Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. október 2026 20:00 Ragnheiður hvetur landsmenn til að sýna sér mildi í haustflensunni. Vísir/Sigurjón Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins biðlar til fólks að sýna sér mildi nú þegar haustpestirnar eru á fullu flugi. Hún segir óþolinmæði oft einkenna Íslendinga sem séu dugnaðarforkar sem ekki henti vel að vera veikir. Ýmislegt sé til ráða áður en mætt sé á Læknavaktina eða heilsugæsluna.
Þetta kom fram í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er frétt Vísis af því að hið árlega pestatímabil hafi leikið fjölda landsmanna grátt. Læknavaktin taki á móti hundruðum skjólstæðinga á hverjum degi þessa stundina. Hvatti forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins fólk til þess að láta reyna á húsráð áður en það geri sér ferð á heilsugæslur eða Læknavaktina. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar segir margt í boði. „Það sem er mikið núna er þrálátur hósti og kvef og hálsbólga sem eru þessi týpísku veirueinkenni sem er lítið við að gera annað en að leyfa líkamanum að vinna á þessu. Þetta eru svolítið langvinn þessi einkenni sem eru í gangi núna, þetta getur verið langvinnur hósti þannig að það þarf að taka tíma í þetta, sýna sér mildi og maður þarf að sleppa ræktinni og jafnvel taka sér frí í vinnunni og maður þarf líka að sýna vinnufélögum mildi og vera ekki að koma í vinnu og smita hina. Maður þarf að vera sérstaklega gætinn fyrstu dagana þegar maður er með fyrstu einkennin þá er maður að smita mest.“ Erum við eitthvað verri með þetta að sækja svona frjálslega í Læknavaktina heldur en nágrannalöndin? „Við erum svolítið óþolinmóð þjóð held ég, svona dugnaðarforkar að eðlisfari og það pirrar okkur að vera slegin svona niður og það á ekki vel við okkur held ég. Við viljum fá eitthvað svona „quick fix.“ Og þegar það er ekki í boði þá getum við orðið pirruð.“ Engin lyf séu til sem geti losað fólk strax við kvefpestir. Ragnheiður segir ekki beint hægt að tala um að húsráð geti reddað málunum. „Það sem við ráðleggjum náttúrulega almennt er að leyfa líkamanum að vinna á þessu. Það er hvíldin, það er að sofa vel og næra sig vel en það er fyrst og fremst ekki næringin heldur kannski að drekka vel og fá í sig sykur og salt, einhverskonar þannig vökva.“ Hvar fær maður sykur og salt? „Það eru íþróttadrykkirnir eins og Gatorade. Svo eru það náttúrulega verkjalyfiin sem eru mjög góð eins og Panódíl og Paratabs og þessi mildu verkjalyf. Taka þau reglulega og þá getur maður nú haldið sér nokkuð góðum.“
Bítið Heilbrigðismál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira