Næturlíf

Fréttamynd

Tuttugu gellur á einu kvöldi

Gugga í gúmmíbát ræddi við nýútskrifaða stúdenta og vel gíraða djammara í nýjasta þætti Gugga fer á djammið. Gugga spurði viðmælendur sína út í bólfélagafjölda, lagði fyrir þá krefjandi kynlífsspurningar og gróf gamla stríðsexi síðan úr æsku. 

Lífið
Fréttamynd

Voru komnir með sína eigin dyra­verði þegar lög­regluna bar að garði

Anibal Hernandez er einn eigenda skemmtistaðarins Exit sem var lokað í sameiginlegum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og skattsins aðfaranótt laugardags. Hann segir farir sínar ekki sléttar eftir lokunina og að dyraverðirnir sem nú starfi á staðnum starfi ekki hjá öryggisþjónustunni sem aðgerðirnar beindust gegn.

Innlent
Fréttamynd

Kominn með nóg af tíma­setningu lög­reglu

Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði segja það vekja furðu að lögreglan hafi ráðist í aðgerðir á skemmtistöðum á háannatíma sem leiddu til þess að þremur stöðum var lokað síðustu nótt. Samtökin geri ekki athugasemdir við sakargiftirnar en aðgerðin beindist gegn öryggisþjónustufyrirtæki sem starfar á stöðunum, að sögn lögreglu.

Innlent
Fréttamynd

„Sögu­legt augna­blik“ fyrir þýska klúbba­menningu

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. 

Lífið
Fréttamynd

Yfir hundrað ó­boðnir gestir í stúdents­veislu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út til aðstoðar að einbýlishúsi í Salahverfi í Kópavogi rétt eftir miðnætti á laugardagskvöld í stúdentsveislu Verzlinga þar sem á annað hundruð manns voru samankomnir. Fjölmargir þeirra voru óboðnir í partýið og kallaði húsráðandi á lögreglu honum til aðstoðar við að koma gestum út.

Innlent
Fréttamynd

Al­mennur borgari veitti bílnum eftir­för

Það vakti áhyggjur ónefndra, ábyrgra borgara þegar þeir sáu bíl sem rásaði miðsvæðis í Reykjavík í nótt. Eftir að hafa tilkynnt um ökumanninn til lögreglu veittu þeir bílnum eftirför uns lögregla kom á staðinn. 

Innlent
Fréttamynd

Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5

Sverri Einari Eiríkssyni hefur verið gert að greiða fimm hundruð þúsund króna sekt úr eigin vasa vegna notkunar B Reykjavík ehf. á vörumerkinu b5. Félagið sjálft þurfti að greiða hálfa milljón vegna noktunnarinnar en vörumerkið er í eigu KG ehf.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn á skemmti­stað með þrjú ung­menni

Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið.

Innlent
Fréttamynd

Einn réðst á dyra­vörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir á­hrifum

Lögreglan handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann hafði ráðist á dyravörð. Við leit á honum fundust fíkniefni en maðurinn hefur verið vistaður í fangaklefa þar til hann er talinn hæfur til skýrslutöku. Fleiri en tíu ökumenn voru stöðvaðir í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Djammið lifir á Prikinu

Það var svokölluð „Rauð viðvörun“ á Prikinu á föstudagskvöld þegar hljómsveitin Geisha Cartel hélt risapartý og Miðflokksmaður tróð upp. 

Lífið
Fréttamynd

Ís­lenskir barir skoða næturopnun á stórleikjum HM

Bareigendur eru farnir að velta fyrir sér næturopnun á meðan heimsmeistaramóti karla í knattspyrnu stendur næsta sumar. Sparkspekingar hér á landi þurfa að setja sig í stellingar vegna tímamismunar en mótið fer fram í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir vikið hefjast sumir leikir þegar flestir eru farnir að sofa.

Fótbolti
Fréttamynd

Gabríel á bak við lás og slá fram á föstu­dag

Gabríel Douane hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til föstudagsins 13. febrúar að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á líkamsárás í miðborginni á laugardagskvöld.

Innlent
Fréttamynd

Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra

Þrír eru í haldi vegna stunguárásar fyrir utan skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur á tólfta tímanum í gærkvöldi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er Gabríel Douane einn grunaðra. Hann losnaði úr fangelsi í síðustu  viku. Elín Agnes Kristínardóttir Eide, yfirlögregluþjónn í miðlægri deild lögreglunnar, segir rannsókn í gangi. Lögregla vinni nú að því að safna að sér myndefni og gögnum um árásina.

Innlent
Fréttamynd

Hand­tekinn eftir slags­mál á Lauga­vegi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með nokkuð umfangsmikið viðbragð við öldurhúsi á Laugavegi í kvöld vegna slagsmála. Lögregluþjónar á að minnsta kosti fjórum hefðbundnum lögreglubílum voru á vettvangi.

Innlent
Fréttamynd

Stakk af eftir harðan á­rekstur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um harðan árekstur þar sem tveir bílar skullu saman. Ökumaður annars bílsins stakk þó af á hlaupum áður en lögregluþjóna bar að garði.

Innlent
Fréttamynd

Sverrir Einar á­kærður en fer í hart á móti

Athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson hefur verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot með því að hafa, sem stjórnandi fjögurra félaga, ekki staðið skil á alls 59,7 milljónum króna í opinber gjöld. Þess er krafist að hann verði dæmdur til refsingar og í atvinnurekstrarbann. Hann hefur kært Ríkisskattstjóra og Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu vegna aðgerða á starfstöðvum félaga hans í apríl í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að flýja lög­reglu en endaði uppi á kanti

Lögregla veitti ökumanni bifreiðar eftirför í hverfi 105 í Reykjavík í nótt þar sem hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglubifreiðarinnar og endaði ökumaður bifreiðarinnar á því að aka upp á kant með þeim afleiðingum að bifreiðin skemmdist.

Innlent
Fréttamynd

Reyndi að stinga af en endaði utan í vegriði

Lögregluþjónar í miðbænum stöðvuðu í nótt átta ökumenn vegna gruns um að þeir væru í umferðinni undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Flestum þeirra var sleppt eftir sýnatöku en einn reyndi að stinga lögreglu af. Hann missti þó stjórn á bílnum og endaði utan í vegriði.

Innlent
Fréttamynd

Grímu­klæddur og ofur­ölvi í slags­málum

Lögregluþjónar handtóku í nótt mann sem var grímuklæddur og mjög ölvaður. Hann hafði verið að slást í miðbænum en samkvæmt dagbók lögreglu var gat hann ekki valdið sjálfum sér vegna ölvunar og var vistaður í fangaklefa.

Innlent