Ronaldinho verður meira í Barcelona eftir að sonur hans samdi við félagið Sonur Ronaldinho hefur gengið frá samningi við Barcelona og faðir hans er ánægður með fréttirnar. Fótbolti 7. febrúar 2023 17:01
United ætlar að bjóða yfir hundrað milljónir punda í Osimhen Manchester United er tilbúið að borga fúlgur fjár fyrir markahæsta leikmann ítölsku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 7. febrúar 2023 15:00
Uppfært: Atsu enn ófundinn Ekki hefur tekist að bjarga ganverska fótboltamanninum Christian Atsu úr rústum byggingar eftir jarðskjálftann mikla í Tyrklandi í fyrrinótt. Fótbolti 7. febrúar 2023 07:32
Varane segist vera að kafna vegna fjölda leikja Franski miðvörðurinn Raphaël Varane segir knattspyrnumenn á hæsta getustigi spila alltof marga leiki. Varane lagði nýverið landsliðsskóna á hilluna þrátt fyrir að vera ekki orðinn þrítugur. Enski boltinn 6. febrúar 2023 22:31
Selfoss og ÍBV fá leikmenn frá Bandaríkjunum Bæði Selfoss og ÍBV hafa sótt leikmenn úr bandaríska háskólaboltanum fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna í fótbolta. Íslenski boltinn 6. febrúar 2023 21:30
„Enska úrvalsdeildin hefur aldrei farið í svona mál gegn svona félagi“ Enska úrvalsdeildin ákvað í dag að kæra Manchester City fyrir yfir eitt hundrað brot á fjárhagsreglum deildarinnar. Sú ákvörðun gæti haft alvarlega afleiðingar. Enski boltinn 6. febrúar 2023 20:15
Lazio mistókst að komast upp fyrir nágranna sína Lazio náði aðeins jafntefli gegn Verona í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, í kvöld. Með sigri hefði Lazio farið upp fyrir nágranna sína og erkifjendur í Roma. Fótbolti 6. febrúar 2023 19:31
Ten Hag ætlar út með ruslið Erik Ten Hag, þjálfari Manchester United, ætlar að taka rækilega til í leikmannamálum félagsins í sumar. Talið er að sex leikmenn verði seldir í sumar, þar á meðal verða fyrirliðinn Harry Maguire og framherjinn Anthony Martial. Enski boltinn 6. febrúar 2023 18:01
Matthäus urðar yfir Neuer og segir að hann eigi ekki skilið að vera fyrirliði Bayern Lothar Matthäus er langt frá því að vera ánægður með Manuel Neuer og segir að markvörðurinn eigi ekki skilið að vera fyrirliði Bayern München lengur. Fótbolti 6. febrúar 2023 15:31
María heldur sæti sínu í norska landsliðinu María Þórisdóttir er í nýjasta hópnum hjá norska kvennalandsliðinu í fótbolta en landsliðshópurinn var tilkynntur í dag. Fótbolti 6. febrúar 2023 14:30
Fyrrverandi leikmaður Newcastle grafinn undir rústum eftir jarðskjálftann mikla Leit stendur nú yfir að ganverska fótboltamanninum Christian Atsu. Talið er að hann hafi grafist undir rústum eftir jarðskjálftann mikla í Tyrklandi. Fótbolti 6. febrúar 2023 13:03
„Gat ekki staðið í lappirnar og var mjög hrædd“ „Þetta er skelfilegt,“ segir Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í fótbolta, sem býr ásamt kærustu sinni í Tyrklandi þar sem risastór jarðskjálfti reið yfir í nótt og hefur orðið fjölda fólks að bana. Fótbolti 6. febrúar 2023 10:34
„Vissi að þegar ég kæmi til Íslands vildi ég halda þessu starfi áfram“ Fötluð börn á Íslandi geta nú æft fótbolta undir handleiðslu landsliðskonunnar Gunnhildar Yrsu Jónsdóttur og ólympíumeistarans Erin McLeod en hjónin, og nýjustu leikmenn Stjörnunnar, hafa tekið að sér þjálfun hjá Öspinni. Fótbolti 6. febrúar 2023 07:30
Dagskráin í dag: Seinni bylgjan, Gametíví og ítalski boltinn Íslenski handboltinn verður fyrirferðamikill á íþróttarásum Stöðvar 2 í dag en ítalski boltinn fær einnig sitt pláss. Sport 6. febrúar 2023 06:00
Barcelona komið með átta stiga forskot á Spáni Barcelona er komið með átta stiga forskot í spænsku deildinni í knattspyrnu eftir öruggan 3-0 sigur á Sevilla í kvöld. Öll mörk Barcelona komu í síðari hálfleik. Fótbolti 5. febrúar 2023 22:10
Inter hafði betur í Mílanóslagnum Lautaro Martinez var hetja Inter en hann skoraði eina markið í nágrannaslagnum gegn AC Milan í kvöld. Inter er enn í öðru sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 5. febrúar 2023 21:45
Sverrir Ingi hélt hreinu gegn Olympiacos Sverrir Ingi Ingason og félagar í PAOK gerðu í kvöld jafntefli við Olympiacos í toppslag í grísku deildinni í knattspyrnu. Fótbolti 5. febrúar 2023 20:45
Þorsteinn: Mér fannst leikmenn hafa andlega gott af því að fara í frí Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu segist ekki vera í nokkrum vafa um að hann hafi verið að gera rétt þegar hann ákvað að nýta ekki landsliðsgluggan í nóvember síðastliðnum. Fótbolti 5. febrúar 2023 20:15
Frábær byrjun Bayern færði þeim toppsætið á nýjan leik Bayern Munchen náði toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar á nýjan leik í dag með góðum 4-2 útisigri á Wolfsburg. Frábær byrjun Bayern lagði grunninn að sigrinum. Fótbolti 5. febrúar 2023 18:38
Albert lék í tapi Genoa Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem tapaði 2-0 á útivelli gegn Parma í Serie B deildinni á Ítalíu í dag. Genoa er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í efstu deild. Fótbolti 5. febrúar 2023 17:15
Willum og félagar aftur á sigurbraut eftir sigur í Íslendingaslag Eftir þrjú töp og eitt jafntefli í seinustu fjórum leikjum eru Willum Þór Willumsson og félagar hans í Go Ahead Eagles aftur komnir á sigurbraut eftir 1-0 sigur gegn Andra Fannari Baldurssyni og felögum hans í Nijmegen í dag. Fótbolti 5. febrúar 2023 16:27
Johnson tryggði nýliðunum sigur gegn Leeds Brennan Johnson skoraði eina mark leiksins er nýliðar Nottingham Forest unnu mikilvægan 1-0 sigur gegn Leeds í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 5. febrúar 2023 15:53
Madrídingar misstigu sig og gætu misst Barcelona átta stigum frá sér Real Madrid mátti þola óvænt 1-0 tap er liðið heimsótti Mallorca í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 5. febrúar 2023 14:57
María sat á bekknum er United missteig sig í toppbaráttunni María Þórisdóttir var ónotaður varamaður er Manchester United gerði markalaust jafntefli gegn Everton í ensku Ofurdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 5. febrúar 2023 14:24
Napoli styrkti stöðu sína á toppnum með öruggum sigri Napoli er nú með 16 stiga forskot á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir öruggan 3-0 útisigur gegn Spezia í dag. Fótbolti 5. febrúar 2023 13:26
Rúnar stóð vaktina í óvæntu tapi Alanyaspor Rúnar Alex Rúnarsson var á milli stangann hjá Alanyaspor er liðið tapaði óvænt gegn fallbaráttuliði Istanbulspor í tyknesu úrvalsdeildinni í fótbolta í dag, 2-1. Fótbolti 5. febrúar 2023 12:31
Vann fjórðu deildina í fyrra en nær ekki að manna liðið í ár Ungmennafélagið Einherji frá Vopnafirði nær ekki að senda lið til keppni í Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Liðið vann sér inn sæti í þriðju deild með því að sigra fjórðu deildina á seinasta tímabili. Fótbolti 5. febrúar 2023 11:16
Segir leikmenn hafa farið yfir strikið en óskar eftir samræmi hjá VAR Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, óskar eftir því að myndbandsdómarar í ensku úrvalsdeildinni bjóði upp á meira samræmi en hingað til eftir að Casemiro var rekinn af velli í 2-1 sigri liðsins gegn Crystal Palace í gær. Fótbolti 5. febrúar 2023 10:31
Rannsókn á máli Gylfa Þórs lokið Rannsókn lögreglunnar í Manchester á máli knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar er lokið. Málið er nú komið inn á borð saksóknaraembættis bresku krúnunnar. Það er í höndum þess embættis hvort ákært verði í málinu eða það falli niður. Sport 5. febrúar 2023 09:47
Miðjuhringurinn með „æxli“ er Haller skoraði sitt fyrsta mark eftir krabbameinsmeðferðina Framherjinn Sebastien Haller skoraði þriðja mark Dortmund í 5-1 sigri liðsins gegn Freiburg í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. Þetta var hans fyrsta mark fyrir liðið eftir að leikmaðurinn snéri aftur eftir krabbameinsmeðferð. Fótbolti 5. febrúar 2023 09:00