Brim gert að greiða dagsektir Samkeppniseftirlitið hefur tekið ákvörðun um að beita Brim hf. dagsektum þar sem fyrirtækið hefur ekki enn veitt mikilvægar upplýsingar og gögn sem óskað var eftir í tengslum við yfirstandandi athugun Samkeppniseftirlitsins á stjórnunar-og eignatengslum fyrirtækja í sjávarútvegi. Viðskipti innlent 19. júlí 2023 16:33
Stærsti fjárfestirinn bætir við sig í Sýn fyrir nærri hundrað milljónir Fjárfestingafélag Reynis Grétarssonar, stærsti fjárfestirinn í hluthafahópi Sýnar, hefur bætt við sig hlutum í félaginu í fyrirtækinu fyrir nálægt hundrað milljónir króna að markaðsvirði. Tveir hópar einkafjárfesta, sem fara með meirihluta í stjórn fjölmiðla- og fjarskiptafélagsins, eiga núna orðið samanlagt rétt rúmlega 30 prósenta hlut í Sýn. Innherji 19. júlí 2023 09:06
Bandarískir ferðamenn slá met Icelandair sagði frá því á dögunum að sætanýting í flugi til og frá Norður-Ameríku hafi aldrei verið betri í júní. Það stemmir vel en Bandaríkjamenn eyddu 14,14 milljörðum króna á Íslandi í júní samkvæmt tölum frá Rannsóknasetri verslunarinnar (RSV). Skoðun 19. júlí 2023 07:00
Formaður og varaformaður hætta í stjórn Íslandsbanka Finnur Árnason, Guðrún Þorgeirsdóttir og Ari Daníelsson gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn Íslandsbanka. Finnur er núverandi stjórnarformaður bankans og Guðrún varaformaður. Tilnefningarnefnd bankans leggur til að Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrar hjá Marel, verði kjörin nýr formaður stjórnar. Viðskipti innlent 18. júlí 2023 14:41
Fimm flugvélum Icelandair snúið við vegna bilunar í kerfi Isavia Bilun í tölvukerfi íslenska flugumsjónarsvæðisins hjá Isavia varð í dag til þess að snúa þurfti fimm flugvélum Icelandair á leið til landsins við. Innlent 15. júlí 2023 17:04
Íslandsbanki frestar birtingu tilnefninga til stjórnar Tilnefninganefnd Íslandsbanka hefur frestað birtingu tilnefninga til stjórnar bankans um eina viku. Viðskipti innlent 15. júlí 2023 09:46
Festi undirritaði samning um kaup á Lyfju Samningur um kaup smásölufyrirtækisins Festi á öllu hlutafé í Lyfju var undirritaður í dag. Í kaupunum er heildarvirði Lyfju metið á 7,8 milljarða króna en endanlegt heildarvirði og kaupverð mun ráðast af skuldastöðu Lyfju við afhendingu ásamt gengi hlutabréfa í Festi á þeim tíma. Viðskipti innlent 13. júlí 2023 18:10
Hagnaður Arion banka ætti að tvöfaldast á grunni sterkra vaxtatekna Væntingar eru um að afkoma stóru viðskiptabankanna í Kauphöllinni verði umfram arðsemismarkmið þeirra á öðrum ársfjórðungi þrátt fyrir að erfiðar aðstæður á fjármálamörkuðum hafi enn neikvæð áhrif á fjármunartekjurnar. Þar munar mestu um kröftugan vöxt í vaxtatekjum, stærsti tekjupóstur Arion banka og Íslandsbanka, en útlit er fyrir að hagnaður Arion af reglulegri starfsemi muni meira en tvöfaldast frá fyrra ári, samkvæmt spám hlutabréfagreinenda. Innherji 13. júlí 2023 13:19
Yfirtók gagnaverið af Íslandsbanka fyrir nærri milljarð Borealis Data Center keypti félagið Reykjavík DC, sem starfrækir gagnaver á Korputorgi, fyrir tæplega 900 milljónir íslenskra króna síðastliðið haust af Íslandsbanka. Vegna fjárhagsvandræða hafði gagnaverið verið yfirtekið af bankanum, stærsta lánadrottni sínum, í árslok 2021 og í kjölfarið voru meðal annars um 400 milljónir af skuldum félagsins afskrifaðar samhliða fjárhagslegri endurskipulagningu. Innherji 13. júlí 2023 07:44
Icelandair flýgur til Innsbruck næsta vetur Icelandair hefur bætt nýjum skíðaáfangastað við áætlun sína næsta vetur, borginni Innsbruck í Austurríki. Flogið verður frá 27. janúar til 2. mars. Viðskipti innlent 12. júlí 2023 15:46
Fjárfesting í erlendum verðbréfum bætir ávöxtun en vægi þeirra hefur verið of lítið Erlend verðbréf, sem skráð eru í kauphöll, bæta sögulegt hlutfall ávöxtunar og áhættu fyrir íslenska fjárfesta, eins og til dæmis lífeyrissjóði. Vægi erlendra eigna í innlendum eignasöfnum hefur verið of lítið, segir í nýrri rannsókn. Innherji 11. júlí 2023 14:27
„Meirihlutanum finnst þetta ekki nógu mikilvægt“ Þrír nefndarmenn fjárlaganefndar þingsins hafa kallað eftir því að nefndin komi saman til að ræða bæði Lindarhvolsmálið og Íslandsbankasöluna. Einn þeirra telur ólíklegt að nefndin verði kölluð saman. Engin viðbrögð hafi borist frá meirihluta nefndarinnar. Innlent 10. júlí 2023 13:00
Rannsókn á dótturfélagi Eimskips lokið Danska samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að hætta rannsókn sinni í máli Atlantic Trucking, sem er danskt dótturfélag í eigu Eimskipafélags Íslands. Húsleit var gerð hjá félaginu í júní á síðasta ári. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 15:14
Fá sekt vegna dulinna auglýsinga Fjölmiðlanefnd hefur sektað Sýn hf. vegna dulinna auglýsinga í innslögum í raunveruleikaþáttunum LXS sem sýndir voru á Stöð 2 og Stöð 2+. Dagskrárstjóri Stöðvar 2 segir fyrirtækið ekki hafa fengið greitt fyrir neinar auglýsingar sem sektað er fyrir. Raunveruleikasjónvarp sé þess eðlis að vörumerki birtist í þáttunum án þess að um kostaða auglýsingu sé að ræða. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 13:07
„Enn annar metmánuðurinn hjá Play“ Flugfélagið Play flutti 160.979 farþega í júnímánuði, sem er langmesti farþegafjöldi sem fluttur hefur verið á einum mánuði hjá félaginu. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 09:51
Samkeppniseftirlitið vill ekki fella niður sátt við Símann Samkeppniseftirlitið telur ekki að sala Símans á Mílu og breyttar markaðsaðstæður Símans réttlæti það að sátt, sem gerð var árið 2013 verði felld úr gildi. Sáttin felur meðal annars í sér aðskilnað heild- og smásölu Símans og bann við samkeppnishamlandi samningum. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 08:56
Verðmat Reita enn langt yfir markaðsvirði Verðmat Jakobsson Capital á Reitum lækkaði lítillega á milli ársfjórðunga. Verðmatið er um 54 prósentum hærra en markaðsvirðið. Raunvöxtur í leigutekjum var tvö prósent á milli ára. Sennilega standa hóteleignir á baki við hluta rauntekjuvaxtar milli ára. Reitir eru þyngstir í hóteleignum af öllum fasteignafélögunum. Innherji 7. júlí 2023 07:01
Risa yfirtökutilboð liggur fyrir í Kerecis Yfirtökutilboð liggur fyrir í allt hlutafé ísfirska fyrirtækisins Kerecis, sem framleiðir sáraroð úr þorski. Þetta kemur fram í tilkynningum tryggingafélaganna Sjóvár og VÍS til kauphallarinnar. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 23:33
Segir nýju Airbus-þoturnar fullkomnar fyrir Icelandair Icelandair skrifaði í dag undir samning um kaup á allt að 25 Airbus-þotum. Jafnframt hefur félagið gert leigusamning um fjórar Airbus- þotur og verða þær fyrstu afhentar fyrir lok næsta árs. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 23:20
Icelandair gengur frá pöntun á allt að 25 Airbus A321XLR þotum Icelandair og Airbus hafa undirritað samning um kaup flugfélagsins á þrettán langdrægum Airbus A321XLR farþegaþotum og kauprétt á tólf slíkum til viðbótar. Samnningurinn kemur í kjölfar viljayfirlýsingar þess efnis sem gefin var út í apríl síðastliðnum. Áætlað er að afhending hefjist árið 2029 en kaupverð er trúnaðarmál milli samningsaðila. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 12:05
Að fá betra verð með því að bjóða betra verð Ágæt regla sem almennir fjárfestar geta tileinkað sér er að nota ekki svokölluð markaðstilboð við kaup og sölu nema að vel ígrunduðu máli, þar sem þau fela í sér að viðkomandi tekur hagstæðasta tilboði – sama hvaða verð eru í boði. Umræðan 6. júlí 2023 10:43
Sætanýtingin 86 prósent en stundvísin undir markmiðum Heildarfjöldi farþega Icelandair var 519 þúsund í nýliðnum júnímánuði, 20 prósent fleiri en í júní í fyrra þegar farþegar voru 431 þúsund. Samtals hafa 1,8 milljónir farþega ferðast með félaginu á fyrri helmingi ársins, 31 prósent fleiri en á sama tímabili í fyrra. Viðskipti innlent 6. júlí 2023 09:00
Greiddi næstum fjórðung af sjóðnum í arð vegna sölu á Tempo og Mílu Arðgreiðslusjóður Stefnis greiddi 23,5 prósent af heildarstærð sjóðsins í arð til sjóðsfélaga um síðustu mánaðarmót. Þetta háa hlutfall má rekja til þess að Origo seldi Tempo og Síminn seldi Mílu og var afrakstur sölunnar greiddur til hluthafa. Arðgreiðslur vegna þessara tveggja félaga telja tæplega 90 prósent af öllum arði til sjóðsins á nýliðnu arðgreiðslutímabili. Innherji 6. júlí 2023 07:00
Brot bankans mögulega rakin til brotalama hjá Bankasýslunni Ríkisendurskoðandi segir að ef Bankasýsla ríkisins hefði lagt betri grunn að söluferlinu á Íslandsbanka hefði mátt komast hjá fjölda brota sem sátt Fjármálaeftirlitsins við bankann tekur til. Ekki megi gleyma að Bankasýslan hafi verið framkvæmdaraðili sölunnar og beri því víðtæka ábyrgð. Viðskipti innlent 5. júlí 2023 12:10
Styrkás verður „töluvert“ umsvifameira við skráningu í Kauphöll Horft er til þess að Styrkás, eignarhaldsfélag Skeljungs og Kletts, verði „töluvert“ umsvifameira við skráningu þess í Kauphöll fyrir árslok 2027, að sögn forstjóra Skel fjárfestingafélags. Tækifæri eru til ytri vaxtar á sviði orku og efnavöru, tækjum og búnaði, umhverfi, iðnaði og eignaumsýslu. Innherji 5. júlí 2023 08:43
Bankasýslan ekki dregið neinn lærdóm og hyggist ekki axla ábyrgð Ríkisendurskoðun getur ekki dregið aðra ályktun en að Bankasýsla ríkisins hafi fyrir sitt leyti engan lærdóm dregið af skýrslu embættisins um sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka. Jafnframt standi ekki til af hálfu Bankasýslunnar að axla neina þá ábyrgð sem henni beri sem framkvæmdaraðila útboðsins og fjallað er um í skýrslunni. Viðskipti innlent 4. júlí 2023 18:51
Sýn gerir víðtækan samstarfssamning við Viaplay Group Sýn og Viaplay hafa gert tímamótasamstarfssamning sem felur í sér einkarétt á sölu Viaplay með vörum Vodafone og Stöðvar 2 og tekur samningurinn gildi strax í ágúst. Viðskipti innlent 4. júlí 2023 09:05
Stærsti hluthafi Eikar tekur jákvætt í viðræður um samruna við Reiti Stjórnendur Brimgarða, sem er stærsti hluthafinn í Eik og leggst gegn yfirtökutilboði Regins, fullyrða að ekkert sé því til stuðnings að fjármögnunarkjör stærra fasteignafélags muni batna, heldur gætu kjörin þvert á móti versnað þar sem heimildir stærri fjárfesta til áhættutöku gagnvart einstaka útgefendum er takmörkuð. Innherji 4. júlí 2023 08:29
Fær 47 milljónir vegna starfslokanna Bankastjóri Íslandsbanka segir stemningu meðal starfsmanna bankans þunga og mikla sorg ríkja eftir erfiða viku. Hann fundar með formanni VR í vikunni og mun gera sitt besta til að endurvinna traust hans. Viðskipti innlent 3. júlí 2023 18:31
Ákveða framhald viðskipta eftir hluthafafund bankans Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að stjórn félagsins muni ákveða framhald viðskipta við Íslandsbanka að loknum hluthafafundi 28. júlí. Á fundinum verður ný stjórn kjörin. Viðskipti innlent 3. júlí 2023 16:55