Greinir skýran vilja til meira samstarfs Samúel Karl Ólason skrifar 6. október 2026 18:46 Donald Trump og Kristrún Frostadóttir í New York í síðasta mánuði. Vel virðist hafa farið á með þeim, miðað við myndina. Ráðamenn vestanhafs hafa sýnt skýran vilja til að efla samstarf Bandaríkjanna og Íslands enn frekar. Þetta segist Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hafa fundið vel eftir fundi hennar með Donald Trump, forseta, og Marco Rubio, utanríkisráðherra.
Kristrún fundaði með Trump í New York í síðasta mánuði, á hliðarlínunum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Hún ræddi síðan við Rubio í Reykjavík í dag. Sjá einnig: Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Í færslu sem hún skrifaði á Facebook segir Kristrún að um þessar mundir sé margt jákvætt í gangi hvað varði samskiptin við Bandaríkin. Nefnir hún til að mynda nýjan samning Grænlands, Danmerkur og Bandaríkjanna og að hann skipti hann miklu máli fyrir Ísland. „[E]nda byggjum við öryggi okkar á öflugum, sameiginlegum vörnum hér á svæðinu,“ skrifar Kristrún. Þá segir hún að á fundinum með Rubio í dag hafi þau rætt spennandi tækifæri á sviði viðskipta og fjárfestinga milli Íslands og Bandaríkjanna. Þeirri umræðu verði fylgt eftir í samráði við íslenskt atvinnulíf. „Á morgun á ég svo von á fleiri góðum gestum frá útlöndum. Leiðtogar Grænlands og Færeyja eru væntanlegir, báðir í sína fyrstu heimsókn til Íslands frá því þeir tóku við embætti. Ég hlakka til að ræða við þessa nánustu vini okkar og nágranna um sameiginlega hagsmuni og tækifæri ☺️ Fylgist með!“
Bandaríkin Donald Trump Utanríkismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heimsókn Marco Rubio til Íslands Tengdar fréttir Engar leyniskyttur gættu Rubio Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni. 6. október 2026 18:02 Barnaspítalabindi Billy stal senunni William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann klæddist enn einu sinni óvenjulegu og litríku bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu. 6. október 2026 15:56 „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. 6. október 2026 14:26 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Engar leyniskyttur gættu Rubio Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni. 6. október 2026 18:02
Barnaspítalabindi Billy stal senunni William „Billy“ Long, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi, var meðal þeirra sem tóku á móti Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hann lenti á Íslandi í gær og fylgdu honum af landi brott síðdegis í dag. Athygli vakti að sendiherrann klæddist enn einu sinni óvenjulegu og litríku bindi sem virðist vera í sérlegu uppáhaldi hjá honum og á sér fallega sögu. 6. október 2026 15:56
„Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagðist hafa fengið skýr svör á fundi sínum í morgun með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varðandi kortið sem Donald Trump Bandaríkjaforseti birti sem sýndi Ísland sveipað bandaríska fánanum. Hún sagði metnað Rubio liggja í að ýta undir viðveru NATO á norðurslóðum. 6. október 2026 14:26