Allt galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum Arsenal og Sporting skildu jöfn þegar liðin mættust í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Einvígið er galopið fyrir seinni leikinn í Lundúnum. Fótbolti 9. mars 2023 19:42
Tap hjá Ronaldo í toppslag Cristiano Ronaldo og félagar hans í Al-Nassr máttu sætta sig við tap í toppslag gegn Al-Ittihad í kvöld. Al-Ittihad fer upp fyrir Al-Nassri með sigrinum og í toppsætið. Fótbolti 9. mars 2023 19:28
Pogba mætti of seint og er ekki í hóp í kvöld Paul Pogba verður ekki í leikmannahópi Juventus gegn Freiburg í Evrópudeildinni í kvöld. Pogba er nýkominn aftur eftir langvarandi meiðsli en var tekinn úr leikmannahópnum vegna agabrots. Fótbolti 9. mars 2023 17:49
Dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á leikmann Tvítugur stuðningsmaður PSV Eindhoven hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ráðast á Marko Dmitrovic, markvörð Sevilla, í Evrópuleik liðanna tveggja í febrúar. Fótbolti 9. mars 2023 15:30
Dæmdu fyrrum fyrirliða landsliðsins í lífstíðarbann Fótboltaferill Ahmed Al-Saleh er á enda. Honum er hreinlega bannað að stíga aftur inn á fótboltavöllinn. Fótbolti 9. mars 2023 15:01
Dramað heldur áfram og Diacre látin fjúka Nú þegar aðeins fjórir mánuðir eru í að HM kvenna í fótbolta hefjist í Eyjaálfu hefur Corinne Diacre verið rekin úr starfi landsliðsþjálfara Frakka, eftir mikla óánægju nokkurra leikmanna með hennar störf. Fótbolti 9. mars 2023 13:54
Dæmdir í fangelsi vegna mannskæða troðningsins Tveir embættismenn knattspyrnuliðs voru dæmdir í fangelsi vegna troðningsins sem myndaðist á leikvangi í Malang í Indónesíu í dag. Á annað hundrað manns lést í troðningnum eftir að lögreglumenn skutu táragasi á aðdáendur sem þustu út á völlinn. Erlent 9. mars 2023 11:56
Þjálfari franska kvennalandsliðsins neitar að hætta og talar um rógsherferð Corinne Diacre er þjálfari franska kvennalandsliðsins í fótbolta og vill vera það áfram þrátt fyrir að hafa fengið á sig mikla gagnrýni síðustu vikur. Fótbolti 9. mars 2023 11:42
Albert valinn besti leikmaður umferðarinnar Albert Guðmundsson var valinn besti leikmaður síðustu umferðar í Seríu B á Ítalíu en deildin gaf þetta út á miðlum sínum. Fótbolti 9. mars 2023 08:00
Grindavík náði í stig á Hlíðarenda og KR lagði ÍA KR vann góðan endurkomusigur á ÍA þegar liðin mættust í Lengjubikarnum í kvöld. Þá gerði Lengjudeildarlið Grindavíkur góða ferð á Hlíðarenda og náðu í stig gegn sterku liði Vals. Fótbolti 8. mars 2023 22:41
Milan hélt hreinu í Lundúnum og skildi Tottenham eftir í sárum Ítalíumeistarar AC Milan eru komnir áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 0-0 jafntefli gegn Tottenham í kvöld. Milan vann fyrri leikinn og skilur Tottenham eftir með sárt ennið. Fótbolti 8. mars 2023 22:15
Messi og félagar úr leik í Meistaradeildinni eftir tap í Munchen Bayern Munchen er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar eftir 2-0 sigur á PSG á heimavelli í kvöld. Bayern vann 1-0 sigur í fyrri leiknum og einvígið 3-0. Fótbolti 8. mars 2023 22:04
Annar sigurinn í röð hjá Eyjamönnum ÍBV vann sinn annan sigur í röð í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Leikni 2-0 í Breiðholtinu. Fótbolti 8. mars 2023 19:07
Stórt skref Sverris Inga og félaga í átt að bikarúrslitum Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði PAOK sem vann 5-1 stórsigur á Lamia í gríska bikarnum í knattspyrnu í dag. Fótbolti 8. mars 2023 18:56
Aron Einar skoraði þegar Al-Arabi fór áfram í bikarnum Aron Einar Gunnarsson var á skotskónum hjá Al-Arabi þegar liðið tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Emír-bikarsins í Katar. Fótbolti 8. mars 2023 18:30
Samúel Kári og Viðar Örn þurftu að sætta sig við tap gegn toppliðinu Atromitos beið lægri hlut gegn AEK frá Aþenu í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. AEK vann 1-0 útsigur en Viðar Örn Kjartansson og Samúel Kári Friðjónsson leika með Atromitos. Fótbolti 8. mars 2023 17:31
Formaður knattspyrnudeildar ÍR í eigendahóp lögfræðistofu Axel Kári Vignisson hefur bæst í eigendahóp Íslensku lögfræðistofunnar. Aðrir eigendur eru hæstaréttarlögmennirnir Arnar Kormákur Friðriksson, Haukur Örn Birgisson og Ómar Örn Bjarnþórsson. Viðskipti innlent 8. mars 2023 16:58
Stelpur með sama rétt og strákar til að spila fótbolta eftir bréf enska landsliðsins Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 600 milljónum punda, jafnvirði yfir 100 milljarða króna, á næstu tveimur árum í að stelpur fái sömu tækifæri í skólaíþróttum og strákar. Fótbolti 8. mars 2023 15:01
Mbappe: Leikurinn í kvöld mun ekki ráða framtíð minni hjá PSG Framtíð Kylian Mbappe hjá Paris Saint-Germain veltur ekki á útkomu leiks liðsins á móti Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld ef marka má viðtal við kappann. Fótbolti 8. mars 2023 13:31
Næsti HM-draumur stelpnanna okkar gæti ræst í Brasilíu Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta var hársbreidd frá því að komast á sitt fyrsta heimsmeistaramót í sögunni þegar liðið tapaði í framlengingu í umspilsleik á móti Portúgal í lok síðasta árs. Fótbolti 8. mars 2023 13:00
„Við keyptum aldrei dómara“ Joan Laporta, forseti Barcelona, segir ekkert til í þeim fréttum að félagið hafi keypt dómara eða reynt að hafa áhrif á þá. Fótbolti 8. mars 2023 12:31
Sjáðu Chelsea bjarga Potter með afar umdeildum hætti og Benfica í ham Leikmenn Chelsea náðu að koma liðinu áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu og hjálpa Graham Potter að halda starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins, með 2-0 sigri gegn Dortmund í gær. Mörkin úr leikjum gærkvöldsins má nú sjá á Vísi. Fótbolti 8. mars 2023 12:02
Bellingham: Brandari að Chelsea hafi fengið að endurtaka vítaspyrnuna Jude Bellingham, miðjumaður Borussia Dortmund, var allt annað en sáttur með kringumstæðurnar í markinu sem skaut liði hans út úr Meistaradeildinni í gærkvöldi. Fótbolti 8. mars 2023 10:30
Rekinn fyrir að gera lítið úr kynferðisbroti Franska fótboltafélagið Angers rak í gær þjálfara sinn Abdel Bouhazama. Ástæðan er ekki bara slæmt gengi liðsins. Fótbolti 8. mars 2023 09:31
„Mikið af tilfinningum í gangi „Ég er ekki viss, það var mikið af tilfinningum í gangi undir lokin,“ sagði Graham Potter, þjálfari Chelsea, eftir 2-0 sigur sinna manna á Borussia Dortmund í síðari leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dortmund vann fyrri leikinn 1-0 og sótti stíft undir lok leiks. Fótbolti 7. mars 2023 23:00
Chelsea sneri við taflinu gegn Dortmund og er komið áfram Chelsea hefur átt verulega erfitt uppdráttar undanfarið og var undir í einvígi sínu gegn Borussia Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu fyrir leik kvöldsins á Brúnni. Lærisveinar Graham Potter léku líklega sinn besta leik undir hans stjórn og unnu góðan 2-0 sigur. Fótbolti 7. mars 2023 22:10
Göngutúr í garðinum hjá Benfica sem fór örugglega áfram Benfica er komið áfram í 8-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan 5-1 sigur á Club Brugge í Portúgal í kvöld. Benfica vann fyrri leik liðanna 2-0 og einvígið samtals 7-1. Fótbolti 7. mars 2023 22:00
Wilder verður níundi þjálfari Watford síðan haustið 2019 Það verður seint sagt að mikið starfsöryggi fylgi því að þjálfa enska knattspyrnufélagið Watford. Slaven Bilić hefur verið rekinn og mun Chris Wilder taka við þjálfun liðsins. Hann verður 9. þjálfari Watford síðan Javi Gracia var rekinn í september 2019. Enski boltinn 7. mars 2023 21:30
Talið að Bayern vilji tvíeyki frá Chelsea og bakvörð Man United Bayern München virðist ætla að styrkja sig talsvert í sumar. Talið er að félagið sé á höttunum á eftir Pernille Harder og Mögdu Eriksson hjá Chelsea. Ona Battle, bakvörður Manchester United, er einnig á óskalistanum. Fótbolti 7. mars 2023 19:16
Segir að meiðsli Neymars skapi ótrúlegt tækifæri fyrir PSG Meiðsli Neymars búa til ótrúlegt tækifæri fyrir knattspyrnustjóra Paris Saint-Germain, Christophe Galtier. Þetta segir Christophe Duggary, fyrrverandi landsliðsmaður Frakklands. Fótbolti 7. mars 2023 17:00
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur - Þróttur 1-1 | Eitt stig á hvort lið í fremur rólegum leik Íslenski boltinn