Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar 20. október 2026 09:30 Ég hef stundum verið hissa á því hvað ég er fljót að búast við hinu versta. Það er eins og hugurinn sjái sífellt hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum. Nýlega sat ég í biðsalnum á Akureyrarflugvelli þar sem borgarfulltrúar voru á leið heim úr vinnuferð. Það styttist í flugið þegar starfsmaður flugvallarins gekk til mín og spurði hvort ég væri Sanna Magdalena. Ég svaraði játandi og samtímis fóru allar viðvörunarbjöllur af stað í huga mér. Eitthvað alvarlegt hlyti að hafa gerst. Kannski hefði einhver nákominn mér lent í slysi og væri kominn á spítala. Svo var ekki. Starfsmaðurinn var einfaldlega að leita að samstarfsfélaga sem hafði ekki skilað sér á flugvöllinn og taldi að ég gæti hjálpað til. Í ljós kom að um misskilning í bókun var að ræða og allt leystist farsællega. Það var engin krísa í gangi. Daginn eftir gerðist eitthvað svipað. Vinkona mín sendi mér skilaboð og spurði hvort ég væri að horfa á Landsleikana. Ég vissi ekki hvað það var og hélt að hún væri að vísa til íþróttaviðburðar. Hugsanirnar fóru strax af stað. Kannski hefði leikmaður orðið fyrir kynþáttafordómum og eitthvað ljótt gerst í beinni útsendingu. Var vinkona mín að vekja athygli mína á því? Þegar ég kveikti á sjónvarpinu kom annað í ljós. Landsleikarnir eru spurningaþáttur á RÚV og vinkona mín hafði samband vegna þess að þar var verið að tala um mig og nafnið mitt. Aftur hafði ég búist við því versta. Í stöðugri viðbragðsstöðu Slík viðbrögð verða ekki til af sjálfu sér. Sem barn bjó ég við fátækt. Fyrir fólk sem hefur ekki upplifað fátækt getur verið erfitt að skilja hvað hún gerir við öryggiskennd manns. Fátækt er skortur á peningum og skortur á fyrirsjáanleika og skapar þannig óvissu um framtíðina. Við slíkar aðstæður vakna ákveðnar spurningar og verða stöðugur undirleikur í huga manns: Hvenær klárast peningarnir? Hversu lengi getum við búið hér? Hvað gerist ef eitthvað bilar? Hvernig eigum við að mæta óvæntum kostnaði? Börn sem alast upp við slíkar aðstæður læra snemma að öryggi er ekki sjálfgefið og að hlutirnir geta farið úrskeiðis á svipstundu. Þau læra það í gegnum tíða flutninga vegna húsnæðisóöryggis á leigumarkaði. Þau læra það þegar fresta þarf læknisheimsóknum, sleppa tómstundum og velja á milli nauðsynja þar sem peningarnir duga ekki fyrir öllu. Þegar heilinn leitar að hættunni Þegar maður lifir árum saman við óöryggi lærir heilinn að vera stöðugt á varðbergi. Hann skannar umhverfið og leitar að hættum áður en þær birtast. Þetta hefur verið kallað ofurárvekni, eða hypervigilance á ensku. Hún getur þróast hjá þeim sem hafa upplifað áföll eða langvarandi streitu. Heilinn er þá stöðugt í viðbragðsstöðu og á erfitt með að slaka á, jafnvel þegar aðstæður eru öruggar. Þegar ég las um þetta fannst mér ég þekkja lýsinguna. Kannski var ekki skrýtið að hugurinn minn fór strax í verstu mögulegu skýringuna þegar starfsmaður flugvallarins talaði við mig. Kannski var heilinn einfaldlega að gera það sem hann hafði lært að gera: að vera viðbúinn. Þetta er ákveðið varnarviðbragð. Ef maður býst við áfallinu fyrir fram þá er ef til vill hægt að dempa höggið ef það raungerist. Ég man til dæmis eftir því að hafa sem barn reynt að sannfæra móður mína um að við ættum alls ekki að eyða peningum fyrstu daga mánaðarins. Í mínum huga var lausnin rökrétt. Ef við byrjuðum strax á peningaleysi þá myndum við loksins eiga peninga út mánuðinn. Þarna birtist þessi hugsun, að reyna að búa sig undir vandann áður en hann birtist. Leið út úr óörygginu Þessi reynsla er persónuleg en ekki einstök. Þúsundir barna á Íslandi búa við fátækt og verja stórum hluta æsku sinnar við aðstæður þar sem óvissa ríkir um húsnæði, afkomu og grunnþarfir. Á Íslandi er mikill auður til staðar. Samt alast þúsundir barna upp í óöryggi. Misskiptingin sem er til staðar er ekki náttúrulögmál heldur afleiðing pólitískra ákvarðana um það hvernig auðnum er skipt. Þegar börn alast upp við fátækt eru afleiðingarnar ekki eingöngu fjárhagslegar. Óvissan sem fylgir getur tekið sér bólfestu í hugsanamynstrum, í líkamanum og því hvernig litið er til framtíðarinnar. Stundum birtist þessi óvissa sem hamfarahugsun í hversdagslegum kringumstæðum. Það sem virðist vera einstaklingsbundinn kvíði getur átt rætur í aðstæðum sem fólk hefur þurft að lifa við árum saman. Ef við viljum raunverulega útrýma fátækt verðum við að ræða ójöfnuð og auðsöfnun, skattleggja meira þau sem mest hafa og nýta þær tekjur til að byggja upp traust velferðarkerfi þar sem húsnæðisöryggi, heilbrigðisþjónusta og félagsleg samstaða er raunverulega til staðar. Alþjóðlegur baráttudagur gegn fátækt var 17. október og er haldinn ár hvert. Markmiðið hlýtur að vera að einn daginn verði hans ekki lengur þörf. Baráttan gegn fátækt snýst um að skapa samfélag þar sem fólk þarf ekki stöðugt að búa sig undir það versta. Samfélag þar sem fólk getur andað léttar, treyst umhverfi sínu og gengið að því vísu að grunnþarfir þess verði uppfylltar. Samfélag þar sem börn þurfa ekki að sjá hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum. Höfundur er borgarfulltrúi Vinstrisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sanna Magdalena Mörtudóttir Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun