Fótbolti

Er staða Alexander-Arnold innan liðsins að versna?

Andri Broddason skrifar
Trent Alexander-Arnold hefur ekki fundið sig síðan hann gekk til Real Madrid.
Trent Alexander-Arnold hefur ekki fundið sig síðan hann gekk til Real Madrid. Ion Alcoba Beitia/Getty Images

Gengi Trent Alexander-Arnold hjá spænska stórveldinu Real Madrid hefur ekki verið jafn gott og hann óskaði. Þrátt fyrir að hafa verið hjá félaginu í meira en ár virðist hann vera að færast aftar í forgangsröðinni í vali á hægri bakverði.

Eftir að Jose Mourinho tók við sem þjálfari Real Madrid hefur Denzel Dumfries oftast verið valinn aðalhægri bakvörður liðsins. Dumfries kom til félagsins í sumar og ef hann er fjarverandi er ítrekað búið að setja Federico Valverde í hægri bakvörðinn.

Aðalstaða Valverde er á miðjunni en Mourinho virðist treysta honum frekar í bakverðinum heldur en Alexander-Arnold. Margir stuðningsmenn Liverpool voru óánægðir með Alexander-Arnold þegar tilkynnt var að hann færi til Real Madrid. Hann er uppalinn hjá Liverpool og var því að fara frá uppeldisfélaginu sínu þar sem hann hafði orðið Englandsmeistari og unnið Meistaradeild Evrópu.

Alexander-Arnold er ekki eini leikmaðurinn sem hefur átt erfitt með að finna sig inni á vellinum en það hafa verið miklar sviptingar hjá Real Madrid. Þrír þjálfarar hafa stjórnað liðinu síðan Englendingurinn gekk til félagsins og virðist enginn þjálfari hafa fundið almennilegt leikplan með Alexander-Arnold inni á vellinum.

Fleiri átt slæmt gengi

Vinicius Jr. hefur einnig átt í erfiðleikum með að finna taktinn og er hann aðeins búinn að skora eitt mark í átta leikjum. Auk þess hefur hann fengið rautt spjald sem hefur ekki hjálpað honum. Vinicius hefur spilað það illa og með breyttu útliti hafa kenningar sprottið upp um hvort að þetta sé raunverulega Vinicius að spila.

Real Madrid sem heild þarf að stíga upp þegar liðið mætir Barcelona í spænsku úrvalsdeildinni um helgina. Barcelona er enn með fullt hús stiga og þarf því Real Madrid sigur til þess að halda í við toppliðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×