Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2026 10:31 Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Umboðsmaður Alþingis gerði ekki athugasemd við synjunina. Vísir/Anton Brink Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Eigið salerni og eldunaraðstaða í hjólhýsinu breyttu ekki niðurstöðunni. Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun á kvörtun hennar án athugasemda við synjunina.
Heimilisuppbót er viðbót við lífeyrisgreiðslur fyrir fólk sem er eitt um heimilisrekstur. Rétturinn ræðst einnig af því hvort viðkomandi hafi fjárhagslegt hagræði af því að deila húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnaði með öðrum. TR taldi konuna njóta slíks hagræðis. Hún bjó endurgjaldslaust í hjólhýsi sonar síns og samkvæmt upplýsingum Reykjavíkurborgar greiddu íbúar svæðisins fyrir rafmagn samkvæmt mæli en ekki fyrir aðstöðuna að öðru leyti. Benti á þvottahús í fjölbýli Konan mótmælti því að aðgangur að sameiginlegri aðstöðu útilokaði uppbótina. Félagsráðgjafi hafði staðfest að hún byggi ein og væri ein um heimilisreksturinn. Hún benti á að sameiginleg þvottahús væru í fjölmörgum fjölbýlishúsum án þess að hún kannaðist við að þau girtu fyrir heimilisuppbót. TR hefði horft til þess eins að aðstaðan stæði henni til boða í stað þess að meta raunverulegan fjárhag hennar og heimilishald. Framfærsluvandi hefði einmitt orðið til þess að hún byggi í hjólhýsi fremur en á húsnæðismarkaði. Bágbornar aðstæður dugðu ekki Í bréfi umboðsmanns eru einnig raktar skýringar úrskurðarnefndar velferðarmála vegna sambærilegrar kvörtunar annars hjólhýsabúa. Nefndin viðurkenndi bágbornar aðstæður á Sævarhöfða en taldi ókeypis aðgang að snyrtingu og þvottavél engu að síður fela í sér fjárhagslegt hagræði. Umboðsmaður afmarkaði athugun sína við það hvort synjunin samræmdist lögum. Hann taldi sameiginlegu aðstöðuna fela í sér slíkt hagræði, þótt konan hefði eigið salerni og eldunaraðstöðu. Konan sótti um í september 2024, TR synjaði í desember og úrskurðarnefnd staðfesti synjunina í apríl 2025. Umboðsmaður lauk kvörtuninni 28. september síðastliðinn og bréfið var birt 8. október. Synjunin stendur því óbreytt eftir afgreiðslu hans.
Hjólhýsabyggð í Reykjavík Umboðsmaður Alþingis Rekstur hins opinbera Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Sjá meira