Lögregluembættum fækkað verulega Sunna Sæmundsdóttir og Rafn Ágúst Ragnarsson skrifa 24. september 2026 18:01 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir hyggst leggja fram frumvarpið í nóvember. Vísir/Sigurjón Lögregluembættum landsins verður fækkað úr níu í þrjú gangi tillögur dómsmálaráðherra eftir. Þannig verður eitt embætti á suðvesturhorninu, annað á norður- og vesturhluta landsins og þriðja á suður- og austurhluta landsins.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hyggst í nóvember leggja fram frumvarp til breytinga á lögreglulögum og gengið verður enn lengra í sameiningu lögregluembætta en áður stóð til. Ákall um sameiningu innan úr lögreglunni Í þingmálaskrá kemur fram að áformað sé að fækka embættunum niður í fjögur eða fimm, með það að markmiði að ná fram aukinni skilvirkni og samlegð. Nú stendur hins vegar til að fækka þeim niður í þrjú. Í kynningarefni kemur fram að verði þetta að lögum muni 64,6% stöðugilda lögreglunnar vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum, 20,5% hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, eystra, Vesturlandi og Vestfjörðum og 14,9% hjá lögreglunni á Austurlandi, Suðurlandi og í Vestmannaeyjum. Áformin voru kynnt ríkisstjórn og fulltrúum lögreglu í maí. Niðurstaða þessa samráðs segir Þorbjörg hafa verið að mest jafnvægi í stærð embætta á milli næðist með þremur embættum og að samvinna og skipulag yrði betra. Hún fór sjálf sömuleiðis í hringferð um landið og ræddi við starfsfólk lögreglu. Þar hafi hún fundið fyrir ákalli um að sameina embættin. „Það er staðreynd að allt landslag afbrota á Íslandi hefur breyst mjög mikið á innan við tíu árum. Síðustu skipulagsbreytingar hjá lögreglu eru líka tíu ára gamlar og lögreglan sjálf hefur kallað eftir því að embættin verði efld með því að þau verði færri og stærri,“ segir hún. Engar uppsagnir Fleiri muni starfa innan hvers umdæmis. „Minni embættin verða þá ekki föst í því að veita stoðdeildir og þjónustur. Þetta verða meiri miðlægar einingar og lögregla geti farið að einbeita sér meira að því sem þeir gera best sem er löggæsla.“ Dómsmálaráðherra áréttar að engar uppsagnir fylgi þessum breytingum og að ekki sé ráðist í þær í hagræðingarskyni. „Eg er að horfa til þess hvernig skipulag lögreglunnar geti best stutt við störf lögreglu í landinu. Þess vegna er það skýrt að lögreglustöðvum hringinn í kringum landið verður ekki fækkað og að starfsfólk lögreglunnar myndi sjálfkrafa flytjast í ný umdæmi. Við erum ekki að fækka starfsfólki, þvert á móti er það ætlun mín að geta haldið áfram að fjölga lögreglumönnum í landinu,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Lögreglan Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira