Neytendur

Núna er hægt að fram­vísa lófanum til að komast í ræktina

Oddur Ævar Gunnarsson og Jakob Bjarnar skrifa
Janne Takalo forstjóri og stofnandi finnska tæknifyrirtækisins Zeesam sýndi Jakobi nýju tæknina í World Class.
Janne Takalo forstjóri og stofnandi finnska tæknifyrirtækisins Zeesam sýndi Jakobi nýju tæknina í World Class. Vísir/Sigurjón

Forsvarsmenn líkamsræktarkeðjunnar World Class hafa hafið innleiðingu á nýrri finnskri tækni sem gerir áskrifendum kleift að komast inn á líkamsræktarstöð með því að framvísa lófanum. Búnaðurinn mun að endingu leysa af hólmi augnskanna en tæknin var tekin í notkun í World Class Laugum í dag þangað sem Jakob Bjarnar Grétarsson fréttamaður kíkti á vettvang.

„Zeesam er lífauðkenniskerfi og tæknin okkar gerir okkur kleyft að auðkenna þig út frá æðunum í lófanum þínum,“ segir Janne Takalo forstjóri og stofnandi finnska tæknifyrirtækisins Zeesam. Hann segir tæknina einstaklega næma og segir hana mun öryggari en fingrafaraskannar.

„Það er auðveldlega hægt að taka afrit af fingrafarinu þínu og þar með ekki hægt að treysta því. Þú getur ekki afritað æðarnar og það er ekki hægt að nota þetta til annars eftirlits auk þess sem þetta er fjögurhundruð sinnum nákvæmara en andlitsgreining.“

Janne segir Ísland fullkomið land til að nýta tækni á borð við þessa. Íslendingar séu sólgnir í að prófa nýja tækni sem auðveldi þjónustu.

Horfa má á viðtalið í heild sinni hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×