Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Bretar, Ísland og átta önnur lönd í Norður-Evrópu hyggjast sameina krafta sína og koma á fót sérstöku samiginlegu sjóherliði til að sporna við aukinni ógn Rússa á norðurslóðum, að sögn bresks herforingja. Verkefnið er á vegum JEF-samstarfsins sem Ísland er aðili að. Erlent 1.5.2026 00:02
Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki fyrir utan Óðinsvé í Danmörku síðastliðinn sunnudag var Tristan Magni Hauksson. Hann var 24 ára þegar hann lést. Innlent 30.4.2026 13:02
Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Fyrsti fjórðungur 21. aldarinnar er liðinn og af því tilefni ákváðu tveir íslenskir háskólaprófessorar að taka saman lista yfir 25 bestu kvikmyndir tímabilsins. Þeir leituðu til 149 íslenskra álitsgjafa og úr varð forvitnilegur listi með afgerandi sigurvegara og miklum kynjahalla. Bíó og sjónvarp 30.4.2026 10:56
Ungur samherji Elíasar særðist alvarlega í hnífsstungurárás Alamara Djabi, nítján ára leikmaður Midtjylland í Danmörku, var í lífshættu eftir að hafa verið stunginn með hnífi á sunnudaginn. Fótbolti 21. apríl 2026 07:31
Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Efasemdir um hvort að nýkjörinn þingmaður Borgaraflokksins búi raunverulega í Danmörku hafa sett staðfestingu á úrslitum þingkosninganna þar í uppnám. Atkvæðagreiðsla um málið á að fara fram í danska þinginu í dag en hún átti aðeins að vera formsatriði. Erlent 14. apríl 2026 11:45
Faðir Mary drottningar látinn Faðir Mary Danadrottningar, John Dalgleish Donaldson prófessor, er látinn 84 ára að aldri í Hobarth í Tasmaníu. Erlent 12. apríl 2026 16:38
Mette Frederiksen leitar yfir miðju Mette Frederiksen handhafi ríkisstjórnarmyndunarumboðsins í Danmörku segir stíf fundarhöld framundan við Venstre og Íhaldsflokkinn. Kannað verði hvort grundvöllur sé fyrir annarri stjórn þvert yfir miðju hins pólitíska litrófs. Erlent 12. apríl 2026 15:56
Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterna í Danmörku, segist hættur að ræða um stjórnarmyndun við Mette Frederiksen, leiðtoga Jafnaðarmanna, nema hún fallist á að ræða við fulltrúa borgaraflokkanna. Flokkur Rasmussen er í lykilstöðu við stjórnarmyndun. Erlent 10. apríl 2026 13:37
Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Ný landsstjórn Færeyja hyggst hefja viðræður við ríkisstjórn Danmerkur um að Færeyingum verði tryggður sjálfsákvörðunarréttur í öllum málum sem varða Færeyjar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Þórshöfn í dag þar sem oddvitar kynntu samstarfssáttmálann. Erlent 9. apríl 2026 21:49
Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Víðtækar pólitískar málamiðlanir voru nauðsynlegar, sagði Beinir Johannesen, nýr lögmaður Færeyja, á blaðamannafundi í Þórshöfn laust fyrir hádegi. Þar kynntu formenn flokkanna þriggja, sem mynda nýja landsstjórn í Færeyjum, stjórnarsáttmálann sem ber fyrirsögnina „Ábyrgð, stöðugleiki og breið samstaða“. Erlent 9. apríl 2026 11:51
Dönsk þyrla með franskri herflutningavél til Íslands Óvenjuleg heræfing fór fram á um páskana í samstarfi danska og franska hersins. Frönsk herflutningavél ferjaði þá danskar herþyrlur milli Danmerkur og Íslands. Verkefnið reyndist krefjandi og þurfti útsjónarsemi til að koma þyrlunum í flutningavélina. Miðað við mælistærðir eru þær of stórar til að rúmast um borð, jafnvel þótt spaðarnir séu teknir af. Innlent 8. apríl 2026 13:39
Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave „Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgisson, skipstjóri Ásgríms Halldórssonar, nýs uppsjávarskips, sem er í smíðum á Skagen í Danmörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jótland á páskadag. Innlent 7. apríl 2026 12:32
Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði Þingflokkur danska Borgaraflokksins er orðinn helmingi smærri eftir að tveir af fjórum þingmönnum flokksins hafa ýmist verið reknir eða sagt sig úr flokknum. Þriðji flokksmaður íhugar einnig afsögn úr flokknum, en formaðurinn er sakaður um alræði í flokknum. Erlent 5. apríl 2026 14:11
Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq Minerals segir að ef Ísland, Færeyjar og Grænland semji um fríverslunarsamning og sameini krafta sína séu þau í afar sterkri samningsstöðu gagnvart Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Norður-Atlantshaflöndin skipti nú heiminn máli og það eigi þau að nýta sér fram í rauðan dauðann. Innlent 2. apríl 2026 12:56
Telur að múslimar geti ekki verið Svíar Leiðtogi sænska fjarhægriflokksins Svíþjóðardemókrata segir að trúaðir múslimar geti ekki talist sænskir. Nýkjörinn þingmaður í Danmörku sætir harðri gagnrýni fyrir að efast um þjóðerni talskonu annars flokks. Erlent 31. mars 2026 15:08
Uppnám í bláu blokkinni eftir dönsku kosningarnar Tveir nýkjörnir þingmenn úr röðum bláu blokkarinnar svonefndu í Danmörku voru reknir úr flokkum sínum vegna hneykslismála um helgina. Einn leiðtoga hennar segir út um bláu blokkina. Stjórnarmyndunarviðræður halda áfram eftir helgarfrí á morgun. Erlent 30. mars 2026 14:25
Hera verður ástkona JFK Íslenska leikkonan Hera Hilmarsdóttir mun leika Ingu Arvad, danskan blaðamann sem átti í ástarsambandi við JFK, í nýrri þáttaröð um uppgang Kennedy-fjölskyldunnar á síðustu öld og hvernig John F. Kennedy komst úr skugga eldri bróður síns. Bíó og sjónvarp 30. mars 2026 13:04
„Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Þrír Bandaríkjamenn með tengsl við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, voru í fyrra sagðir undir eftirliti dönsku leyniþjónustunnar. Voru þeir sakaðir um að eiga í eins konar leynilegri áróðursherferð í Grænlandi og leggja grunninn að mögulegri yfirtöku Bandaríkjanna á eyjunni, eins og Trump hefur ítrekað talað um. Erlent 30. mars 2026 10:37
Boðar til viðræðna við sex flokka Mette Frederiksen, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, hefur boðið fulltrúum sex flokka til fyrstu umferðar stjórnarmyndunarviðræðna eftir þingkosningar sem voru haldnar í Danmörku á þriðjudag. Viðræðurnar eiga að hefjast á morgun. Erlent 26. mars 2026 14:50
Færeyingar tvístígandi fyrir aðrar kosningarnar á þremur dögum Um fimmtungur kjósenda hafði ekki gert upp hug sinn í síðustu skoðanakönnun sem var gerð fyrir kosningar til færeyska lögþingsins sem fara fram í dag. Færeyingar kusu sér fulltrúa á danska þinginu fyrr í vikunni. Erlent 26. mars 2026 10:21
Frederiksen fær umboð til stjórnarmyndunar Mette Frederiksen, formaður Sósíaldemókrata í Danmörku, hefur fengið umboð frá danska konunginum til að ganga til ríkisstjórnarviðræðna. Erlent 25. mars 2026 16:47
Allt velti á Rasmussen Prófessor í stjórnmálafræði segir framtíð ríkisstjórnar Dana velta á hvað formaður Moderaterne gerir á fundi konungs nú eftir hádegi. Síðasti forsætisráðherra sé í sterkri stöðu vegna umræðu um öryggismál í Danmörku. Erlent 25. mars 2026 12:06
Vill halda áfram sem forsætisráðherra Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, segist vilja halda áfram sem forsætisráðherra landsins, þrátt fyrir að flokkurinn hafi tapað tólf þingsætum í þingkosningunum sem fram fóru í gær. Erlent 25. mars 2026 08:06
Biðlar til Løkke að mynda með sér miðhægristjórn Hvorki rauða né bláa blokkin náði hreinum meirihluta í þingkosningunum í Danmörku. Rauða blokkin fékk 84 þingsæti en sú bláa fékk 77. Moderaterne-flokkur Lars Løkke Rasmussen fékk fjórtán sæti og er í lykilstöðu fyrir stjórnarviðræður, sem gætu reynst flóknar en Troels Lund Poulsen, leiðtogi Venstre, hefur útilokað áframhaldandi ríkisstjórnarsamstarf með Sósíaldemókrataflokki Mette Frederiksen. Erlent 24. mars 2026 23:34