Innlent

Dómurinn skoðaður og farið yfir fram­haldið í Banda­ríkjunum

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf.
Hádegisfréttir verða sagðar á Bylgjunni klukkan tólf. vísir/bylgjan

Georgios Ntentes hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana að Skjólbraut í Kópavogi í nóvember 2025. Rýnt verður í niðurstöðu dómsins í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12.

Framkvæmdir við sautján hæða hótelturn við Skúlagötu hafa verið stöðvaðar. Félagið sem á bygginguna skuldaði rúma tíu milljarða króna um síðustu áramót. Arion banki segir unnið að lausn málsins.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 4. október 2026

Demókrataflokkurinn hefur svo gott sem tryggt sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins eftir kosningar sem margir álíta dóm á störf Donalds Trump forseta. Prófessor í stjórnmálafræði, segir niðurstöður þingkosninganna í Bandaríkjunum frekar afhroð Repúblikana í stað sigurs Demókrata.

Dóttir Írisar Helgu Jónatansdóttur sagði bróður sambýliskonu eins brotaþola í máli móður hennar hafa ráðist inn á heimili þeirra og hótað að drepa þær. Barnsfaðir Írisar Helgu vildi ekki tjá sig þegar hann var kallaður sem vitni í morgun.

Iceland Airwaves hófst í morgun þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti tónlistarhátíðina formlega af stað á opnunarhátíð hennar á hjúkrunarheimilinu Grund.

Í sportinu fjöllum við um leik handboltalandsliðsins í kvöld og förum yfir stuðið í Meistaradeild Evrópu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×