Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Eiður Þór Árnason skrifar 14. október 2026 23:15 Pétur Magnússon er framkvæmdastjóri Frumtaka. Vísir/Einar Framkvæmdastjóri samtaka frumlyfjafyrirtækja á Íslandi segir verðkröfur stjórnvalda fæla erlend lyfjafyrirtæki frá því að markaðssetja lyf hér á landi. Ísland teljist örmarkaður á þessu sviði og öll Norðurlöndin myndi saman um fimm prósent af lyfjamarkaði Evrópu.
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komið á markað á síðustu árum og eru ekki öll þeirra fáanleg á Íslandi. „Það sem við þurfum að gera er að passa lög og reglur á Íslandi og að allt aðgengi fyrir markaðssetningu lyfja á Íslandi sé eins best og mögulegt er, þannig að sjúklingar hér á landi fái ný lyf eins fljótt og mögulegt er,“ segir Pétur Magnússon hjá Frumtökum. Íslenska ferlið sé vissulega orðið betra í dag en það var hér áður fyrr. Pétur ræddi stöðuna í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. „Við erum sem betur fer í mjög góðu samstarfi við Norðurlöndin en það eru sérreglur í hverju landi fyrir sig og þar sem við erum svo lítill markaður þurfum við að vera spennandi í augum lyfjafyrirtækja sem eru að markaðssetja lyf. Það er kannski svolítið erfitt fyrir þau að horfa hingað því að það eru kannski mjög fáir sjúklingar með viðkomandi sjúkdóm og annað slíkt. Þannig að við þurfum að standa saman í því að sannfæra erlendu lyfjafyrirtækin um að það sé ávinningur af því að flytja lyfin til Íslands og að íslenskir sjúklingar fái afnot af þessu lyfi.“ Krafa stjórnvalda fælt fyrirtæki frá Pétur segir að minna úrval sé af lyfjum á Íslandi en í öðrum löndum. „En ég held að það séu nú allir tilbúnir að leggjast á eitt um það að gera aðgengi að lyfjum hér á Íslandi eins gott og mögulegt er til að bæta úr þessu en við höfum sannarlega fengið ábendingar og kvartanir eins og frá læknum í ákveðnum sérfræðigreinum sem kvarta yfir því að það sé erfitt að fá að gefa íslenskum sjúklingum ný lyf sem eru í boði í heiminum og Evrópu.“ Norðurlöndin standi mjög framarlega en Ísland geti gert betur. „Allir þurfa að leggjast á eitt. Það er komið samtal í gang núna líka milli yfirvalda og okkar og fleiri,“ bætir Pétur við. Er regluverkið of erfitt hér? „Það mætti vera hnitmiðaðra og skilvirkara, skulum við segja. Ég held að það séu allir tilbúnir að leggjast á eitt í því. Það eru allir að vinna að því sameiginlega markmiði að íslenskir sjúklingar hafi kost á því besta sem er í boði í heiminum hverju sinni og það eru allir sammála um það.“ Höfum við verið að þrýsta verðinu svo mikið niður að fyrirtækin sleppi bara Íslandi? „Jú, það er sannarlega einn hluti af því. Það er held ég mjög eðlilegt að verð á lyfjum á Íslandi sé allavega meðaltalið af því sem það er á Norðurlöndum. Það hefur verið krafa hér frá stjórnvöldum að lyfjaverð sé það lægsta á Norðurlöndum en það gerir það að verkum að það hefur fælt erlend lyfjafyrirtæki frá því að vera að markaðssetja lyf á Íslandi.“ Ísland þurfi að gera sig meira aðlaðandi sem markað fyrir stór lyfjafyrirtæki. Örmarkaður sem þessi þurfi að leggja meira á sig en margir aðrir. Einnig sé það dýrara að flytja lyf til Íslands en innan meginlands Evrópu. „Þannig að eðli málsins samkvæmt þurfum við að gera betur en nágrannalöndin til að gera okkur aðlaðandi og megum ekki vera með flókið regluverk sem veldur hindrunum. Svo er kannski þróunin í lyfjamálum að verða þannig að ný lyf sem koma á markaðinn eru alltaf að verða sérhæfðari og sérhæfðari fyrir ákveðna hópa sjúklinga sem er auðvitað gott í heildina en þýðir það að það eru þá færri og færri sjúklingar, sérstaklega hér á Íslandi, sem eru að fá viðkomandi lyf. Þess þá heldur er mikilvægt að það sé möguleiki að koma þeim til landsins þegar fáir einstaklingar eru um hituna í rauninni.“ Geti verið kostnaðarsöm Ný líftæknilyf geta verið kostnaðarsöm og kemur það í hlut heilbrigðisyfirvalda hverju sinni að meta hvort þau séu þess virði. „Sannarlega eru lyf og sérstaklega ný lyf dýr og þá þarf auðvitað í rauninni að reikna saman hvaða ávinningur er fyrir sjúklinginn og samfélagið varðandi lyfjanotkun. Því miður er stundum verið að tala um lyf þannig að þau séu bara kostnaður og fólki klappað á bakið fyrir það að ná niður lyfjakostnaði en það þarf auðvitað að horfa á heildarmyndina því að hvað gerist það ef einstaklingur fær ekki lyf? Það gæti kallað á í mörgum tilfellum verri lífsgæði og aukinn kostnað á öðrum sviðum af því að við megum heldur ekki gleyma því að fyrir utan líf viðkomandi einstaklings eða sjúklings þá eru náttúrulega margir fleiri sem tengjast lífi viðkomandi: fjölskylda, vinir og ættingjar og það getur kallað á kannski aukna fjarveru frá vinnu og aukna vanlíðan og bara truflun á daglegu lífi hjá þessum hópi sem er í kringum sjúklinginn sem kostar líka.“ Pétur telur að stefna eigi að því að það taki svipaðan tíma fyrir lyf að komast á markað hér og á hinum Norðurlöndunum. „Í þeirri veröld sem við viljum lifa í ætti það að vera sambærilegt en við kannski sýnum því aðeins skilning að við erum eyja úti í hafi þannig að hlutirnir gætu kannski tekið aðeins lengri tíma.“
Lyf Heilbrigðismál Bylgjan Reykjavík síðdegis Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira