Að þessu sinni var þema dagsins: Kraftur stelpna – óskrifaður og óstöðvandi.
Í frétt Upplýsingaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna er minnt á að nærri aldarfjórðungur sé liðinn frá því þrjátíu þúsund konur og karlar frá hartnær 200 þjóðum hafi safnast saman í Beijing, höfuðborg Kína, á fjórðu alþjóðlegu kvennaráðstefnuna, „staðráðin í því að réttindi kvenna og stúlkna skyldu viðurkennd sem mannréttindi,“ eins og segir í fréttinni. Ráðstefnunni lauk með samþykkt Beijing yfirlýsingarinnar og aðgerðaáætlunar Beijing Declaration and Platform for Action: heildstæðustu stefnumótunar um valdeflingu kvenna.
„Frá samþykkt yfirlýsingarinnar hafa konur og stúlkur barist fyrir því að þoka réttindamálum sínum áfram á mörgum sviðum svo sem varðandi kynheilbrigði og réttinum til jafnra launa. Fleiri stúlkur stunda skóla í dag og ljúka námi en áður, færri giftast og eignast afkvæmi á barnsaldri og fleiri öðlast þá færni sem nauðsynleg er til að njóta sín á vinnumarkaði,“ segir í fréttinni. Þá segir að sjónum hafi á síðustu árum verið beint að ýmsum málefnum eins og barnabrúðkaupum, menntun, ójafnrétti, kynbundnu ofbeldi og loftslagsbreytingum.
UN Women lét útbúa myndband í tilefni dagsins.
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.