn íslenskur landsliðsþjálfari hefur teflt fram svo gömlu landsliði.

Fer hver að verða síðastur að fá miða með Íslendingunum á EM
Miðasala fyrir EM í handbolta í janúar hefur gengið vel hjá HSÍ. Riðill Íslands fer fram í Malmö og greinilega margir sem ætla að nýta sér þægilega staðsetningu mótsins að þessu sinni.

HSÍ selur dagpassa á leiki Íslands á EM á þúsund sænskar: Í boði til 1. september
Íslenska karlalandsliðið í handbolta spilar á Evrópumótinu í byrjun næsta árs en EM 2020 fer fram í Austurríki, Svíþjóð og Noregi í janúar næstkomandi.

Ísland byrjar gegn Dönum og endar á Ungverjalandi
Byrjar á krefjandi verkefni.

Ísland í riðli með heimsmeisturunum, Ungverjum og Rússum: Spilað í Malmö
Dregið var í riðla á EM 2020 í handbolta í dag.

Strákarnir okkar fá að vita um verðandi andstæðinga á EM í dag
Í dag þegar dregið verður í Vín, höfuðborg Austurríkis, kemur í ljós í hvaða riðli Strákarnir okkar, íslenska karlalandsliðið í handbolta, verða á Evrópumótinu 2020. Mótið hefst þann 9. janúar næstkomandi og fer fram í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Er þetta ellefta lokakeppni Evrópumótsins í röð þar sem Ísland er meðal þátttakenda.

Frammistaða Bjarka í Höllinni skilaði honum sæti í úrvalsliði undankeppni EM
Bjarki Már Elísson átti frábæran seinni hálfleik þegar Ísland vann sannfærandi sigur á Tyrklandi í lokaleik sínum í undankeppni EM 2020.

Ekki alveg jafn einstakt og Guðmundur landsliðsþjálfari talaði um
Tveir íslenskir handboltaþjálfarar voru reiðubúnir að veðja á unga leikmenn í lykilhlutverkum í landsliðum sínum og tókst þeim báðum að koma landsliðum sínum á Evrópumótið í handbolta sem fer fram í Austurríki, Svíþjóð og Noregi í byrjun næsta árs.

Guðmundur: Mikið sjokk og skýr skilaboð um að hraða þurfi umræðu um nýja höll
Formaður HSÍ tjáir sig um málefni Selfoss og Laugardalshöll.

Íslendingar í 3. styrkleikaflokki
Dregið verður í riðla fyrir EM 2020 þann 28. júní næstkomandi.

Umfjöllun: Ísland - Tyrkland 32-22 | EM sætið tryggt með stórsigri
Íslenska landsliðið kafsigldi því tyrkneska í seinni hálfleik í Laugardalshöll í dag

Myndasyrpa frá stórsigri Íslands
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sæti á EM með öruggum tíu marka stórsigri á Tyrkjum í Laugardalshöll í dag.

Gummi um aldurinn á íslenska liðinu: „Þetta er einstakt í Evrópu“
Ísland tryggði sér í dag á stórmót í handbolta 11. skiptið í röð. Ísland vann Tyrkland 32-22 í Laugardalshöllinni í lokaumferð undankeppnarinnar fyrir EM 2020 og tryggði sér þannig á mótið. Guðmundur Guðmundsson þjálfari Íslands var gríðarlega ánægður með margt eftir leikinn, sérstaklega hvað hann tefldi fram ungu og efnilegu liði.

Sumarsmellur Ingó og Gumma Tóta kveikti í Bjarka Má
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði í dag farseðil sinn inn á EM í handbolta 2020 með 32-22 sigri á Tyrkjum í Laugardalshöllinni. Bjarki Már Elísson var frábær í dag með 11 mörk úr 13 tilraunum.

Erlingur með Holland á EM í fyrsta skipti í sögunni
Erlingur Richardsson stýrði Hollandi inn á EM í handbolta í fyrsta skipti í sögunni í dag.

Arnór: „Svöruðum síðasta leik vel“
Íslenska karla landsliðið í handbolta vann 32-22 gegn Tyrkjum í dag í undankeppni EM í handbolta. Sigurinn tryggði liðinu á EM en þetta var síðasti leikurinn í undankeppninni. Arnór Þór Gunnarsson hægri hornamaður Íslands skilaði fínu dagsverki í dag en hann skoraði 6 mörk úr 6 tilraunum.

Viktor Gísli: „Draumur í dós“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggði í dag farseðil sinn inn á EM í handbolta 2020 með 32-22 sigri á Tyrkjum í Laugardalshöllinni. Viktor Gísli Hallgrímsson var stórkostlegur í leiknum en hann var með 51 prósenta markvörslu og fullt af stoðsendingum yfir allan völlinn.

Atli Ævar inn fyrir Arnar Frey
Íslandsmeistarinn Atli Ævar Ingólfsson kemur inn í íslenska landsliðshópinn.

Elvar: Við vitum að við erum góðir í sókn
Elvar Örn Jónsson hefur ekki áhyggjur af sóknarleik Íslands þrátt fyrir erfiðleika gegn Grikkjum ytra á miðvikudag.

Guðmundur: „Misnotuðum allt of mörg dauðafæri“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Tyrkjum í Laugardalshöll á morgun og þarf sigur til þess að tryggja sig inn á EM.