Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 13. október 2026 20:03 Kristrún hvetur fólk til samstöðu. vísir/einar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu og segir að formaður VR og formaður Eflingar hafi báðar rétt fyrir sér. Skeytasendingar hafa farið á milli formannanna í fjölmiðlum eftir að samningar sigldu í höfn í lok síðustu viku. „
Ég held að allir aðilar sem komu að þessum kjarasamningum geti verið stoltir af niðurstöðunni. Forsvarsmenn Breiðfylkingarinnar eru með stór mál inni á aðgerðarlista stjórnvalda, ekki bara krónutölugjöldin heldur líka févíti, tómlæti, almenna íbúðarkerfið.“ Nefnir hún einnig umræðu um vaxtabæturnar. Um þessa þætti hafi munað um fyrir alla aðila. Það sé útfærsluatriði hvernig fólk túlki lendingu þessara samninga. „Í lok dags er bara ánægjulegt að samningar hafi haldið.“ Töluvert hefur gustað um verkalýðshreyfinguna eftir að samningar sigldu í höfn fyrir helgi. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, hafa sakað Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, um að stuðla að „fjölmiðlasirkus“ enda hafi hún að þeirra mati ekki náð betri kjörum en þau í Breiðfylkingunni svokölluðu. Halla Gunnarsdóttir segir Sólveigu Önnu með sig á heilanum og ekkert til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka. Hafi báðar rétt fyrir sér „Ég hef sagt að þær hafa báðar rétt fyrir sér,“ segir Kristrún um aðkomu ríkisstjórnarinnar að kjaramálunum. Hún segir að það liggi fyrir að upplýsingar hafi komið seinnipartinn á þriðjudaginn frá ríkisstjórninni í síðustu viku um atriði sem voru til skoðunar. „Endanleg útfærsla lá ekki fyrir fyrr en á fimmtudaginn en ég veit að það var vilji og áhugi innan Breiðfylkingarinnar á þessari lausn. Síðan þurftum við að útfæra nokkur atriði á lokametrunum sem er ekkert óeðlilegt.“ Báðir aðilar geti verið ánægðir með niðurstöðuna. Mismunandi áherslur séu hjá stéttarfélögunum og allir fengið sínar áherslur í gegn án þess að dregið verði úr afkomu ríkissjóðs að of miklu leyti. „Við erum að sjá mjög fullnægjandi lendingu.“ Aðspurð hvort hún hafi áhyggjur af stöðunni innan verkalýðshreyfingarinnar segir Kristrún að það hafi alltaf verið smá átök þar innan. „Lykilatriði er að í gegnum tíðina hafa þau náð hlutum í gegn vegna samstöðu þannig að ég hvet fólk til dáða, að standa saman.“ Ekki sé óeðlilegt að fólk sé ekki sammála um öll atriði. „Ég vek fólk til umhugsunar um hversu mikið hefur áunnist með því að standa saman.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Stéttarfélög Vinnumarkaður Tengdar fréttir Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar. 10. október 2026 15:27 Ekki rétt sem Halla segir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. 8. október 2026 14:01 Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. 12. október 2026 09:31 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar. 10. október 2026 15:27
Ekki rétt sem Halla segir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. 8. október 2026 14:01
Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir Samtök atvinnulífsins, SA, hafa valið ófrið við Eflingu og sakar Bjarna Benediktsson framkvæmdastjóra SA um að bjóða upp á klæki í stað heiðarlegra samskipta. Hún segir það ekki hennar hlutverk að stilla til friðar í verkalýðshreyfingunni en átök hennar og formanns VR hafa verið til umræðu í aðdraganda þings ASÍ í vikunni. 12. október 2026 09:31