Enski boltinn

Verða án Sesko fram í janúar

Andri Broddason skrifar
Benjamin Sesko spilaði gríðarlega vel eftir að Michael Carrick tók við Manchester United en mun ekki geta spilað fyrr en í janúar.
Benjamin Sesko spilaði gríðarlega vel eftir að Michael Carrick tók við Manchester United en mun ekki geta spilað fyrr en í janúar. Getty/Richard Sellers

Það virðast ekki margar góðar fréttir berast úr herbúðum Manchester United þessa stundina en nóg virðist vera af slæmum fréttum. Nú bárust fregnir að Benjamin Sesko, framherji liðsins, væri frá vegna meiðsla þangað til í janúar.

Meiðsli í sköflungnum hafa angrað Sesko síðan á síðasta tímabili en svo virðist sem hann hafi átt erfitt með að jafna sig almennilega á þeim meiðslum. Samkvæmt The Athletic hefur læknateymi Manchester United sagt að ef Sesko eigi að ná fullum bata þurfi hann að hvíla þangað til í janúar.

Síðasti leikur sem Sesko spilaði var 16. september þegar Manchester United mætti Brighton í enska deildarbikarnum. Meiðslin eru frá síðasta tímabili en þau versnuðu í leik gegn Liverpool þegar Sesko datt á auglýsingaskilti eftir samstuð við Ibrahim Konate, leikmann Liverpool.

Þetta er óvanalegt fyrir Sesko þar sem hann hafði verið nánast laus við meiðsli allan sinn feril áður en hann kom til Manchester United. Hann hefur nú verið meira meiddur síðan hann kom til Manchester United en öll sex árin sem hann hefur verið atvinnumaður fyrir það.

Sesko er þó að gera allt sem hann getur til að huga að heilsunni þar sem hann fer daglega í jóga og gerir allar þær æfingar sem hann getur án þess að hafa áhrif á sköflunginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×