Fékk bara að byrja einu sinni en var samt valin best Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. mars 2026 17:33 Caitlin Clark í leik með bandaríska landsliðinu í undankeppni HM þar sem hún steig sín fyrstu skref með A-landsliðinu. Getty/Alexa Alejandro Bandaríska körfuboltakonan Caitlin Clark var útnefnd verðmætasti leikmaðurinn á sínu fyrsta móti með bandaríska landsliðinu.
Bakvörðurinn hafði strax mikil áhrif í sínum fyrstu skrefum með aðalliði Bandaríkjanna en hún hjálpaði landsliði sínu að vinna alla leiki sína í undankeppni heimsmeistaramótsins. Clark stóð undir væntingum með frábærri frammistöðu fyrir ríkjandi meistara og það þrátt fyrir að fá bara að byrja einn af þessum fimm leikjum. Aðdáendur hennar voru margir hverjir mjög hneykslaðir á því hvernig hún var notuð á mótinu og í augum margra var eins og vísvitandi væri að reyna að halda henni niðri. Þrátt fyrir góða frammistöðu byrjaði hún aðeins einn leik en kom inn af bekknum í fjórum. Það breytti þó ekki því að sérstök valnefnd valdi hana besta leikmann mótsins. Með Clark í úrvalsliðinu var liðsfélagi hennar Kelsey Plum auk Megan Gustafson frá Spáni, Cecilia Zandalasini frá Ítalíu og Imani McGee-Stafford frá Púertó Ríkó. Clark klæddist þarna landsliðstreyjunni á ný í fyrsta sinn síðan hún var útnefnd verðmætasti leikmaður á heimsmeistaramóti nítján ára kvenna árið 2021. Clark var með hæsta framlagið í bandaríska liðnu (14,6 í leik), var næststigahæst í liði Bandaríkjanna með 11,6 stig í leik (52,9 prósent skotnýting) og var með flestar stoðsendingar á mótinu, eða 6,4 að meðaltali. Hún náði þessum tölum á aðeins 21,2 mínútum í leik. Bandaríska liðið var plús 109 stig með hana inni á vellinum á mótinu. Heimsmeistaramótið fer síðan fram í Berlín í Þýskalandi seinna á þessu ári og þar er bandaríska landsliðið sigurstranglegt. View this post on Instagram A post shared by FIBA Women’s Basketball World Cup (@fibawwc)
Körfubolti Mest lesið Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Handbolti „stúkan er of þögul“ Fótbolti Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Danir andlausir gegn Kongó Fótbolti Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Körfubolti „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Handbolti Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Handbolti „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira