Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Sómalski dómarinn Omar Artan segist hafa verið yfirheyrður af innflytjendayfirvöldum í ellefu klukkustundir áður en honum var meinaður aðgangur að Bandaríkjunum fyrir heimsmeistaramótið, þrátt fyrir að vera með „réttu skjölin“ og „réttu vegabréfsáritunina“. Fótbolti 9. júní 2026 17:16
„Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, segir mörg smáatriði fylgja því að greina besta landslið í heimi. Lið ríkjandi heimsmeistara Argentínu sem Ísland mætir í nótt. Fótbolti 9. júní 2026 12:00
Með áhyggjur af að mæta Íslandi en Messi mun spila Lionel Scaloni, þjálfari heimsmeistara Argentínu, staðfesti á blaðamannafundi í gær að Lionel Messi myndi spila í vináttulandsleiknum gegn Íslandi í kvöld. Hann er hins vegar áhyggjufullur fyrir leikinn vegna meiðslastöðunnar í argentínska hópnum. Fótbolti 9. júní 2026 11:30
Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Íranska knattspyrnusambandið hefur misst miðana sem sambandið fékk fyrir heimsmeistaramótið. Stuðningsmenn sem keyptu miða hjá sambandinu eru því miðalausir. Fótbolti 9. júní 2026 11:02
HM-minning: Eina tap Þjóðverja var á móti Þjóðverjum Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir tvo daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við þess þegar Vestur- og Austur-Þýskaland mættust í eina skiptið í úrslitakeppni HM. Fótbolti 9. júní 2026 09:02
Ísland mætir heimsmeisturum með nokkurra klukkutíma millibili 9. júní 2026 er merkilegur dagur fyrir íslensku A-landsliðin í fótbolta því þau verða bæði í eldlínunni í dag og eru bæði að fara að spila við ríkjandi heimsmeistara. Fótbolti 9. júní 2026 07:02
Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Danski knattspyrnumaðurinn Christian Eriksen hneig niður í æfingalandsleik Danmerkur gegn Úkraínu á sunnudagskvöld. Íslenskur yfirlæknir hjá Hjartasamtökum Danmerkur segir að það séu nokkrir möguleikar á því hvers vegna Eriksen hneig niður. Fótbolti 9. júní 2026 06:31
Rice verður varafyrirliði enska landsliðsins á HM Declan Rice, miðjumaður Arsenal, hefur fengið stöðuhækkun hjá enska landsliðinu því hann verður varafyrirliði Englands á heimsmeistaramótinu sem hefst í lok vikunnar. Fótbolti 8. júní 2026 22:03
FIFA: Fær ekki að dæma á HM vegna komubannsins Sómalski dómarinn Omar Artan fær ekki að vera dómari á heimsmeistaramótinu í fótbolta eftir að honum var meinað að koma inn í Bandaríkin á mánudag. Fótbolti 8. júní 2026 21:23
Olise með þrennu en Mbappé náði ekki að jafna markametið Michael Olise var stjarna kvöldsins þegar Frakkar unnu 3-1 sigur á Norður-Írlandi í síðasta leik sínum fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta. Fótbolti 8. júní 2026 21:08
Gakpo skoraði tvö mörk í fimmtugasta landsleiknum Liverpool-framherjinn Cody Gakpo hélt upp á fimmtugasta landsleikinn með tveimur mörkum þegar Holland vann 2-1 sigur á Úsbekistan í generalprufu sinni fyrir heimsmeistaramótið. Fótbolti 8. júní 2026 20:56
Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Noregur og Skotland, sem bæði taka þátt í HM, ætluðu að mætast í vináttulandsleik í kvöld en ekkert varð af honum eftir að Skotar hættu við að mæta í leikinn. Fótbolti 8. júní 2026 20:47
Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Það eru ólíkar fréttir sem berast af Arsenal-leikmönnunum William Saliba og Jurriën Timber sem báðir voru í lykilhlutverki hjá Englandsmeisturunum á nýloknu tímabili Enski boltinn 8. júní 2026 18:32
HM-dómara neitað um inngöngu í Bandaríkin Sómalska FIFA-dómaranum Omar Artan var neitað um að koma inn í Bandaríkin á mánudag en Sómalinn er á lista yfir dómara á HM í fótbolta. Fótbolti 8. júní 2026 18:01
Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Moutaz Neffati spilaði í Bestu deildinni á Íslandi fyrir tveimur árum en er nú að mæta til Mexíkó til að spila á sjálfu heimsmeistaramótinu í fótbolta í næstu viku, með Túnis. Fótbolti 8. júní 2026 15:47
Hetjunni haldið í yfirheyrslu í sjö tíma við komuna á HM Aymen Hussein, framherja Íraks, var haldið föstum í yfirheyrslu á O‘Hare flugvellinum í Chicago í Bandaríkjunum heilar sjö klukkustundir um helgina þegar landsliðshópur Íraka mætti á HM í fótbolta. Ljósmyndari liðsins fékk ekki að koma inn í landið. Fótbolti 8. júní 2026 12:30
Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Lionel Messi endurnýjar kynni sín við íslenska fótboltalandsliðið í Alabama annað kvöld, í síðasta leik Argentínu fyrir titilvörnina á HM en mótið hefst á fimmtudaginn. „Gott orðspor“ Íslands hefur skilað sér í flottum boðum um vináttulandsleiki í ár en ekkert toppar leik við sjálfa heimsmeistarana í generalprufu þeirra fyrir HM. Fótbolti 8. júní 2026 11:02
HM-minning: Fékk ekki þrennuna sína fyrr en þrjátíu árum eftir dauða sinn Tuttugasta og þriðja heimsmeistaramótið í fótbolta hefst eftir þrjá daga og Vísir ætlar að telja niður í mótið með því að kafa ofan í sögubækur heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Í dag minnumst við tímamótaafreks sem viðkomandi fékk aldrei staðfest á meðan hann lifði. Fótbolti 8. júní 2026 09:02
Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Moise Bambito mun ekki geta tekið þátt á HM með landsliði Kanada. Þar missir gestagjafaþjóð mótsins sinn besta varnarmann. Fótbolti 7. júní 2026 23:15
Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Martin Ödegaard sá til þess að Noregur náði jafntefli gegn Marokkó í síðasta æfingaleik beggja liða fyrir komandi heimsmeistaramót. Fótbolti 7. júní 2026 21:30
Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Verðandi leikmaður Manchester United, Éderson, er á leiðinni á HM vegna meiðsla Wesley. Breytingarnar á landsliðshópi Brasilíu hafa verið staðfestar. Fótbolti 7. júní 2026 16:45
Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Margir hafa gaman af því að giska á hvernig leikirnir á HM munu fara. Atli Freyr Hallbjörnsson er einn þeirra og hann er búinn að forrita getraunaleik sem allir Íslendingar geta tekið þátt í. Hundrað þúsund króna verðlaunaféð er í boði Atla og föður hans. Fótbolti 7. júní 2026 14:15
Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Skotland og Noregur áttu að mætast í æfingaleik fyrir luktum dyrum á mánudag en ekkert verður af því. Fótbolti 7. júní 2026 12:43
Ollie Kane kynntur til leiks Áhorfendur ráku upp stór augu þegar byrjunarlið Englands fyrir æfingaleik gegn Nýja-Sjálandi birtist á skjánum á Raymond James leikvanginum í Flórída. Nánast hver einasti leikmaður í liði Englands var rangnefndur. Fótbolti 7. júní 2026 11:42
Messi á bekknum í sigri Argentínu Argentína fagnaði 2-0 sigri í æfingaleik gegn Hondúras í nótt. Lautaro Martínez og Giuliano Simeone skoruðu mörkin en Lionel Messi vermdi varamannabekkinn. Fótbolti 7. júní 2026 09:35
HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Diego Maradona skoraði tvö af frægustu mörkum fótboltasögunnar gegn Englandi á HM 1986. Allir vita að markið sem hann skoraði með „hendi guðs“ hefði aldrei átt að standa, en hefði líka átt að dæma draumamarkið af? Fótbolti 7. júní 2026 09:01
Englendingar ósannfærandi í sigri England vann 1-0 sigur á Nýja-Sjálandi í æfingaleik í Flórída í kvöld. Enska liðið hefur spilað betur en í dag. Fótbolti 6. júní 2026 21:57
Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Þýskaland vann 2-1 sigur á Bandaríkjunum á Soldier Field í Chicago í æfingaleik í aðdraganda komandi heimsmeistaramóts karla í fótbolta. Fótbolti 6. júní 2026 20:41
Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Portúgal vann 2-1 sigur á Síle í æfingaleik í aðdraganda HM karla í fótbolta í Oeira í Lissabon í kvöld. Upp úr sauð undir lok fyrri hálfleiks. Fótbolti 6. júní 2026 19:49
Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, vonar að nýlagður völlur verði ekki til vandræða þegar liðið mætir Nýja-Sjálandi í æfingaleik í kvöld. Fótbolti 6. júní 2026 16:45