Handbolti

Minden keypti Er­ling af ÍBV

Sindri Sverrisson skrifar
Erlingur Richardsson hefur kvatt Heimaey og er orðinn þjálfari Minden í Þýskalandi.
Erlingur Richardsson hefur kvatt Heimaey og er orðinn þjálfari Minden í Þýskalandi. Vísir/Diego

Handboltaþjálfarinn Erlingur Richardsson hefur verið ráðinn þjálfari þýska 2. deildarfélagsins Minden og er því hættur sem þjálfari ÍBV í Olís-deildinni.

ÍBV tilkynnti um þetta í dag og segir jafnframt að Bergvin Haraldsson verði nú aðalþjálfari liðsins. Þeir Bergvin og Sigurður Bragason hafa myndað þjálfarateymi liðsins með Erlingi og verður Sigurður áfram til aðstoðar.

Samkvæmt tilkynningu ÍBV virkjaði Minden kaupákvæði í samningi Erlings til að tryggja sér krafta hans þegar í stað.

Minden situr í 13. sæti næstefstu deildar Þýskalands með þrjú stig eftir fimm umferðir. Erlingur tekur við liðinu af Aaron Ziercke sem látinn var fara eftir vonbrigðabyrjun á tímabilinu.

Erlingur tók við ÍBV á nýjan leik fyrir síðasta tímabil og skrifaði þá undir samning til tveggja ára. Hann hafði áður gert Eyjamenn að Íslandsmeisturum vorið 2023 eftir að hafa stýrt þeim frá 2018. Erlingur hefur einnig gert HK að Íslandsmeistara árið 2012.

Erlingur, sem er 54 ára, hefur einnig þjálfað landslið Hollands og Sádi-Arabíu sem og þýska stórliðið Füchse Berlín og austurríska liðið West Wien.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×