Leik lokið: KR-Breiðablik 8-3 | Aron bætti marka­metið

Katla Margrét Jónsdóttir skrifar
KR - Breiðablik
KR - Breiðablik vísir/Guðmundur

KR-ingar kláruðu ótrúlegt markatímabil sitt í dag með því að brjóta níutíu marka múrinn í 8-3 sigri á Breiðabliki í Vesturbænum í lokumferð Bestu deildar karla í fótbolta.

Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk og bætti með því markametið þar sem hann endar mótið með 22 mörk . KR-liðið endar tímabilið með 93 mörk í 27 leikjum. KR-ingurinn Sigurður Breki Kárason átti ótrúlegan leik, skoraði tvö mörk, gaf fjórar stoðsendingar og skoraði sjálfsmark.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira