Körfubolti

Höttur endur­heimti sætið í Bónus-deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Obie Trotter hélt nýverið upp á 42 ára afmælið sitt en hann var frábær í leiknum í kvöld.
Obie Trotter hélt nýverið upp á 42 ára afmælið sitt en hann var frábær í leiknum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Höttur er komið aftur upp í Bónusdeild karla í körfubolta eftir aðeins eins árs fjarveru.

Höttur vann hreinan úrslitaleik á móti Sindra á Hornafirði í kvöld en sigurvegarinn tryggði sér sigur í 1. deildinni en deildarmeistaratitilinn gefur beint sæti í efstu deild.

Hattarmenn sýndu reynslu sína, samheldni og styrk og unnu þriggja stiga sigur, 96-93, í æsispennandi leik á mjög erfiðum útivelli.

Sindramenn áttu möguleika á að komast upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn en fá nú annað tækifæri í úrslitakeppni liðanna í öðru til níunda sæti.

Hattarmenn féllu fyrir ári síðan eftir þriggja ára veru í Bónusdeildinni en þetta verður annað skiptið í röð sem Viðar Hafsteinsson kemur liðinu strax upp aftur ári eftir að liðið fellur úr úrvalsdeildinni.

David Ramos, Obie Trotter og Nemanja Knezevic fóru niður með Hattarmönnum í fyrra en voru allt í öllu í kvöld. Ramos skoraði 19 stig, Trotter var með 16 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar en Knezevic var með 15 stig og 14 fráköst. Bandaríkjamaðurinn Deontaye Buskey var með 17 stig.

Jason Gigliotti var með 30 stig og 16 fráköst fyrir Sindra og Clayton Ladine bætti við 21 stigi, 8 fráköstum og 10 stoðsendingum.

Sindramenn byrjuðu vel og náðu mest níu stiga forskoti í fyrsta leikhlutanum. Þeir leiddu 25-21 eftir fyrsta leikhluta og voru síðan tveimur stigum yfir í hálfleik, 47-45.

Hattarmenn sýndu styrk sinn í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu með tíu stigum, 30-20.

Höttur var því 75-67 yfir fyrir lokaleikhlutann en heimamenn gáfust ekki upp og komu muninum aftur niður í eitt stig, 94-93, þegar fjörutíu sekúndur voru eftir. Dani Koljanin skoraði risakörfu fyrir Hött í lokin og tryggði liðinu endanlega sætið í Bónusdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×