Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Samúel Karl Ólason skrifar 22. september 2026 10:08 Kristrún Frostadóttir og Antonio Guterres og Marco Rubio og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Stjórnarráðið Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir Ísland leggja áherslu á að tala fyrir friði og virðingu fyrir alþjóðalögum á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem stendur nú yfir í New York. Það séu hagsmunir Íslands og heimsins alls að efla Sameinuðu þjóðirnar og tryggja fullveldisrétt allra ríkja.
Kristrún og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, eru á allsherjarþinginu. Kristrún ræddi í gær við Antonio Guterres, fráfarandi framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Þá tók hún einnig þátt í viðburði á vegum leiðtoga Brasilíu, Kanada, Kenía og Evrópusambandsins um mikilvægi þess að standa vörð um alþjóðasamstarf og flutti lokaávarp á hliðarviðburði um loftslagsmál. Á vef Stjórnarráðsins segir að Kristrún og Þorgerður verði í dag viðstaddar setningu allsherjarþingsins og Kristrún muni svo í kvöld sækja móttöku Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna. Haft er eftir Þorgerði Katrínu að innrás Rússa í Úkraínu, ástandið í Mið-Austurlöndum og mannréttindi setji sterka mynd á dagskrá vikunnar í New York. Malala Youzafzai og Þorgerðu Katrín.Stjórnarráðið „Ísland tekur virkan þátt í umræðunum hér í New York í vikunni og leggur þannig sín lóð á vogarskálarnar. Þó að sótt sé að alþjóðalögum og alþjóðakerfinu finn ég fyrir skýrum ásetningi velflestra ríkja heims að varðveita þau gildi og þær stofnanir sem vel hafa reynst undanfarin áttatíu ár.“ Þorgerður fundaði í gær með Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á þeim fundi komu saman utanríkisráðherrar sjö norðurslóðaríkja. Hún hitti einnig Malölu Youzafzai, handhafa friðarverðlauna Nóbels, og ræddi við hana um réttindi kvenna og stúlkna í Afganistan. Þorgerður hélt einnig ávarp á hliðarviðburði kjarnahóps um réttindi hinsegin fólks sem líkt-þenkjandi ríki hjá Sameinuðu þjóðunum halda úti og hún sat líka fund um þróunarmál sem Írar boðuðu til.
Utanríkismál Sameinuðu þjóðirnar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira