Íslenski boltinn

Ó­sáttur við fram­komu stuðnings­manna meðan hann fékk að­hlynningu

Andri Broddason skrifar
Orri Hrafn var ánægður að ekki fór verr þegar hann lenti á hálsinum.
Orri Hrafn var ánægður að ekki fór verr þegar hann lenti á hálsinum. Diego/Vísir

Orri Hrafn Kjartansson, leikmaður KR, lenti illa á hálsinum í leik gegn Fram um helgina. Betur fór en á horfðist en þrátt fyrir það var Orri Hrafn ósáttur með nokkra stuðningsmenn Fram.

Orri Hrafn varð skiljanlega fyrir miklu sjokki þegar hann fann að hann lenti illa á hálsinum og var guðsfeginn sjúkraþjálfara KR og sjúkraþjálfara Fram sem komu báðir til að aðstoða hann. Orri Hrafn lá lengi á vellinum þar sem sjúkraþjálfarar beggja liða voru að ganga úr skugga um að það væri í lagi með hann.

Einhverjir stuðningsmenn Fram voru ósáttir við hvað Orri Hraf var lengi liggjandi og byrjuðu að kalla á hann. Orri Hraf talaði um málið í færslu á Facebook sem hann sagði að væri óþægilegt fyrir hans nánasta fólk.

„Á meðan ég lá á vellinum, með sjúkraþjálfara beggja liða í kringum mig, biðu [fjölskylda og aðstandendur] áhyggjufull og óviss um hversu alvarleg meiðslin væru. Á sama tíma þurftu þau að hlusta á stuðningsmenn Fram kvarta yfir því hversu lengi leikurinn væri stöðvaður, kalla á mig að drullast á lappir, segja mig vera aumingja og láta ýmis önnur óviðeigandi ummæli falla,“ sagði Orri Hrafn í færslu sinni.

Klippa: Meiðsli Orra í leik Fram

„Þegar pabbi minn, eðlilega orðinn ósáttur við þessa framkomu, kallaði til stuðningsmanna að haga sér eins og menn, tók einn fullorðinn maður sig til og fór að ögra honum. Með ýmsum athugasemdum, svipbrigðum og handahreyfingum hélt hann áfram að espa upp aðstæður sem voru þegar orðnar erfiðar fyrir fjölskyldu mína.“

Orri Hrafn sagði að þegar hann hafi staðið upp eftir að sjúkraþjálfarar voru búnir að ganga úr skugga um að í lagi væri með hann hafi hann heyrt fleiri stuðningsmenn Fram hrópa á hann. Það hafi þó hjálpað að stuðningsmenn KR klöppuðu eftir að hann stóð aftur á fætur.

Stoltur af yngri bróður sínum

Eftir að Orri Hrafn var farinn af velli fór 16 ára litli bróðir hans og lét stuðningsmann Fram vita að hann hefði verið að fíflast í pabba Orra. Við þá uppgötvun sá stuðningsmaðurinn við sér og baðst afsökunar.

Í lok færslunnar vill Orri Hrafn halda stuðningi áfram en að hægt sé hvíla mikinn ríg í alvarlegum aðstæðum.

„Ég hef ekkert á móti því að stuðningsmenn láti í sér heyra. Ég get tekið því að sungið sé um mig, gert grín að mér eða kallað til mín á meðan að á leik stendur. Það er hluti af íþróttunum og þeirri stemningu sem við viljum hafa á vellinum. En þegar atvik eins og þetta eiga sér stað þurfa allir að geta lagt ríginn til hliðar og sýnt smá mannúð og virðingu. Gerum betur.“

Meiðsli Orra má sjá í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×