Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar 19. október 2026 19:02 Warren Buffett skrifaði í hluthafabréfi sínu vegna ársins 2007 að framsýnn kapítalisti viðstaddur fyrsta flugið í Kitty Hawk hefði gert síðari fjárfestum stóran greiða með því að skjóta Orville niður. Þetta var kaldhæðin lýsing á reynslu fjárfesta af atvinnugrein sem krefst sífellt mikils fjármagns en hefur oft skilað hluthöfum litlu. Fjárfestingar lífeyrissjóða í Play sýna að viðvörunin á enn erindi. United Silicon, kísilverið á Bakka og tilteknir sjóðir í stýringu GAMMA eru önnur dæmi um fjárfestingar sem hafa valdið verulegu tapi eða niðurfærslum. Verkefnin eru ólík, en kalla á sömu spurningu: Var áhættan rétt metin og eftirlitið nægilegt? Slæm útkoma sannar ekki ein og sér að ákvörðun hafi verið óskynsamleg. En hún kallar á skýringar. Það dugar ekki að benda á að tapið sé aðeins lítið hlutfall heildareigna sjóðsins. Lítið hlutfall af stórum sjóði getur verið ævisparnaður fjölda fólks. Fjárhæðin segir heldur ekkert um hvort ákvörðunin hafi verið vel undirbúin eða hvort brugðist hafi verið tímanlega við þegar forsendurnar breyttust. Lífeyrissjóðir eiga samanlagt rúman helming hlutafjár í Heimum samkvæmt hluthafalista félagsins frá 9. október. Fjárfesting í útleiguhúsnæði er annars eðlis en þátttaka í nýju flugfélagi eða uppbyggingu kísilvers. Hún er þó háð því að skuldsetning, rekstur og áhættustýring séu í lagi. Fullnægjandi tryggingavernd er þar grundvallaratriði. Nýleg frétt RÚV um Hæstaréttardóm vegna brunans að Miðhrauni 4 í Garðabæ gefur tilefni til spurninga um þann þátt. Þar hélt eigandi FF 11, sem átti húsið með dótturfélagi Heima, því fram að Heimar hefðu vanrækt tryggingar sínar. Í héraðsdóminum er jafnframt rakið tjónamat Verkíss þar sem vátryggingarfjárhæð eignarhluta Heima atvinnuhúsnæðis er talin lægri en raunverulegt verðmæti. Þar er lýst beitingu ákvæðis um hlutfallslegar bætur og miðað við að um 70,7% tjónsins séu bætt. Þetta gefur skýrt tilefni til að spyrja hvers vegna vátryggingarfjárhæðin hafi samkvæmt matinu verið of lág, hver hafi átt að yfirfara hana og hvernig eftirlitinu hafi verið háttað. Umfjöllunin staðfestir ekki sjálfstætt vanrækslu tiltekins stjórnanda. En hún er nægilegt tilefni til að krefjast svara. Ekki þarf að bíða eftir dómi um persónulega ábyrgð til að spyrja hvernig farið hafi verið með tryggingamál félagsins. Heimar eiga einnig Smáralind og margar fleiri fasteignir. Það segir ekkert eitt og sér um hvort tryggingavernd þeirra sé fullnægjandi. Það gerir hins vegar spurninguna um verklagið þeim mun mikilvægari: Hvernig tryggir félagið að vátryggingarfjárhæðir fylgi breytingum á eignunum og notkun þeirra? Hver sannreynir að það sé gert? Stjórn og framkvæmdastjórn Heima þurfa að svara fyrir rekstur félagsins. Lífeyrissjóðirnir þurfa sömuleiðis að gera grein fyrir því hvernig þeir sinna aðhaldi sem eigendur rúmlega helmings hlutafjárins. Hafa þeir kallað eftir skýringum á tryggingaverndinni og því sem fram kemur í tjónamati Verkíss? Hafa þeir kannað hvort ástæða sé til að yfirfara sambærileg atriði annars staðar í samstæðunni? Samkvæmt frétt RÚV er annað mál vegna brunans fyrir dómstólum, þar sem FF 11 krefur Heima um hundruð milljóna króna í skaðabætur vegna meintrar vanrækslu á brunavörnum eftir breytta notkun húsnæðisins. Ekki hefur verið dæmt um réttmæti þeirrar kröfu. Hið meinta gáleysi varðar þó einmitt kjarnann í starfsemi fasteignafélags: rekstur húsnæðis og brunavarnir þess. Það gefur sérstakt tilefni til að krefjast svara. Ef ekki er hægt að treysta á fagmennsku félagsins á því sviði sem það sérhæfir sig í, á hverju byggist þá traust lífeyrissjóðanna til þess? Falli veruleg greiðsluskylda á félagið og verði hún ekki bætt úr tryggingum getur það rýrt verðmæti fjárfestingar lífeyrissjóðanna. Það leiðir ekki sjálfkrafa til skerðingar lífeyrisréttinda minna. En tap sjóðanna minnkar eignirnar sem standa undir réttindum okkar og getur á endanum kallað á skerðingar. Mér hefur verið skylt að greiða í ýmsa þessara sjóða. Því hlýtur að fylgja krafa um skýringar á meðferð fjárins og virkt aðhald með þeim sem fara með það. Ég get ekki valið að bera enga áhættu. Ég á hins vegar að geta krafist þess að áhættan sé metin af alvöru og að brugðist sé við þegar eftirlit eða framkvæmd bregst. Ábyrgðin má ekki enda hjá sjóðfélaganum einum. Ef réttindi hans eru skert er tapið raunverulegt, þótt það hafi áður verið lítil prósenta í stóru eignasafni. Sá sem fer með fé annarra verður að þurfa að svara fyrir meðferð þess. Hver verður látinn gera það? Höfundur er lög- og viðskiptafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lífeyrissjóðir Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun