

Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Farið var yfir stöðu Los Angeles Lakers í NBA deildinni í nýjasta þætti af Lögmáli leiksins sem verður frumsýndur á Stöð 2 Sport 2 klukkan átta í kvöld.
„Þetta er frekar týpískt að lið spili tvo leiki í röð og hittir oft þannig á,“ segir Benedikt Guðmundsson, þjálfari Tindastóls, fyrir bikarleik Tindastóls gegn Keflavík suður með sjó í kvöld.
Flottur bikarsigur gegn Grindavík í gærkvöld breytir ekki þeirri staðreynd að Íslandsmeistarar Vals sitja í fallsæti í Bónus-deild karla í körfubolta, eftir níu umferðir af 22. Sérfræðingar Körfuboltakvölds veltu vöngum yfir stöðu Vals og þeirri staðreynd að Finnur Freyr Stefánsson þjálfari liðsins þekkti ekki svona slæmt gengi.
Valsmenn unnu ellefu stiga sigur gegn Grindavík 88-77 og eru áfram í VÍS-bikarnum.
Kaninn veitti Körfuboltakvöldi innblástur fyrir skemmtilegt innslag þar sem teknar voru saman gamlar blaðaúrklippur af sérfræðingunum Hermanni Haukssyni og Teiti Örlygssyni.
Njarðvík fór áfram í átta liða úrslit bikarkeppni karla í körfubolta með öruggum 121-87 sigri gegn Selfossi.
Jakob Sigurðarson var sáttur með sína menn í KR, sem sóttu eins stigs sigur á Egilsstaði í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. Lokatölur 72-73 í leik þar sem KR lenti sautján stigum undir.
KR fór austur á Egilsstaði og sótti eins stigur gegn Hetti í sextán liða úrslitum bikarkeppni karla í körfubolta. 72-73 varð niðurstaðan í leik sem Höttur leiddi á tímapunkti með sautján stigum.
Alba Berlin er úr leik í þýsku bikarkeppninni í körfubolta eftir 80-67 tap á útivelli gegn Bamberg. Martin Hermannsson skoraði sex stig fyrir Berlínarmenn, gaf þrjár stoðsendingar og greip tvö fráköst. Þetta var hans þriðji leikur eftir að hafa stigið upp úr meiðslum, sem héldu honum frá keppni í heilan mánuð.
Haukar urðu síðasta liðið til að tryggja sig áfram í átta liða úrslit bikarkeppni kvenna í körfubolta, með öruggum 88-66 sigri gegn Val á Hlíðarenda.
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur á vellinum þegar Bilbao Basket tapaði fyrir Baskonia, 67-69, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.
Nikola Jokic setti persónulegt stigamet þegar Denver Nuggets tapaði fyrir Washington Wizards, 122-113, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Kvennakarfan verður í brennidepli í þriðja þætti Kanans sem verður sýndur í kvöld. Þar verður meðal annars rætt við fyrrverandi leikmann Keflavíkur sem starfar við þjálfun í NBA.
Aþena féll úr leik í VÍS bikarkeppni kvenna í körfubolta fyrr í dag. Öll önnur lið úrvalsdeildarinnar, sem mættu liðum úr næstefstu deild, unnu nokkuð þægilega sigra í sínum leikjum.
Njarðvík tók á móti ríkjandi bikarmeisturum Keflavík í 16-liða úrslitum VÍS bikarsins. Það var ljóst að um mikinn baráttuleik yrði að ræða og voru það stelpurnar í Njarðvík sem slógu út nágranna sína í Keflavík með minnsta mun 76-75.
Njarðvík vann 76-75 og sló ríkjandi bikarmeistara Keflavíkur úr leik í sextán liða úrslitum VÍS bikars kvenna. Brittany Dinkins reyndist hetja Njarðvíkur, hún kom liðinu yfir með vítaskoti þegar aðeins 5,1 sekúnda var eftir og stal svo boltanum í lokasókn Keflavíkur.
Úrvalsdeildarliðið Aþena tapaði 68-72 á heimavelli gegn fyrstu deildar liði Ármanns í sextán liða úrslitum VÍS bikars kvenna. Fjórir leikmenn Ármanns spiluðu allar fjörutíu mínúturnar.
Sérfræðingar Bónus Körfuboltakvölds telja að Keflvíkingar hafi dottið í lukkupottinn með því að semja við Ty-Shon Alexander. Hann átti stórleik gegn Tindastóli í gær.
Ekkert gengur hjá Los Angeles Lakers en í nótt tapaði liðið enn einum leiknum í NBA-deildinni í körfubolta, þrátt fyrir að stórstjörnurnar LeBron James og Anthony Davis hafi skorað næstum því áttatíu stig samtals.
Keflavík tók á móti Tindastól í Blue höllinni í kvöld þegar síðustu leikir 9. umferðar Bónus deild karla kláruðust. Það gekk allt upp hjá heimamönnum í kvöld var það fljótt ljóst í hvað stefndi. Keflavík stóð uppi sem sigurvegari með 27 stigum, 120-93.
Keflavík tók á móti Tindastól í Blue höllinni í kvöld í lokaleik níundu umferðar Bónus deild karla. Keflvíkingar hittu frábærlega úr sínum skotum og fóru með 27 stiga sigur, 120-93. Annar af tveimur nýju leikmönnum Keflvíkur var glaður í leikslok.
Evans Ganapamo er genginn í raðir Njarðvíkur. Hann er tveggja metra þrítugur bakvörður.
Stjarnan vann öruggan og nokkuð þægilegan útisigur í kvöld í nágrannaslag gegn Álftanesi, 77-97. Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari liðsins, var sérstaklega ánægður með varnarleikinn að þessu sinni.
Eftir næstum fimmtíu mínútna töf er leikur Keflavíkur og Tindastóls í Bónus deild karla í körfubolta hafinn. Vandræði með skot- og leikklukku komu í veg fyrir að leikurinn gæti hafist á réttum tíma.
Álftanes tók á móti einu heitasta liði landsins í nágrannaslag í kvöld þegar Stjarnan heimsótti Forsetahöllina. Heimamenn unnu báða slagina um Garðabæ í fyrra en eins og Kjartan Atli, þjálfari Álftaness benti á fyrir leik er ansi breytt Stjörnulið sem mætir til leiks í ár og það átti heldur betur eftir að koma á daginn.
Nikola Jokic hjá Denver Nuggets komst í nótt upp fyrir Magic Johnson á listanum yfir flestar þrennur í sögu NBA deildarinnar í körfubolta.
Valsmenn töpuðu öðrum leiknum í röð í gærkvöldi og um leið í fjórða sinn í síðustu fimm leikjum í Bónus deildinni í körfubolta. Fyrir vikið sitja Íslandsmeistarar í fallsæti deildarinnar.
Teitur Örlygsson var afar sannspár fyrir leiki gærkvöldsins í Bónus deild karla í körfubolta.
Bandarískir körfuboltamenn settu skemmtilegan svip á íslenska menningu undir lok síðustu aldar, þegar NBA-æðið var í hæstu hæðum, eins og rifjað er vandlega upp í þáttaröðinni Kaninn.
Valkyrjur eru mikið fréttum á Íslandi eftir alþingiskosningarnar á dögunum en hinum megin við hafið má einnig finna nýjar valkyrjur.