Flutt á sjúkrahús eftir árekstur rafmagnshjóls og vespu Kona á rafmagnshjóli var flutt með sjúkrabíl á slysadeild á sjöunda tímanum í gær eftir að hún lenti í árekstri við ungan mann sem ók vespu í undirgöngum í Kópavogi Innlent 18. júní 2020 06:32
Fjölbreytt þjóðhátíðardagskrá um land allt Hátíðarhöld vegna þjóðhátíðardags Íslendinga verður með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins sem gengið hefur yfir undanfarna mánuði. Fjöldatakmarkanir munu setja svip sinn á daginn en víða hefur verið blásið til hverfishátíða og fólk hefur verið hvatt til að fagna deginum í faðmi nánustu vina og ættingja heima fyrir. Innlent 17. júní 2020 10:58
Björgunarsveitarmenn í Kópavogi skiptu um 500 fermetra þak á sjö tímum Vaskir björgunarsveitarmenn úr Hjálparsveit skáta í Kópavogi tóku sig til og skiptu um þak á húsnæði sveitarinnar á Kársnesi í gær. Innlent 14. júní 2020 11:49
Áhersla á smærri hverfishátíðir í Kópavogi Líkt og búast mátti við verða hátíðahöld vegna þjóðhátíðardagsins með óhefðbundnu sniði vegna faraldurs kórónuveirunnar. Bæjaryfirvöld í Kópavogi hafa ákveðið að bjóða upp á fimm mismunandi hátíðarsvæði þar sem rúmt verður um gesti. Innlent 11. júní 2020 14:23
Baðlónið á Kársnesi komið með nafn Baðlón sem nú rís á Kársnesi í Kópavogi og hefur fengið nafnið Sky Lagoon. Áætlað er að lónið verði opnað á vordögum 2021. Viðskipti innlent 11. júní 2020 08:08
Gjaldfrjáls leikskóli í 6 tíma á dag Við miklar efnahagslegar sviptingar og breytingar á þjóðfélaginu er nauðsynlegt að kjörnir fulltrúar almennings í sveitarstjórnum um allt land hafi að leiðarljósi fyrir hverja þeir starfa og hver tilgangur þeirra er. Skoðun 10. júní 2020 13:00
Handtóku ölvaðan mann grunaðan um íkveikju Maðurinn var vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn málsins. Innlent 10. júní 2020 06:19
Sex ára barn féll þrjá metra gegnum loftræstigrind Sex ára gamalt barn féll niður um þrjá metra þegar það var á gangi fyrir framan Kórinn í Kópavogi í gær. Barnið var á leið á æfingu og gekk yfir loftræstigrind fyrir utan húsið sem ekki hafði verið gengið almennilega frá og féll barnið niður um grindina. Innlent 4. júní 2020 13:14
Nafn mannsins sem lést í Laxá í Aðaldal Maðurinn sem lést í Laxá í Aðaldal í gærkvöldi hét Árni Björn Jónasson. Innlent 1. júní 2020 21:34
Segir nauðsynlegt að úttekt sé gerð á Arnarskóla „Skólakerfið á Íslandi er í sífelldri þróun og sveitarfélögin og skólafólkið sýnir sífellt þá viðleitni að gera betur. Það hafa á liðnum misserum komið fram sérskólaúrræði á vegum sjálfstætt starfandi aðila sem lög um grunnskóla hafa ekki náð nægilega vel utan um,“ sagði Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Innlent 23. maí 2020 07:00
Samþykktu nýjan kjarasamning við sveitarfélögin Félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Hveragerði og Ölfus hafa samþykkt nýjan kjarasamning við sveitarfélögin sem undirritaður var fyrr í þessum mánuði. Innlent 22. maí 2020 14:44
Skaut hjólreiðamann í rassinn með loftbyssu Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var á áttunda tímanum í gærkvöldi tilkynnt um farþega í bifreið á ferð í Kópavogi sem skotið hafði úr loftbyssu „í sitjanda á reiðhjólamanni“, líkt og það er orðað í dagbók lögreglu. Innlent 22. maí 2020 06:42
Einhverf og synjað um skólavist Í Kópavogi er starfræktur skóli fyrir einhverf börn. Þessi skóli heitir Arnarskóli og hefur þá sérstöðu að þar er veitt heildstæð þjónusta. Skoðun 19. maí 2020 11:30
Fóru ránshendi um Kringluna og Smáralind Maðurinn er sjö sinnum, í slagtogi við óþekkta einstaklinga, talinn hafa stolið varningi úr hinum ýmsu verslunum. Innlent 19. maí 2020 10:49
Kópavogsbær vanrækir lögbundnar skyldur í upplýsingagjöf til fatlaðs fólks Þann 30. apríl síðastliðinn birtist frétt um það að velferðarráð Kópavogs telji brýnt að koma á fót hjúkrunarrýmum fyrir yngra fólk sem hefur slasast eða er alvarlega veikt. Skoðun 18. maí 2020 08:00
Lífæðin Hamraborg og tækifæri fyrir lifandi samfélag Undanfarnar vikur hefur staðið yfir virk umræða meðal Kópavogsbúa um vinnslutillögu að fyrirhuguðu nýju deiliskipulagi fyrir hluta miðbæjar Kópavogs. Skoðun 13. maí 2020 11:30
Ölvaður og æstur maður veittist að fólki í Smáralind Tilkynningin kom um klukkan 20:40 í gærkvöldi og var maðurinn handtekinn og vistaður í fagnageymslu. Innlent 12. maí 2020 07:11
Kóp Boi bæjarlistamaður Kópavogs Tónlistarmaðurinn Herra Hnetusmjör er bæjarlistamaður Kópavogs 2020. Menning 11. maí 2020 14:30
Sér ekki fyrir endann á deilu sveitarfélaganna og Eflingar Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segist ekki sjá fyrir endann á deilu sambandsins og Eflingar. Hlé var gert á viðræðum á sjötta tímanum í gær og hófust viðræður á ný klukkan 10 í morgun. Innlent 10. maí 2020 11:19
Í tveggja vikna farbann vegna alvarlegrar árásar í Kópavogi Maðurinn er grunaður um alvarlega líkamsárás á heimili í Kópavogi í síðasta mánuði. Innlent 8. maí 2020 14:22
Með velferð barna að vopni Sem nemandi 10. bekkjar í Kársnesskóla í Kópavogi hef ég verið í fjarnámi í tvo mánuði sökum verkfalla og kórónuveirunnar. Mér hefur gengið sæmilega að aðlagast ástandinu en það á ekki við alla. Skoðun 8. maí 2020 08:30
Þriggja tíma fundi slitið og boðað til annars fundar á laugardag Þriggja klukkustunda fundi í kjaradeilu Eflingar og Sambands íslenskra sveitarfélaga lauk nú um níuleytið í kvöld. Innlent 7. maí 2020 21:50
Boðað til fundar í Eflingarverkalli Samninganefndir Sambands Íslenskra sveitarfélaga og Eflingar hafa verið boðaðar til fundar í húsakynnum Ríkissáttasemjara klukkan 18 í dag. Síðast var fundað í deilunni á mánudaginn. Innlent 7. maí 2020 14:37
Telur uppbyggingu hjólastíga vera „geggjaða peningasóun“ Vigdís Hauksdóttir, áheyrnarfulltrúi Miðflokksins í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkurborgar, virðist ekki vera hrifin af hugmyndum um uppbyggingu stofnleiða fyrir hjólreiðar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 6. maí 2020 21:45
„Við ætlum ekki að gefa neitt eftir“ Skólahald lá niðri eða var skert í nokkrum leik- og grunnskólum í Kópavogi í dag vegna verkfalls Eflingar. Ekki var fundað í deilunni í dag og enginn fundur hefur verið boðaður. Innlent 6. maí 2020 19:19
Deilan í algjörum hnút vegna samninga Eflingar við Reykjavíkurborg og ríkið Verkfall félagsmanna Eflingar hófst í dag og verður grunn- og leikskólum í Kópavogi lokað á morgun. Innlent 5. maí 2020 20:15
Rafvirkinn Margrét tók þakíbúð í Kópavogi í gegn Rafvirkinn Margrét Arnardóttir fjárfesti í íbúð sem tilbúin var til tréverks í Álalind í Kópavogi og fékk Gulli Byggir að fylgjast með hvernig gekk að koma íbúðinni í stand. Lífið 5. maí 2020 13:32
Efling segir SÍS neita að semja Efling stéttarfélag og Samband íslenskra sveitarfélaga hafa enn ekki náð saman í samningaviðræðum sínum. Í fréttatilkynningu Eflingar segir að SÍS neiti að gera kjarasamning sambærilegan þeim sem Ríkið, Reykjavíkurborg og Faxaflóahafnir hafi þegar gert við félagið. Innlent 4. maí 2020 18:18
Þriggja bíla árekstur á Nýbýlavegi Nú fyrir stundu varð þriggja bíla árekstur á Nýbýlavegi í Kópavogi. Innlent 4. maí 2020 08:32
Ekkert bendir til annars en að verkfall hefjist á þriðjudag „Eins og stendur er í sjálfu sér ekkert sem bendir til annars, það hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að [verkfall] muni hefjast á hádegi á þriðjudag og ef það er það sem þarf þá verður svo að vera,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar Innlent 3. maí 2020 14:45