Lykilatriði að efla skuldabréfamarkaðinn til að ná niður vöxtum á íbúðalánum Ef það á að takast að ná niður vaxtakjörum á íbúðalánum á Íslandi er „lykilatriði“ að auka aðgengi almennings að skuldabréfamarkaði, sem er núna nánast einokaður af lífeyrissjóðum, og þannig skapa forsendur fyrir því að hægt sé að bjóða upp á langtímafjármögnun, samkvæmt nýrri greiningu. Hlutur einstaklinga á skuldabréfamarkaði er hverfandi, sem er meðal annars afleiðings íþyngjandi regluverks, en þeir beina fjármagni sínu fremur í innlán vegna skorts á öðrum áhættulitlum fjárfestingarkostum. Innherji 22.12.2025 13:38
Frosti og Arnþrúður fá styrki Úthlutunarnefnd um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla hefur lokið störfum í ár. Fá alls 28 fjölmiðlar 550 milljónir króna sem deilt er þeirra á milli en líkt og á síðasta ári hljóta Árvakur og Sýn hæstu styrkina, um 104 milljónir króna hvort fyrirtækið en Sameinaða útgáfufyrirtækið sem gefur út Heimildina og Mannlíf er í þriðja sæti, fær tæpar 78 milljónir. Viðskipti innlent 22.12.2025 11:11
Markaðsvextir rjúka upp þegar verðbólgan mældist vel yfir spám Ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hefur rokið upp í morgun eftir að nýjar verðbólgutölur sýndu að hún hækkaði langt umfram spár greinenda og mælist núna 4,5 prósent. Tólf mánaða verðbólgan er komin á nánast sama stað og hún var í byrjun ársins. Innherji 22.12.2025 11:10
Minnkar vægi erlendra hlutabréfa og býst við „mun minni uppskeru“ vestanhafs Innherji 21.12.2025 13:19
Rokk í boði Ríkisins - möguleg tímaskekkja Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólamálaráðherra, hefur nú kynnt aðgerðaáætlun sem miðar að því að jafna samkeppnisstöðu á fjölmiðlamarkaði. Það er fagnaðarefni að stigið sé fast til jarðar í þessum efnum, enda hafa fáir ráðherrar sýnt það hugrekki sem þarf til að endurskoða raunverulegt hlutverk ríkismiðla á nútímamarkaði. Skoðun 20. desember 2025 13:33
Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Rakel Þórhallsdóttir hætti nýlega störfum sem framkvæmdastjóri Lyfjavals. Þetta staðfestir hún við Vísi. Hún er annar framkvæmdastjórinn undir merkjum Drangs sem hættir á skömmum tíma. Viðskipti innlent 20. desember 2025 07:01
„Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Formaður Blaðamannafélags Íslands segir nýjar aðgerir menningarmálaráðherra afar jákvæðar fyrir íslenska fjölmiðla og lýðræðið í heild. Verið sé að viðurkenn mikilvægt hlutverk blaðamennsku. Hún biðlar til samfélagsins að taka þátt í að styðja við íslenska fjölmiðla. Innlent 19. desember 2025 22:30
Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla Meðal boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar í þágu fjölmiðla er að hluti auglýsingatekna Ríkissjónvarpsins mun renna til einkarekinna fjölmiðla. Þá verður sett þak á auglýsingatekjur Rúv og allar tekjur umfram það renna til einkarekinna fjölmiðla. Þá verður stuðningur við fjölmiðla sem sinna skilgreindu almannaþjónustuhlutverki aukinn. Innlent 19. desember 2025 14:22
Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Logi Einarsson, menningar,- nýsköpunar og háskólaráðherra, kynnir tillögur að aðgerðum í málefnum fjölmiðla á blaðamannafundi klukkan 14. Fylgjast má með kynningu hans í beinni útsendingu á Vísi. Innlent 19. desember 2025 13:13
Síminn klárar kaup á OK og Öryggismiðstöðinni fyrir nærri fjórtán milljarða Með kaupum Símans á öllu hlutafé í Opnum Kerfum og Öryggismiðstöð Íslands, sem eru að stórum hluta bæði í eigu framtakssjóðs í rekstri VEX, þá er áætlað að árlegur rekstrarhagnaður Símans muni aukast um 2,3 milljarða þegar samlegðaráhrifin vegna viðskiptanna eru að fullu komin fram. Seljendur félaganna munu meðal annars fá greitt með sem nemur fimmtán prósenta hlut í Símanum en hlutabréfaverð félagsins hefur hækkað lítillega eftir tilkynninguna. Innherji 19. desember 2025 11:03
Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Fjarskiptastofa samþykkti í dag beiðni Símans um framlengingu á 3G og 2G þjónustu sinni á viðbótartíðni sem var úthlutað til tveggja ára. Í tilkynningu frá Fjarskiptastofu kemur fram að þó svo að heimildin geti leitt til skekktrar samkeppnisstöðu á markaði, því Sýn og Nova hafi nærri lokið sinni útfösun, vegi almanna- og öryggishagsmunir þyngra. Viðskipti innlent 18. desember 2025 17:46
Breyta nafni Ölgerðarinnar Stjórn Ölgerðarinnar tók ákvörðun á fundi þann 18. desember 2025 að hefja undirbúning að breyttu skipulagi samstæðu Ölgerðarinnar. Nýtt dótturfélag með sama nafni verður stofnað um þá starfsemi Ölgerðarinnar sem snýr að drykkjarvöruhluta fyrirtækisins. Samhliða því verður nafni móðurfélags samstæðunnar, sem verður áfram skráð í kauphöllinni, breytt í Bera. Viðskipti innlent 18. desember 2025 17:22
Selfoss stöðvaður í Bretlandi Flutningaskipið Selfoss var stöðvað af hafnarríkiseftirliti í Bretlandi á dögunum. Þar gerðu eftirlitsmenn athugasemdir við búnað um borð í skipinu. Innlent 18. desember 2025 16:28
Einkafjárfestarnir sem vilja leiða Heiðar til forystu í stjórn Íslandsbanka Heiðar Guðjónsson, sem fer fyrir hópi sem telur á annan tug einkafjárfesta, hélt áfram að stækka stöðu sína í Íslandsbanka nokkrum dögum áður en hann fór fram á að boðað yrði til hluthafafundar þar sem hann ætlar að sækjast eftir stjórnarformennsku núna þegar félagið er í samrunaviðræðum við Skaga. Þótt beinn stuðningur við Heiðar komi einkum úr röðum umsvifameiri einkafjárfesta, sumir hverjir sem tengjast honum nánum böndum eins og Andri Sveinsson, þá eru einnig ýmsir lífeyrissjóðir sagðir áfram um að hann geri sig gildandi í stjórn bankans. Innherji 18. desember 2025 09:29
Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Alcoa Fjarðaál sf. hefur stefnt Eimskipafélagi Íslands að nýju vegna meints tjóns félagsins af völdum samráðs Eimskipa og Samskipa á árunum 2008 til 2013. Viðskipti innlent 17. desember 2025 14:06
Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Heiðar Guðjónsson fjárfestir hefur staðfest að hann stefni á framboð til stjórnar Íslandsbanka en hann er stærsti einkafjárfestirinn í hluthafahópi bankans. Hann segist hafa fundist vanta tilfinnanlega rödd hluthafa inn í stjórn bankans og tekur sem dæmi síðasta hluthafafund, þar sem aðeins einn hluthafi tók til máls. „Hvaða sirkus er þetta?“ segist hann hafa spurt sig á fundinum. Viðskipti innlent 17. desember 2025 11:55
„Mikil umframeftirspurn“ þegar Alvotech seldi breytanleg bréf fyrir 14 milljarða Alvotech hefur gengið frá sölu á breytanlegum skuldabréfum að fjárhæð rúmlega 100 milljónir dala, sem kemur til nú þegar ljóst er að seinkun verður á sölu nýrra lyfja félagsins á Bandaríkjamarkað, til hóps um tuttugu alþjóðlegra fjárfesta en „mikil“ umframeftirspurn var sögð vera í útboðinu. Til að verjast markaðsáhættu lánar dótturfélag Alvotech kaupendum bréfanna jafnframt almenn hlutabréf í líftæknilyfjafélaginu sem selja þau síðan með tíu prósenta „afslætti“ miðað við dagslokagengið í gær. Innherji 17. desember 2025 10:20
Sjóðir Stefnis stækka hratt stöðu sína í Skaga Hlutabréfaverð Skaga hefur fallið um liðlega fimmtán prósent frá því að hópur fjárfesta, leiddur af Heiðari Guðjónssyni, fór fram á það í byrjun síðustu viku að efnt yrði til stjórnarkjörs hjá Íslandsbanka en fjármálafyrirtækin tvö eiga í formlegum samrunaviðræðum. Hlutabréfasjóðir Stefnis hafa bætt talsvert við stöðu sína í Skaga í þessum mánuði og stærsti einkafjárfestirinn hefur síðustu daga einnig haldið áfram að kaupa í félaginu. Innherji 16. desember 2025 11:32
Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Útvarpsstjóri Ríkisútvarpsins setur út á staðhæfingar forstjóra Sýnar um rekstur og tekjur ríkisfjölmiðilsins af auglýsingasölu. Í raun hafi tekjurnar ekki þróast í samræmi við verðlag. Hann telur það ekki skynsamlegt að Ríkisútvarpið fari af auglýsingamarkaði. Innlent 15. desember 2025 20:40
Þurftu að lenda í Liverpool á leið til Manchester Lenda þurfti flugvél Icelandair á leið til Manchester í Englandi í Liverpool í dag vegna lokunar á annarri tveggja flugbrauta flugvallarins í Manchester. Eftir að fyllt hafði verið á eldsneytistanka flugvélarinnar í Liverpool var flogið til Manchester, þar sem vélinni var lent tæpum tveimur klukkustundum á eftir áætlun. Innlent 15. desember 2025 14:19
Síminn að ganga frá kaupum á öllu hlutafé Opinna Kerfa Stjórnendur Símans halda áfram að leita tækifæra til frekari vaxtar samstæðunnar og eru núna langt komnir með að ganga frá kaupum á upplýsingatæknifyrirtækinu Opnum Kerfum sem er að meirihluta í eigu framtakssjóðs hjá VEX. Innherji 15. desember 2025 11:36
Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Kanadíska sprotafyrirtækið Evio hefur kynnt þróun tvinn-rafmagnsflugvélar, Evio 810, til notkunar á styttri flugleiðum í flokki 50 til 100 sæta flugvéla. Stefnt er á fyrsta reynsluflug árið 2029 og að hún komist í reglulegan flugrekstur í byrjun næsta áratugar. Erlent 14. desember 2025 07:17
15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Þótt hlutfall kvenkyns stjórnenda í fyrirtækjum hafi markvisst hækkað síðan lög um kynjakvóta voru sett á eru enn innan við tuttugu prósent framkvæmdastjóra konur og aðeins rúm fjórtán prósent forstjóra skráðra félaga. Þá uppfylla þrjú skráð fyrirtæki í Kauphöll ekki kröfur um kynjakvóta. Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að almenningur sé klofinn í afstöðu sinni til frekari kynjakvóta og ákveðinnar „jafnréttisþreytu“ gætir í samfélaginu að sögn prófessors. Viðskipti innlent 13. desember 2025 13:32
Stjórnarlaun hjá stærri félögum og lífeyrissjóðum hækkað um helming frá 2022 Þegar litið er til miðgildis stjórnarlauna hjá skráðum félögum, ríkisfyrirtækjum og lífeyrissjóðum þá voru þau yfir sjö milljónir króna í fyrra, samkvæmt nýrri greiningu Attentus og PwC, og höfðu hækkað umtalsvert frá árinu 2022. Innherjamolar 13. desember 2025 12:38
Lífeyrissjóðir fá nærri fimmtungshlut í Kaldalóni eftir sölu á stóru fasteignasafni Hópur allra helstu lífeyrissjóða landsins munu meðal annars eignast samanlagt nærri tuttugu prósenta hlut í Kaldalóni sem endurgjald vegna sölu á 25 þúsund fermetra eignasafni FÍ Fasteignafélags fyrir ríflega þrettán milljarða. Kaldalón áætlar að rekstrarhagnaður félagsins muni aukast um tæplega 900 milljónir á ársgrundvelli eftir viðskiptin. Innherji 13. desember 2025 12:11