Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar 20. október 2026 11:32 Ég á nemanda í 10. bekk. Í byrjun námsferils hennar fékk hún hvorki námsmat í bókstöfum né tölustöfum. Ég viðurkenni fúslega að mér fannst ekkert ægilega greinilegt að meta námsárangur hennar þegar námsmatið var byggt upp á litakóða. Þegar fór að síga á seinni hluta grunnskólans fór hún að fá bókstafi. Það tók okkur báðar tíma að aðlagast þeirri einkunnagjöf, sem mér fannst flókin, enda sjálf alin upp við tölustafi og einfaldara mat. Ég ræddi máið við umsjónarkennarann hennar sem útskýrði námsmatið vel fyrir mér og alla þá þætti sem kennarar væru að meta inn í einkunnirnar hennar. Ég öðlaðist traust á þessu mati og ekki síst kennurunum hennar, sem eru frábærir! 10. bekkingurinn minn er metnaðarfull, búin að ákveða að láta til sín taka í framtíðinni. Hún er búin að leggja fyrir sig hvaða menntaskóla hún vill fara í til að undirbúa sig fyrir háskólanám. Síðasta vetur spýtti hún verulega í og lærði daginn út og inn, því hún vildi ná í það minnsta B+ í öllum fögum til að komast inn í skólann sem hún telur mikilvægt að komast inn í að grunnskóla loknum. Framtíðarsýnin var skýr! Núna er dóttir mín í lausu lofti. Draumarnir í lausu lofti. Kennararnir hennar í lausu lofti. Ég er í lausu lofti. Hinir (um það bil) 4.500 nemendurnir í 10. bekk eru í lausu lofti og þeirra 9.000 foreldrar. Framhaldsskólarnir væntanlega í lausu lofti. ENGINN veit hvert Menntamálaráðherra ætlar með sínar nýsettu reglur um einkunnagjöf, sem hún er að setja í glansandi umbúðir. Hefði fagmanneskja verið að verki hefði hún kynnt sér kerfið sem kennarar hafa eytt síðustu árum í að aðlagast og byggja upp traust á. Hún hefði mögulega gert einhverjar breytingar á því kerfi, en þær breytingar hefðu verið UNDIRBÚNAR, ekki skellt á, gersamlega óundirbúið þegar 10. bekkingar og kennarar þeirra voru á leið í sumarfríi. Stórar breytingar kalla á góðan undirbúning og innleiðing á stórum breytingum tekur tíma. Það er á engan hátt eðlilegt að kasta til hendi (eða sleggju) við breytingar á námsmatskerfi grunnskólanna. Að einn einstaklingur geti gert breytingar sem þessar, sem virðast eingöngu keyrðar í gegn til að næra eigið egó! Henni finnst hún ekki þurfa að svara fyrirspurnum um málið eða útskýra. Ef hún væri að kenna útúrsnúninga og hroka væri það eðlilegt, en hún er MENNTAMÁLARÁÐHERRA! Framtíð unga fólksins okkar er í alvörunni háð hennar dyttlingum! Hvers eiga þau að gjalda?Ég, sem foreldri 10. bekkings, kalla eftir því að þessum breytingum verði afstýrt hið snarasta og 10. bekkingum leyft að klára sína skólagöngu með því námsmatskerfi sem þeir þekkja og hafa vanist síðustu árin. Ég hef ALDREI kallað eftir þeirri breytingu sem Menntamálaráðherra þykist vera að gera í kjölfar ákalls nemenda og foreldra, NÉ hefur dóttir mín gert það! Ég lýsi yfir algeru vantrausti á menntamálaráðherra og skora á yfirvöld að grípa inn í þetta hörmungarástand af festu. Þessi börn fá þetta skólaár ekki til baka! Kennurum landsins sendi ég alla mína samúð, ég veit að þeim finnst ekki gott að eiga að meta nemendur eftir vindátt. Höfundur er foreldri barns í 10. bekk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun