Landbúnaður
16 17 18 19 20 21 22 23 24 … 41 ›
Mjólkin hækkar í verði Verðlagsnefnd búvara hefur ákveðið að hækka lágmarksverð sem kúabændur fá fyrir mjólk. Þá hækkar einnig heildsöluverð mjólkur og mjólkurafurða sem nefndin verðleggur. Viðskipti innlent 26.11.2021 23:48
Velferð dýra skal alltaf ráða för Á lögbýlinu Lágafelli hefur verið stundaður blóðbúskapur frá árinu 1985, samhliða ræktun hrossa. Óhætt er að segja að sú mynd sem dregin var upp af rekstrinum í umfjöllun fjölmiðla í vikunni, er ekki í neinu samræmi við það sem almennt gengur og gerist í þessum geira. Skoðun 26.11.2021 10:31
Fordæma illa meðferð á blóðmerum Alþjóðasamtök íslenska hestsins (FEIF) fordæma illa meðferð á hryssum sem blóð er tekið úr á íslenskum bæjum. Þau segjast styðja að íslensk stjórnvöld stöðvi blóðmerahald alfarið hér á landi. Innlent 25.11.2021 12:29
Sauðfjárbændur gleðjast yfir Hrútaskránni – „Jólabókin í ár“ segir formaðurinn Sauðfjárbændur landsins ráða sér vart yfir kæti þessa dagana því Hrútaskráin er komin út. Í skránni er yfirlit yfir bestu kynbótahrúta landsins á Sauðfjársæðingarstöðvunum á Vesturlandi og Suðurlandi. „Jólabókin í ár“, segir formaður Félags sauðfjárbænda. Magnús Hlynur Hreiðarsson segir frá. Innlent 20.11.2021 13:16
Handprjónarar bæta hag íslenskra sauðfjárbænda Sauðfjárbændur gleðjast núna yfir hærra ullarverði en íslenskt handprjónaband hefur slegið í gegn meðal prjónafólks, bæði hérlendis og erlendis. Ullarvinnslufyrirtækið Ístex hefur ekki undan við framleiðsluna. Innlent 18.11.2021 22:44
Ríkið sýknað af milljarða kröfum vegna útboðs tollkvóta Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum heildverslunarinnar Ásbjörns Ólafssonar ehf., um endurgreiðslu útboðsgjalds vegna innflutnings á landbúnaðarvörum. Hefði fyrirtækið haft betur hefði ríkið þurft að endurgreiða útboðsgjöld að upphæð yfir fjórir milljarðar króna sem innheimt hafa verið af innflutningsfyrirtækjum frá því árið 2018. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Félags atvinnurekenda. Innherji 18.11.2021 15:27
Nýtt hestakyn á Íslandi? Hestamenn klóra sér nú í höfðinu vegna hesta, sem hafa verið í einangrun í stóði á bæ í Landbrot í Skaftárhreppi í sextíu ár. Hestarnir hafa aldrei komið inn í hesthús, hófarnir hafa aldrei verið klipptir, tennur ekki raspaðar og þeir hafa ekki fengið ormalyf. Hestarnir eru þó ótrúlega vel á sig komnir en allir mjög litlir og er jafnvel talað um nýtt hestakyn í því sambandi. Innlent 17.11.2021 20:10
Yfirvöld víða á tánum vegna tilvika fuglaflensu Alþjóðlegu dýraheilbrigðisstofnuninni (OIE) hefur borist nokkur fjöldi tilkynninga síðustu daga um alvarlega fuglaflensu í Evrópu og Asíu. Þá hefur 21 maður greinst með undirtýpu H5N6 í Kína á þessu ári, fleiri en allt árið 2020. Erlent 16.11.2021 08:59
Blóm allan sólarhringinn á Selfossi Nýr blómasjálfsali í nýja miðbænum á Selfossi hefur slegið í gegn, ekki síst hjá karlmönnum, sem fara í sjálfsalann á kvöldin og jafnvel á nóttunni um helgar til að kaupa blóm handa elskunni sinni. Innlent 15.11.2021 20:15
Háskóli Íslands og landbúnaður Háskólaprófessorinn Þórólfur Matthíasson (ÞM) er sérlegur áhugamaður um landbúnað eins og glöggt kom fram í þættinum Á Sprengisandi um helgina. Því miður gat ég ekki þegið boð um að sitja þáttinn með honum þar sem ég var búin að lofa mér annað. Skoðun 15.11.2021 17:33
Hinn langþráði stjórnarsáttmáli Mörg stór og mikilvæg mál bíða þess að á þeim verði tekið af djörfung og dug. Vonandi taka hinir þjóðlegu íhaldsflokkarnir sem nú vinna að stjórnarsáttmála sig á og gerast framfarasinnaðir og alþjóðlegir því mikið liggur við fyrir þjóðina. Hér eru nokkur mál sem spennandi er að sjá hvort og þá hvernig tekið verður á í sáttmálanum. Skoðun 13.11.2021 16:00
Enginn þarf að vera svangur á Vesturlandi um helgina Íbúar á Vesturlandi þurfa ekki að óttast matarleysi um helgina því þar verður farand – matarmarkaður í dag og á morgun þar sem matarbíll hlaðin vörum framleiddum á Vesturlandi fer um svæðið. Framtakið kemur í veg fyrir hópmyndun á einum stað. Innlent 13.11.2021 12:31
Merkileg dráttarvél gefin á Hvanneyri Ein merkilegasta dráttarvél landsins er nú komin á Landbúnaðarsafn Íslands á Hvanneyri en það var Kristján Helgi Bjartmarsson, sem er mikill eljumaður og fagurkerri, sem færði safninu vélina að gjöf. Vélin, sem er gangfær er snúið í gang. Innlent 9.11.2021 20:30
Bændur munu taka DNA sýni úr öllum kvígum Kúabændur munu þurfa að taka DNA sýni úr öllum kvígum frá næstu áramótum vegna erfðamengisúrvals í nautgriparækt. Tilgangur verkefnisins er að fá betri mjólkurkýr fyrr í fjósin hjá bændum. Í dag eru um fimm hundruð kúabú í landinu og hefur þeim fækkað mikið síðustu ár. Innlent 4.11.2021 20:16
Fundu erfðagalla í sæðingahrúti sem veldur gulri fitu Í ljós hefur komið að sæðingahrútur sem átti í kringum 600 afkvæmi í vor hafi verið með erfðagalla sem gerir það að verkum að kjötfitan verður gul. Ekki er um sjúkdóm að ræða né er hættulegt að borða kjötið en það þykir ólystugt. Innlent 3.11.2021 08:07
Rúði um 15 þúsund ær yfir veturinn Einn snjallasti rúningsmaður landsins rúði um fimmtán þúsund ær síðasta vetur og ætlar gera enn betur í vetur þegar hann ferðast á milli bæja og rýir fyrir bændur. Hann er að rýja að meðaltal 300 kindur á dag. Innlent 30.10.2021 20:02
Ungir bændur nytja fornfrægt höfuðból Sá siður að presturinn í Odda á Rangárvöllum sinni jafnframt búskapnum á þessu fornfræga höfuðbóli heyrir sögunni til. „Ég er bara með einn hund,“ segir sóknarpresturinn Elína Hrund Kristjánsdóttir. Innlent 30.10.2021 13:30
Segir jarðakaup Bretans ofbjóða öllum og vera ömurlega þróun „Þetta er farið að ofbjóða öllum,“ segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum í Þistilfirði, um jarðakaup breska auðjöfursins Jims Ratcliffes í sveitinni, og segir Hafralónsá nánast í gíslingu vegna tilrauna hans til að ná meirihluta í veiðifélaginu. Innlent 26.10.2021 15:42
Íslenskt forystufé fari á skrá yfir dýr í útrýmingarhættu Ráðamenn forystufjársetursins í Þistilfirði vinna að því að íslenskir forystusauðir verði skilgreindir sem dýrategund í útrýmingarhættu og fari jafnvel á heimsminjaskrá sem menningarminjar. Þeir segja íslenska forystuféð einstakt í heiminum. Innlent 25.10.2021 21:21
Þarf ekki að greiða fyrir graðhesta sem léku lausum hala Landeigandi í Hörgársveit þarf ekki að greiða kostnað sem féll á Hörgársveit þegar sveitarfélagið lét handsama tvo graðhesta sem sluppu og léku lausum hala á annarri jörð í Hörgársveit. Innlent 25.10.2021 08:55
Íslandsmeistari í járningum kemur frá Belgíu Nýr Íslandsmeistari í járningum var krýndur um helgina en átta keppendur tóku þátt í Íslandsmótinu með því að járna nokkur hross frá Eldhestum í Ölfusi.“Gott skap og sterkur líkami þarf að einkenna góðan járningamann“, segir yfirdómari mótsins. Innlent 24.10.2021 20:16
Búvörumerki sett á íslenskar vörur frá bændum Nú er unnið að því að hörðum höndum innan Bændasamtakanna að koma upp nýju íslensku búvörumerki þar sem merkið verður eingöngu notað á íslenskar matvörur, matjurtir og á blóm. Það ætti því engin að velkjast í vafa um hvort viðkomandi sé að versla íslenska eða erlenda vöru með nýja merkinu. Innlent 24.10.2021 13:30
Eiginmanninum færður kaffisopinn út á túnið Á bænum Holti í Þistilfirði eru þau Hildur Stefánsdóttir og Sigurður Þór Guðmundsson komin á ról fyrir allar aldir, hún að undirbúa morgunverð fyrir ferðamennina en hann að afla heyja fyrir búsmalann en þau reka bæði gistiheimili og sauðfjárbú. Lífið 24.10.2021 08:12
Bændasamtökin enn í viðræðum við ríkið um Hótel Sögu Viðræður standa enn yfir á milli Bændasamtaka Íslands og ríkisins um kaup á Hótel Sögu fyrir Háskóla Íslands. Þá er enn rætt við tvo aðila í hótelgeiranum, að sögn Gunnars Þorgeirssonar, formanns Bændasamtakanna. Innlent 22.10.2021 11:17
Graðhestaskyr á Brúnastöðum: Skyrland opnað á Selfossi „Við krakkarnir fengum alltaf graðhestaskyr á Brúnastöðum“, sagði Guðni Ágústsson, fyrrverandi mjólkureftirlitsmaður hjá Mjólkurbúi Flóamanna og fyrrverandi ráðherra þegar nýjasta upplifundarsýning, Skyrland, var opnuð á Selfossi í kvöld í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss. Innlent 21.10.2021 22:01
„Það verður engin kyngeta nema með að borða skyr“ Mikið var um að vera í nýja miðbænum á Selfossi í dag en þar var fyrsta skyrsafn landsins opnað síðdegis. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, segir að Selfoss sé orðinn miðdepill Íslands á nýjan leik. Lífið 21.10.2021 20:41
Forfeðurnir hjuggu niður álftir og söltuðu í tunnur Steingrímur J. Sigfússon hyggst meðal annars sinna æðarvarpi og vonast til að þurfa sem sjaldnast að fara í jakkaföt nú þegar hann hefur látið af þingmennsku. Á heimaslóðum sínum í Þistilfirði rifjar hann upp að forfeður hans veiddu álftir sér til matar. Lífið 18.10.2021 22:22
Ráðherra á glæsilegri hrútasýningu á Flúðum Glæsileg tilþrif sáust í hrútaþukli í gær í reiðhöllinni á Flúðum þar sem hrútasýning Sauðfjárræktarfélags Hrunamanna fór fram. Ráðherra í ríkisstjórninni fékk meira að segja kennslu í þukli. Rollubingóið vakti líka mikla athygli. Innlent 17.10.2021 20:05
Steingrímur kominn í töðuilm í bústörfum á Gunnarsstöðum Steingrímur J. Sigfússon stendur á tímamótum að loknum 38 ára viðburðaríkum stjórnmálaferli. Eftir að hafa stýrt sínum síðasta þingfundi í sumar sem forseti Alþingis hélt hann ásamt fjölskyldu sinni í frí norður í Þistilfjörð á æskuheimili sitt á Gunnarsstöðum. Lífið 17.10.2021 14:32
Samstarf við íslenska hampræktendur Atomos selur hampblóm frá íslenskum ræktendum. Samstarf 15.10.2021 13:02