Lifir grenitréð í Ölfusá af krapastífluna? Mjög vel er fylgst með ástandinu í Ölfusá vegna stórrar krapastíflu við Ölfusárbrú og Selfosskirkju. Lögreglan notar meðal annars dróna til að fylgjast með ánni. Heimamenn hafa miklar áhyggjur af grenitré í kletti í ánni, hvort áin eigi eftir að skemma það eða ekki. Innlent 2. desember 2024 20:59
Lögreglan fylgist vel með ástandinu í Ölfusá Lögreglan á Suðurlandi fylgist grannt með stöðunni í Ölfusá vegna krapastíflu í ánni á milli Ölfusárbrúar og Selfosskirkju. Fólk er beðið að sýna sérstaka varúð við ána en vatn var farið að flæða upp að og yfir göngustíga við ánna í gær. Innlent 2. desember 2024 13:05
„Elstu menn muna vart eftir svo miklum ís“ Vatn er farið að flæða yfir göngustíga við Ölfusá vegna ís- og krapamyndunar og er fólk beðið að sýna varúð. Lögreglan fer í reglulegar eftirlitsferðir um svæðið til að fylgjast með þróuninni. Innlent 1. desember 2024 21:44
Vatnsstaðan ekki verið hærri frá flóðinu 2006 Vatnsyfirborð Ölfusár hækkar og hækkar vegna klakastíflu sem hefur myndast í henni. Hækkunina má sjá myndrænt á myndum þar sem klakinn nálgast grenitré sem stendur á toppi Jórukletts í miðri ánni. Innlent 1. desember 2024 19:43
Ölfusá orðin bakkafull af ís Vatnsyfirborð Ölfusár heldur áfram að hækka vegna klakastíflunnar sem hefur myndast í henni. Farvegurinn er nú sagður bakkafullur af ís og vatn komið yfir gróður nærri Hótel Selfossi. Innlent 30. nóvember 2024 11:09
Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Ís er farinn að hrannast upp aftur í farvegi Ölfusár neðan og við Selfoss. Vegna stíflunnar er vatnshæð árinnar komin upp í fjóra metra og hefur ekki verið hærri síðan árið 2020. Innlent 29. nóvember 2024 20:16
Óbreytt skólahald í Sunnulækjarskóla eftir helgi Nemendur í 5. til 10. bekk í Sunnulækjarskóla á Selfossi gátu ekki mætt í skólann í morgun vegna vatnsleka, sem varð á þeirra svæði í nótt. Slökkviliðið sá um hreinsunarstarf í morgun en reiknað er með að skólastarf verið með óbreyttu sniði eftir helgi. Innlent 29. nóvember 2024 13:33
Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Kostnaður við byggingu nýs fangelsis í landi Stóra-Hrauns er áætlaður um sautján milljarðar króna. Fangelsið á að koma í stað Litla-Hrauns og geta hýst hundrað fanga með möguleika á að bæta við 28 afplánunarrýmum síðar. Innlent 29. nóvember 2024 07:00
Krapastífla hefur myndast í Ölfusá við Selfoss Mikill ís er í Ölfusá við Selfoss í kjölfar kuldatíðar síðustu daga, ekki síst við Selfosskirkju og Selfossbæina. Innlent 25. nóvember 2024 14:32
Lyftistöng fyrir samfélagið Það er ekki á hverjum degi sem tvö stór framkvæmdaverkefni eru kynnt á svæðinu okkar á sama deginum. Hvað þá í sama sveitarfélaginu, en sá dagur var 20.nóvember þegar tekin var skóflustunga og framkvæmdaverkefni kynnt fyrir yfir 30 milljarða á næstu fjórum árum í Árborg. Skoðun 24. nóvember 2024 13:17
Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira Mikil eftirspurn er eftir íbúðum á Suðurlandi og er verð á nýjum íbúðum í Ölfusi, Hveragerði og Árborg að nálgast sama verð og á nýjum íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. Í Árborg er nú tvö þúsund og fimm hundruð íbúðir í byggingu eða í deiliskipulagsferli og aðrar tvö þúsund íbúðir eru á teikniborðinu. Innlent 23. nóvember 2024 15:03
Af skynsemi Vegagerðarinnar Ölfusárbrú sem kostar allt að fimm sinnum meira en góð klassísk brú er sögð skynsöm fjárfesting. Með síauknum þunga eru nú færð fyrir því rök í löngu máli - korter í kosnignar - að 18 milljarða verkið skuli hafið sem fyrst. Skoðun 23. nóvember 2024 11:02
Nýir eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi Mæðgurnar og eigendur Pylsuvagnsins á Selfossi þær Ingunn Guðmundsdóttir og Þórdís Sólmundsdóttir hafa selt pylsuvagninn, sem stendur við Ölfusárbrú. Nýju eigendurnir eru þau Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, fyrrverandi bæjarstjóri í Árborg og núverandi bæjarfulltrúi og Snorri Sigurðarson, athafnamaður. Þau taka við rekstrinum 1. janúar 2025. Kaupverð er trúnaðarmál. Viðskipti innlent 22. nóvember 2024 14:59
Davíð Lúther og Linda selja sælureitinn með gullfiskum Davíð Lúther Sigurðarson, framkvæmdastjóri veitinga- og afþreyingastaðarins Oche, og Linda Björk Hilmarsdóttir, markþjálfi og verslunareigandi, hafa sett sælureitinn sinn við Tjarnabyggð á Selfossi á sölu. Ásett verð er 117, 9 milljónir. Lífið 21. nóvember 2024 09:03
Vilja afnema álag á útsvar í Árborg á næsta ári Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2025 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í dag. Þar var ákveðið að lækka útsvarsprósentuna í 14,97 prósent og álagið afnumið. Frá þessu er greint í frétt á vef sveitarfélagsins. Viðskipti innlent 20. nóvember 2024 22:53
Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar Ölfusárbrúar Um 150 manns munu fá vinnu við smíði nýrrar brúar yfir Ölfusá við Selfoss. Fyrsta skóflustungan af brúnni var tekin í dag. Ráðherra segir að veggjaldið yfir brúnna verði eins og verðið á einni kókflösku. Innlent 20. nóvember 2024 22:03
Ein sleppur en mæðgurnar skulda tugi milljóna Dómur í umfangsmiklu skattalagabrotamáli á hendur þremur konum gekk í gær. Ein þeirra gat sýnt fram á að himinháar greiðslur frá spænskum auðjöfri hafi getað verið lán og var því sýknuð. Mæðgur gátu það hins vegar ekki og voru sektaðar um á sjönda tug milljóna. Innlent 20. nóvember 2024 16:59
Fyrsta skóflustungan að nýrri Ölfusárbrú Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra tók fyrstu skóflustunguna að nýrri Ölfusárbrú í dag. Þá var undirritaður verktakasamningur í Golfskálanum á Selfossi. Innlent 20. nóvember 2024 16:39
Ný Ölfusárbrú – skynsamlegt val fyrir framtíðina Í dag eru stór tímamót í sögu samgangna á Suðurlandi þegar fyrsta skóflustunga verður tekin að nýrri Ölfusárbrú sem mun bæta lífsgæði, auka umferðaröryggi og greiða fyrir flæði í einu af lykilsamgöngusvæðum landsins. Skoðun 20. nóvember 2024 12:32
Fyrsta skóflustunga tekin þótt enn eigi eftir að hanna brúna Ein stærsta fréttin frá lokadegi Alþingis í dag er að smíði nýrrar Ölfusárbrúar var tryggð, verkefni sem áætlað er að kosti 17,9 milljarða króna. Skrifað verður undir verksamning á miðvikudag og drifið í að taka fyrstu skóflustungu, þótt enn eigi eftir að hanna brúna og langt sé í upphaf jarðsvegsvinnu. Innlent 18. nóvember 2024 21:43
Braut bílrúðu með hnefanum og réðst á ökumanninn Karlmaður hefur hlotið 45 daga fangelsisdóm í Héraðsdómi Suðurlands fyrir að fremja líkamsárás og eignaspjöll á Selfossi í september 2022. Innlent 18. nóvember 2024 15:13
Fyrsta skóflustunga að Ölfusárbrú á miðvikudag Framkvæmdir við Ölfusárbrú geta hafist eftir að Alþingi samþykkti í dag nauðsynlega lagabreytingu sem tryggir grundvöll fyrir fjármögnun brúarinnar og vegtenginga. Undirbúningur verksins er kominn vel á veg. Innlent 18. nóvember 2024 14:44
„Eins og við séum gleymd, bara einhver skóli úti á landi“ Fulltrúi nemenda í Fjölbrautarskóla Suðurlands segir þá ósátta við útfærslu Kennarasambandsins á verkfalli sinna félagsmanna. Skólinn hefur verið eini framhaldsskólinn í verkfalli hingað til. Nemendur sjá ekki fyrir sér að komast í skólann fyrir áramót. Innlent 17. nóvember 2024 12:23
Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi Konur í Kvenfélagi Selfoss hafa haft í nógu að snúast síðustu vikurnar við saumavélarnar sínar því þær tóku að sér að sauma fjölnota lyfjapoka undir lyfjabox fyrir Apótek Suðurlands, allt úr endurunnu efni. Innlent 16. nóvember 2024 14:05
Ný Ölfusárbrú – af hverju svona brú? Fáir efast um mikilvægi þess að byggja nýja brú yfir Ölfusá, vegna vaxandi umferðar og umferðartafa í gegnum Selfoss en ekki síður vegna ástands núverandi brúar sem orðin er tæplega 80 ára gömul og ekki hönnuð fyrir það umferðarálag sem á henni er nú. Skoðun 12. nóvember 2024 17:16
Hrafnar opna lokaðan póstkassa eins og ekkert sé Nokkrir hrafnar hafa gert sér að leik að opna póstkassa á sveitabæ í Árborg og tekið öll gluggaumslögin í kassanum og rifið þau niður eða farið með þau eitthvað í burtu. Þeir neita þó að borga reikningana í umslögunum. Innlent 11. nóvember 2024 20:05
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11. nóvember 2024 14:51
Sterkar systur á Selfossi keppa á heimsmeistaramóti Þrjár systur á Selfossi slá ekki slöku við þessa dagana því þær eru að æfa sig á fullum krafti fyrir heimsmeistaramót í kraftlyftingum þar sem þær munu keppa fyrir Íslands hönd. Mamma þeirra er dugleg að fylgja þeim á æfingar og hvetja þær áfram. Innlent 10. nóvember 2024 20:04
Um 60 kennarar hjá Fræðsluneti Suðurlands Um eitt þúsund og fimm hundruð manns sækja símenntun hjá Fræðsluneti Suðurlands á hverju ári en helmingur af þátttakendum eru erlendir íbúar búsettir á Suðurlandi. Fræðslunetið, sem fagnar nú tuttugu og fimm ára afmæli er með um sextíu kennara á sínum snærum. Innlent 9. nóvember 2024 14:04
Verkfall kennara skollið á Kennarar í níu skólum víða um land hafa nú lagt niður störf. Um er að ræða fjóra leikskóla, þrjá grunnskóla, einn framhaldsskóla og einn tónlistarskóla. Búið er að samþykkja verkföll í fjórum skólum til viðbótar sem hefjast í nóvember. Innlent 29. október 2024 00:01