Handbolti

Guð­jón Valur fær Orra ó­stöðvandi til Þýska­lands

Sindri Sverrisson skrifar
Orri óstöðvandi verður með liði Gummersbach frá 2027 til 2029.
Orri óstöðvandi verður með liði Gummersbach frá 2027 til 2029. Gummersbach

Guðjón Valur Sigurðsson fagnar því að hafa klófest einn af arftökum sínum í íslenska landsliðinu, vinstri hornamanninn Orra Frey Þorkelsson, sem kemur til þýska félagsins Gummersbach næsta sumar.

Orri mun koma til Gummersbach frá Sporting Lissabon þar sem hann hefur spilað síðustu þrjú ár. Þessi 27 ára gamli leikmaður mun leysa af hólmi Milos Vujovic þegar samningur hans rennur út næsta sumar.

„Í Orra fáum við aðeins yngri leikmann með reynslu úr Meistaradeild Evrópu með Sporting, mann sem ég sem Íslendingur þekki auðvitað mjög vel,“ sagði Guðjón Valur á heimasíðu Gummersbach.

Sjálfur kveðst Orri afar spenntur fyrir því að spila í þýsku deildinni og þá fyrir Gummersbach sem undir stjórn Guðjóns Vals hefur orðið að einu sterkasta liði landsins.

Orri, sem unnið hefur sér inn sæti sem helsti vinstri hornamaður landsliðsins, er uppalinn Haukamaður en lék svo með Noregi frá 2021 til 2023 áður en hann hélt til Sporting.

Hann hefur orðið portúgalskur meistari þrjú ár í röð ásamt því að vinna portúgalska bikarinn.

„Auk þess er Orri landsliðsmaður með reynslu af stórmótum. Við erum mjög ánægð með að hann hafi ákveðið að koma til okkar,“ segir Guðjón Valur sem fyrir er með Elliða Snæ Viðarsson, Teit Örn Einarsson og Garðar Inga Sindrason í sínum röðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×