
Alþjóðlegur jafnlaunadagur að frumkvæði Íslands
Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag, sem Ísland var í forystu fyrir, var á föstudag samþykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York.
Heimsljós er upplýsingaveita utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Vísir og Heimsljós eru í samstarfi um birtingu frétta um þessi mál.
Ályktun um alþjóðlegan jafnlaunadag, sem Ísland var í forystu fyrir, var á föstudag samþykkt einróma í mannréttindanefnd allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York.
Fulltrúar Alþjóðasjóðs um þróun landbúnaðar (IFAD) hafa verið hér á landi síðustu daga, ásamt fulltrúum nokkurra strandríkja til að kynna sér bláa hagkerfið, rannsóknastarf, þróun og tækni sem tengjast endurnýjanlegum auðlindum hafsins.
Fulltrúar Íslands áréttuðu áform ríkisstjórnarinnar um auknar aðgerðir á sviði kyn- og frjósemisheilbrigðis á alþjóðaráðstefnu um mannfjölda og þróun í Naíróbí í Kenya. Á fundum þeirra samhliða ráðstefnunni voru jafnréttis- og heilbrigðismál í brennidepli.
Óvirk vatnsdælustöð fyrir 400 þúsund íbúa í Sýrlandi veldur Alþjóðaráði Rauða krossins (ICRC) þungum áhyggjum. Í byrjun nóvember dreifði Rauði krossinn samtals 460 þúsund lítrum af drykkjarvatni. Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við aðgerðir Alþjóðaráðs Rauða krossins og sýrlenska Rauða hálfmánans í Sýrlandi með stuðningi Mannvina Rauða krossins og utanríkisráðuneytisins.
Óháð úttekt hefur verið gerð á svæðaverkefni sem Ísland leiddi í jarðhitamálum í Austur-Afríku. Verkefnið er sagt hafa fallið vel að þörfum þeirra landa sem fengu aðstoð, það hafi verið í takt við stefnu Íslands og áherslur í þróunarsamvinnu og hafi fallið að forgangsröðun Norræna Þróunarsjóðsins (NDF) í loftslagsmálum.
Tekið verðu á móti 85 einstaklingum í samstarfi við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR). Um er að ræða fjölmennustu móttöku flóttafólks frá því að íslensk stjórnvöld hófu að taka á móti flóttafólki í samstarfi við UNHCR.
Nýting norrænna lausna á sviði endurnýjanlegrar orku í þágu íbúa Eþíópíu var umræðuefni nýafstaðinnar ráðstefnu í Addis Ababa þar sem Unnur Orradóttir Ramette sendiherra Íslands í Kampala flutti opnunarræðuna.
Ívar Schram hélt í gær til hjálparstarfa sem sendifulltrúi á Bahamas í kjölfar fellibylsins Dorian sem gekk fyrir eyjarnar í byrjun september og olli gríðarlegri eyðileggingu.
Matís tók fyrir hönd utanríkisráðuneytisins þátt í verkefni fyrir skömmu á Filippseyjum sem er hluti af samstarfsverkefni ráðuneytisins og Alþjóðabankans um að veita aðgang að sérfræðiþekkingu Íslendinga, meðal annars um uppbyggingu á eldi í sjó, með sérstaka áherslu á ræktun á þangi.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, var í gær viðstaddur formlega móttöku flóttafólks frá Kenía í Mosfellsbæ. Fólkið er hluti af 25 manna hópi sem kom til landsins 12. september síðastliðinn.
Íslandi er gert hátt undir höfði í nýrri ársskýrslu HeForShe hreyfingar UN Women. Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er meðal tíu þjóðarleiðtoga sem eru sérstakir forsvarsmenn HeForShe. Í skýrslunni segir Guðni að kynjajafnrétti sé ekki aðeins grundvallar mannréttindi heldur undirstaða þess að byggja upp betra samfélag.
Hvað er í baðherberginu hjá þér? spyr Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna og hvetur fólk til að skoða snyrtivörur á baðherbergjum. Markmiðið er að auka vitund almennings um þann skaða sem örplast í þeim vörum getur valdið.
Rúmlega tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband á hverju ári, sem þýðir að 23 barnugnar stúlkur eru þvingaðar í hjónabnd á hverri mínútu. Landssöfnun UN Women á Íslandi í beinni útsendingu á RÚV, skilaði yfir tíu milljónum króna og 1330 einstaklingar gerðust "Ljósberar“ UN Women.
Íslenskur ungmennafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum á sviði loftslagsmála verður valinn í næstu viku. Þetta er í fyrsta sinn sem Ísland skipar ungmennafulltrúa í málaflokknum en hann verður skipaður í eitt ár og kemur til með að taka þátt í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í desember í umboði íslenskra ungmenna.
Horfur eru á alvarlegum matarskorti meðal íbúa í sunnanverðri Afríku á næstu sex mánuðum. Að mati þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna er óttast að allt að 45 milljónir íbúa í þessum heimshluta hafi lítið til hnífs og skeiðar á næstu mánuðum, fleiri en nokkru sinni fyrr.
Fjölmargir Íslendingar hafa fengið inn um bréfalúguna, eða fundið á fjölförnum stöðum, dularfullt umslag með áskoruninni um að hringja í símanúmerið 562-6262. Uppátækið er liður í því að Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) á Íslandi hefur blásið nýju lífi í neyðarsöfnun sína fyrir börn í Sýrlandi.
Ríkisstjórn Bangladess skrifaði í morgun undir 1,3 milljarða króna samning við Alþjóðabankann um fjármögnun á nýrri vatnsveitu fyrir þrjátíu sveitarfélög í landinu sem kemur til með að bæta lífsgæði 600 þúsund íbúa.
Sjö þúsund sýrlenskir flóttamenn, helmingurinn börn, hafa flúið átökin í landinu og haldið yfir í suðurhluta Íraks. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF). hefur sett upp barnvæn svæði í flóttamannabúðum og tímabundin kennslusvæði svo börn geti haldið áfram að nýta rétt sinn til menntunar.
Yfir tólf milljónir barnungra stúlkna eru þvingaðar í hjónaband ár hvert. Það þýðir að 23 barnungar stúlkur eru þvingaðar í hjónaband á hverri mínútu. Þessi útbreidda birtingarmynd kynbundins ofbeldis, þvinguð barnahjónabönd, verður í brennidepli á föstudaginn kemur, 1. nóvember, þegar landsnefnd UN Women á Íslandi efnir til landssöfnunar í beinni útsendingu á RÚV.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra vígði á dögunum nýtt reykofnaskýli í fiskimannabænum Tombo í Síerra Leóne sem er hluti af samstarfsverkefni Íslands með þarlendum stjórnvöldum. Ráðherra fór einnig í vettvangsskoðun og kynnti sér metnaðarfullt samstarfsverkefni með UNICEF í vatns-, salernis- og hreinlætismálum.
Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children – afhentu Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra áskorun í gær um að stöðva stríð gegn börnum.
Flóð, þurrkar og fellibyljir hafa kostað ófá mannslíf og mikið tjón í Malaví undanfarin ár. Einn helsti áhersluþáttur samstarfs Rauða kross félaganna á Íslandi og í Malaví um þessar mundir er uppbygging sterkra neyðarvarna á helstu áhættusvæðum.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti um nýliðna helgi ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington DC.
Örkuml og útskúfun er oft örlög kvenna í fátækum ríkjum, sem fá fæðingarfistil. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hlustaði á dögunum á reynslusögur nokkurra kvenna í Síerra Leóne, en Íslendingar styðja verkefni á vegum Mannfjöldasjóðs Sameinuðu þjóðanna (UNFPA) í landinu þar sem boðið er upp á meðferð gegn fistli.
Talið er að 11,7 milljónir manna þurfi á mannúðaraðstoð að halda í Sýrlandi vegna harðnandi átaka. Rauði krossinn hefur hafið neyðarsöfnun. Almennir borgara líða mest fyrir átökin, helmingur íbúa hefur yfirgefið heimili sín og ýmist flúið innan Sýrlands eða til annarra landa í leit að öryggi.
Þriðjungur barna í heiminum yngri en fimm ára – alls um 200 milljónir barna – eru ýmist vannærð eða ofnærð en hvoru tveggja dregur úr möguleikum þeirra til að ná fullum þroska, segir í árlegri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) um stöðu barna.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra tilkynnti í vinnuheimsókn til Síerra Leóne á dögunum um tæplega 20 milljóna króna framlag Íslendinga til verkefnis á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF.
Alþjóðasamtökin Barnaheill – Save the Children – eru 100 ára á þessu ári. Í tilefni af afmælinu blása samtökin til alþjóðlegs átaks undir yfirskriftinni "Stöðvum stríð gegn börnum“ en rúmlega 420 milljónir barna búa við stríðsástand, eða fimmta hvert barn í heiminum.
Dagur stúlkubarnsins var víða haldinn hátíðlegur síðastliðinn föstudag, 11. október. Að þessu sinni var þema dagsins: Kraftur stelpna – óskrifaður og óstöðvandi.
Alþjóðaráð Rauða krossins minnir á að þeir sem taka þátt í átökunum í Sýrlandi er skylt samkvæmt alþjóðlegum mannúðarlögum að hlífa óbreyttum borgurum og öllum öðrum sem ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum. UNICEF ítrekar kröfu um að börnum – og þeim innviðum sem þau þurfa á að halda – verði hlíft í samræmi við alþjóðalög.