Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Magnús Jochum Pálsson skrifar 16. október 2026 17:03 Frumburður og Skoffín frumsýndu tónlistarmyndbandið við lag sitt á túbusjónvarpi í Vikivaka. Tónlistarmaðurinn Frumburður frumsýndi tónlistarmyndband við lagið „Ég veit um stað“ með Skoffíni í sjoppunni Vikivaka í gær. Myndbandið var sýnt á túbusjónvarpi og verður áfram á samfelldri lúppu í sjónvarpinu alla helgina. „
Ég veit um stað“ er nýjasta lag Frumburðar (Orra Starrasonar) af samstarfsplötunni Helgi á Prikinu, sem er gefin út af vegum Sticky Records, en tónlistarmaðurinn Skoffín kemur einnig fram á laginu. Helgi á Prikinu samanstendur af sjö lögum með sjö ólíkum gestalistamönnum og kemur nýtt lag út í hverri viku og tónlistarmynband með hverju þeirra. Í síðustu viku kom út nostalgískt tónlistarmyndband við lagið „Fokkamérupp“ með Alösku1876. Oddur „Klöts“ Ólafsson leikstýrði myndbandinu við „Ég veit um stað“ og Svavar Burgundy framleiddi það og stýrði kvikmyndatöku en í myndbandinu koma einnig fram Grettir Valsson, Sunniva Skorstad og Jens Jensson, sem áhorfendur kannast eflaust við úr kvikmyndinni Losta. Tónlistarmyndbandið má sjá hér að neðan: Verið að breyta Reykjavík í eitt stórt hótel „Hugmyndin að laginu kviknaði þegar ég var að vinna á Röntgen sem hljóðmaður en þar erum við með plötusnúða öll kvöld og reynum að halda tónleika reglulega. Nema hvað, það er hótel beint á móti staðnum sem hefur kvartað undan hávaða og sett okkur ákveðnar skorður. Við megum ekki halda tónleika eftir ákveðinn tíma, þurfum að vera með lokaða glugga og megum ekki fara yfir ákveðin desibelmörk,“ segir Orri. Orri ávarpar gesti. „Mér fannst þetta svolítið absúrd staða. Ferðamenn bóka sér hótel í hjarta næturlífs Reykjavíkur og kvarta svo yfir því að þar sé næturlíf. Ef við breytum Reykjavík í eitt stórt hótel, hvað verður þá eftir fyrir ferðamennina að heimsækja? Er það ekki einmitt menningin og mannlífið sem dregur fólk hingað?“ segir hann. „Lagið spratt upp úr þessari upplifun en fjallar í raun um stærra mál, hvernig Reykjavík er að breytast með auknum túrisma. Maður fær stundum á tilfinninguna að það sé minna pláss fyrir fólkið sem býr hér og menninguna sem gerir borgina skemmtilega til að byrja með.“ Oddur stillir klukkuútvarpið. Lagið sé líka ástaróður til næturlífs Reykjavíkur og fólksins sem maður rekst á í bænum. „Reykjavík er svo lítil borg að ef maður tekur einhvern þátt í samkvæmislífinu fer maður fljótt að þekkja barþjónana, fastagestina og alls konar kunnugleg andlit sem maður rekst svo á út um allt. Það er eitthvað fallegt við þessa smábæjarstemningu, að geta farið út að dansa og verið nokkuð viss um að hitta einhvern sem maður þekkir.“ Tónlistarmyndbandið var tekið upp við gamlar sjoppur og kjörbúðir, sem eru á hverfanda hveli. Í stíl við þemað, síðustu vígi gömlu Reykjavíkur, ákváðu höfundar að frumsýna myndbandið í einni af fáu eftirstandandi sjoppum miðbæjarins, Vikivaka á Laugarvegi, og var myndbandið sýnt á gömlu túbusjónvarpi, og tónlistin spilaðist úr gamaldags klukkuútvarpi. Tónlistarmyndbandið verður í spilun í sjoppunni alla helgina. Áhorfendur gæddu sér á pylsum og kóki og gátu tekið þátt í ýmiss konar sjoppuathöfnum. Sumir skelltu sér í spilakassann, aðrir keyptu sér lottó, sælgæti eða tóbak. Sjónvarpið og útvarpið verða áfram í Vikivaka, þar sem myndbandið og lagið verður á stanslausri spilun yfir helgina og gangandi vegfarendur og viðskiptavinir sjoppunnar geta séð afrakstur höfunda í túbusjónvarpinu. Gestir horfðu á tónlistarmyndbandið í gömlu túbusjónvarpi. Gestir fengu sér pulsur, keyptu lottómiða og kíktu í kassann. Túbusjónvarpið klikkar ekki. Stuð, stuð, stuð. Bjarni Daníel lét sig ekki vanta. Fólk festi stemminguna á mynd. Pylsa og kók, eitruð tvenna.
Menning Tónlist Kvikmyndagerð á Íslandi Reykjavík Næturlíf Mest lesið Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ Tónlist „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Lífið Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Lífið Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Bíó og sjónvarp Siggi Chaplin allur Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Fleiri fréttir Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Sjá meira