Dortmund heldur í við Bayern Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 21. september 2025 19:44 Smelli koss'á þig. EPA/FRIEDEMANN VOGEL Borussia Dortmund lagði Wolfsburg 1-0 í efstu deild þýska fótboltans. Sigurinn þýðir að Dortmund heldur enn í Þýskalandsmeistara Bayern München en fátt virðist ætla að koma í veg fyrir að Bæjarar vinni deildina enn á ný.
Sigurmark leiksins var af dýrari gerðinni. Karim Adeyemi fékk boltann frá bakverðinum Julian Ryerson. Þó hann væri lengst frá marki ákvað Adeyemi að láta vaða og söng boltinn í netinu. Kamil Grabara, markvörður Wolfsburg gat ekki annað en hrist hausinn. Leikurinn var ekki beint endanna á milli og hélt Dortmund út, lokatölur 1-0. Er í þráðum sem að láta alla horfa á mig.EPA/FRIEDEMANN VOGEL Bayer Leverkusen gerði þá 1-1 jafntefli við Borussia Mönchengladbach. Malik Tillman kom heimamönnum í Leverkusen yfir þegar tuttugu mínútur lifðu leiks en Haris Tabaković jafnaði metin fyrir Gladbach þegar tvær mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Hinn skoski Oliver Burke skoraði svo þrennu í 4-3 útisigri Union Berlín á Eintracht Frankfurt. Beittur Burke boltann netið setti í.EPA/RONALD WITTEK Dortmund er nú með 10 stig að loknum fjórum umferðum, tveimur minna en Bayern. Frankfurt er með sex stig í 6. sæti, Union Berlín er með jafn mörg stig í 10. sæti og Leverkusen er með fimm stig í 11. sæti. Gladbach er svo í fallsæti með aðeins tvö stig.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Markvörður ársins náði að stöðva Orra Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Sjá meira