Minden keypti Erling af ÍBV Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 10:49 Erlingur Richardsson hefur kvatt Heimaey og er orðinn þjálfari Minden í Þýskalandi. Vísir/Diego Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni.
ÍBV tilkynnti um þetta í dag og segir jafnframt að Bergvin Haraldsson verði nú aðalþjálfari liðsins. Þeir Bergvin og Sigurður Bragason hafa myndað þjálfarateymi liðsins með Erlingi og verður Sigurður áfram til aðstoðar. Samkvæmt tilkynningu ÍBV virkjaði Minden kaupákvæði í samningi Erlings til að tryggja sér krafta hans þegar í stað. Minden situr í 13. sæti næstefstu deildar Þýskalands með þrjú stig eftir fimm umferðir. Erlingur tekur við liðinu af Aaron Ziercke sem látinn var fara eftir vonbrigðabyrjun á tímabilinu. Erlingur tók við ÍBV á nýjan leik fyrir síðasta tímabil og skrifaði þá undir samning til tveggja ára. Hann hafði áður gert Eyjamenn að Íslandsmeisturum vorið 2023 eftir að hafa stýrt þeim frá 2018. Erlingur hefur einnig gert HK að Íslandsmeistara árið 2012. Erlingur, sem er 54 ára, hefur einnig þjálfað landslið Hollands og Sádi-Arabíu sem og þýska stórliðið Füchse Berlín og austurríska liðið West Wien.
Þýski handboltinn ÍBV Olís-deild karla Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira