Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 3. nóvember 2026 19:17 Garpur er meðal brotaþola í máli Írisar Helgu. Vísir Garpur I. Elísabetarson bar vitni við aðalmeðferð Írisar Helgu Jónatansdóttur en hún er ákærð fyrir að hafa beitt hann, tvo aðra karlmenn og fjölskyldur þeirra umfangsmiklu umsáturseinelti. Málið hafi haft mikil áhrif á hans líf en hann upplifði kvíða og félagsfælni í fyrsta skipti á ævinni eftir að málið kom upp.
Aðalmeðferð hélt áfram í máli Írisar Helgu í dag og báru allir brotaþolar vitni fyrir dómara. Þar á meðal voru Garpur og dóttir hans en áður en þau mættu bar Sölvi Guðmundsson vitni ásamt dóttur sinni og þriðji brotaþolinn auk fjölskyldu hans. „Við kynnumst í lok mars árið 2024 á Instagram og erum að spjalla þar,“ sagði Garpur í byrjun vitnisburðar síns. „Hún kemur heim til mín og við sofum saman. Svo næstu daga höldum við áfram að tala saman og það er allt í góðu,“ sagði Garpur. Íris Helga svaraði spurningum fyrir dómi á fyrsta degi aðalmeðferðarinnar á mánudag og þar neitaði hún því að þau hefðu sofið saman. Þau hefðu einungis hist einu sinni á meðan Garpur stjórnaði beinni útsendingu Bakgarðshlaupsins. Nokkrum dögum eftir að Garpur sagði að þau hefði hist hafi hann byrjað að fá skilaboð á Facebook frá aðgöngum sem voru að hans mati augljóslega falskir aðgangar. Hann sagðist hafa haldið að um væri að ræða „Nígeríusvindl“ og ekkert kippt sér upp við þau. Á þeim tímapunkti hafi þau Íris áfram átt í góðum samskiptum í gegnum netið, hún komið með afmælisgjöf og skilið hana eftir fyrir utan heimili hans. Þá hafi þau verið góðir vinir og hann þakkað fyrir sig. „Ég byrja að fá á Instagram og Facebook fleiri skrýtin skilaboð. Ég pósta á Instagram því það eru svona aðgangar líka byrjaðir að senda á fólk í kringum mig og bið fólk um að láta mig vita.“ Þeir sem eiga að hafa fengið skilaboð voru meðal annars barnsmóðir hans og fyrrverandi kærasta. Þá hafi hann fengið fregnir af öðrum ónefndum manni sem var einnig að vara við sömu aðgöngum og Garpur sjálfur. Varð óttasleginn Í maí var Garpur síðan að vinna við útsendingu á Bakgarðshlaupi. „Það kemur starfsmaður til mín í útsendingarbíl með poka merktum mér með umslagi og það er frá Írisi, eitthvað heimabakað dót. Ég skoðaði pokann og fannst það óþægilegt og skildi ekki alveg,“ sagði hann. Nokkrum dögum síðar spurði kunningi hans hvort Garpur þekkti Írisi Helgu og vildi kunninginn meina að hún stæði á bak við skilaboðin. Sömuleiðis hafi Garpur frétt af málum hinna brotaþola málsins. „Ég verð hræddur. Ég set upp myndavél heima hjá mér, ég átta mig ekkert á hvað er að fara að gerast eða hvort eitthvað gerist.“ Hafði ekki heyrt um fyrirhugaða kæru Fyrir dómi játaði Íris að hafa óskað eftir tíma í kærumóttöku þar sem hún sakaði Garp um gróft kynferðislegt ofbeldi. Hún tók samt fram að nær samstundis hafi hún sent tölvupóst og dregið ásakanirnar til baka en í skýrslutöku nokkrum vikum síðar hélt hún sig við söguna um kynferðisofbeldið. Garpur sagðist ekki hafa fengið að heyra af þessari fyrirhuguðu kæru fyrr en málsgögnin voru tekin saman. Sjá frétt hér: Garpur sagðist einnig hafa fengið fregnir af því að birt hafi verið frásögn þriggja barna móður á stefnumótasíðu á Facebook þar sem hún lýsti kynferðisofbeldi tveggja manna og átti lýsing annars mannsins vel við Garp. Seinna meir hafi einnig verið birtar myndir af honum í hinum ýmsu Facebook-hópum og hann sakaður um að vera kynferðisbrota- og ofbeldismaður. Garpur sagðist þá hafa heyrt sögur af því að Íris Helga væri að segja samstarfsfólki sínu að hann væri maðurinn hennar og dóttir Garps væri dóttir hennar. „Í kjölfarið panta ég tíma í kærumóttöku sem ég fæ í lok júní 2024 þar sem lögreglan ráðleggur mér frá því að kæra. Hún segir að þetta verði langt og leiðinlegt og maður vilji ekki vera að standa í svona, þannig að ég sleppi því.“ Dóttir Garps tók undir þessa frásögn í sínum vitnisburði og bætti við að Íris Helga ætti að hafa sagt að strákar í bekknum væru að senda henni nektarmyndir. Allt í háaloft eftir statusinn „Það má segja að áreitið hafi þá byrjað fyrir alvöru,“ sagði Garpur og vísaði þar í tímann eftir að hann birti færslu þar sem hann sagði opinberlega að Íris Helga væri að áreita sig. Hann hafi fengið send alls konar TikTok-myndbönd þar sem birtar voru myndir af honum og dóttur hans. Þar hafi hann verið sakaður um alls konar ofbeldi og birt skjáskot af samtölum hans og Írisar Helgu. Réttargæslumaður Garps benti sérstaklega á að enginn hafi haft aðgang að umræddum skilaboðum fyrir utan hann sjálfan og Írisi. Verjandi Írisar færði rök gegn því og sagði hana hafa sent gögnin á blaðamenn sem hún hafi rætt við vegna málsins. Gögnin hafi verið birt opinberlega og því öllum aðgengileg. Verjandinn spurði Garp einnig sérstaklega út í tengsl hans við aðra brotaþola sem Garpur sagði að væru engin. Þeir hefðu hafið samskipti eftir að Íris á að hafa byrjað að hrella hann. Hann vildi ekki meina að upplifun hinna mannanna tveggja hefði litað hans skoðun og var Garpur handviss um að Íris væri á bak við myndbirtingarnar. Felldu tár Dóttir Garps bar einnig vitni og sagðist hafa séð áðurnefnd TikTok-myndbönd. „Þetta voru TikTok-aðgangar þar sem er talað mjög óþægilega og kynferðislega um mig og pabba minn,“ sagði hún og brast í grát. Garpur fylgdist með vitnisburði dóttur sinnar og virtist finnast það mjög erfitt þar sem hann felldi tár. Dóttirin sagði að Íris Helga hefði sjálf reynt að fylgja henni á samfélagsmiðlum, sent á yfirmann hennar og vinkonur alls konar skilaboð. Á endanum hefði hún hætt í vinnu sinni í verslunarmiðstöð af ótta við að Íris Helga myndi mæta þangað. Þegar vitnisburði hennar lauk féllust feðginin í faðma fyrir utan dómsalinn. Vill ljúka þessu Garpur lýsti því að mikill ótti hefði fylgt þessu máli og hann væri að upplifa kvíða í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að starfa við það að koma fram hræðist hann það og sé orðinn heldur félagsfælinn. „Það er rosa óþægilegt að það sé verið að dreifa svona óþægilegu um mann. Það skiptir engu máli hver sannleikurinn er ef þetta fer á nógu marga,“ sagði hann. „Ég er bara rosa til í að þetta sé búið og ég þurfi aldrei að hugsa um þetta aftur.“ Dóttir Garps lýsti einnig mikilli vanlíðan vegna málsins, bæði hjá sér sjálfri og hjá föður sínum. Það hefði verið afar erfitt að fylgjast með honum ganga í gegnum þetta. Þau séu nú með umfangsmikið öryggismyndavélakerfi fyrir utan heimili sitt „Ég er bara hrædd um að hún muni brjótast inn.“
Mál Írisar Helgu Jónatansdóttur Dómsmál Reykjanesbær Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira