Fótbolti

Viktor Bjarki var í byrjunar­liði FCK í öruggum sigri

Andri Broddason skrifar
Viktor Bjarki Daðason náði ekki að skora þrátt fyrir að vera í byrjunarliðinu.
Viktor Bjarki Daðason náði ekki að skora þrátt fyrir að vera í byrjunarliðinu. Getty/Kristian Tuxen Ladegaard

FC København spilaði bikarleik í dag gegn Aarhus Fremad í dönsku bikarkeppninni í fótbolta. Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliði FCK sem vann leikinn 3-0.

Viktor Bjarki var þó ekki eini Íslendingurinn sem byrjaði leikinn því Ólafur Dan Hjaltason byrjaði í vörninni fyrir Aarhus Fremad. Ólafur Dan og félagar áttu erfiðan leik þar sem liðið er í fimmta sæti í B-deild Danmerkur.

William Clem kom FCK í forystuna strax á 20. mínútu og Mohamed Elyounoussi bætti öðru marki við 20 mínútum síðar. Staðan var 2-0 í hálfleik og fengu heimamenn í Aarhus Fremad ekki mikið af færum.

Til að bæta gráu ofan á svart þá skoraði Alexander Ludwig, félagi Ólafs Dan í vörninni, sjálfsmark og innsiglaði þannig 3-0 sigur FCK sem heldur áfram í fimmtu umferð bikarkeppninnar í Danmörku.

Viktor Bjarki Daðason var tekinn af velli á 65. mínútu en Gunnar Orri Olsen kom inn á fyrir FCK þegar aðeins fimmtán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Með sigrinum er FCK komið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar en ekki er búið að draga hverjir mæta hverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×