Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Tómas Arnar Þorláksson skrifar 21. september 2026 13:48 María Heimisdóttir landlæknir. Vísir/Egill Aðalsteinsson Embætti landlæknis hefur fellt starfsleyfi sex lækna niður. Að auki var starfsleyfi eins læknis takmarkað. Þetta var gert í kjölfar þess að blaðamaður Heimildarinnar sendi embættinu lista yfir þrettán lækna sem höfðu misst starfsleyfi erlendis en væru samt sem áður með starfsleyfi hér á landi. Þetta staðfestir María Heimisdóttir landlæknir í skriflegu svari til fréttastofu. Heimildin greindi fyrst frá. Í umfjöllun Heimildarinnar kemur fram að rannsókn blaðsins í samstarfi við erlenda miðla hafi leitt í ljós að mögulega þrettán læknar hafi haldið starfsleyfi sínu hér á landi þrátt fyrir að vera bannað að starfa í öðrum ríkjum Evrópu eða í Bandaríkjunum. Starfsleyfi takmarkað þótt skilyrði sviptingar voru uppfyllt María segir í skriflegu svari til fréttastofu að mál þessara þrettán lækna hafi verið til skoðunar innan embættisins síðan að þeim barst listi frá Heimildinni. Hjá sex af þessum læknum var ekki talin þörf á að aðhafast. „Í þessum málum var ýmist talið rétt að fella starfsleyfi ekki niður hér á landi, eftir niðurfellingu í öðru landi, eða að ástæðu niðurfellingar í öðru landi var að rekja til niðurfellingar eða afsals starfsleyfis læknis hér á landi, sem síðar hafi verið endurútgefið,“ segir í svarinu. Í sjö málum taldi embættið rétt að aðhafast. Sex starfsleyfi voru felld niður en í einu tilviki var starfsleyfi takmarkað á grundvelli 3. mgr. 15. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Í þeirri grein er landlækni gert heimilt að takmarka starfsréttindi tímabundið ef skilyrði sviptingar eru fyrir hendi. Niðurfelling starfsleyfa var byggð á 7. og 8. mgr. 15. gr. sömu laga en þar segir: Byggi heilbrigðisstarfsmaður starfsréttindi sín hér á landi á starfsleyfi sem útgefið er í öðru landi falla starfsréttindi hans hér á landi niður ef hann er sviptur starfsleyfi í því landi. Starfsréttindi heilbrigðisstarfsmanns falla niður sé hann sviptur lögræði eða hann uppfyllir ekki lengur þau skilyrði sem krafist var þegar hann fékk starfsréttindi. Veikleiki á kerfinu en mál nú í mun betri farveg Í svarinu segir einnig að samkvæmt upplýsingum embættis landlæknis hafi læknarnir sjö ekki verið við störf á Íslandi þegar rannsókn þeirra hófst. „Embætti landlæknis berast tilkynningar um sviptingar og takmarkanir starfsleyfa heilbrigðisstarfsmanna innan EES ríkja í gegnum upplýsingakerfi ESB fyrir innri markaðinn (IMI). Gífurlegur fjöldi slíkra tilkynninga berst öllum EES ríkjum í gegnum það kerfi. Reynst getur eftirlitsstofnunum erfitt um vik að fylgjast með og skrá slíkar tilkynningar með viðeigandi hætti,“ segir María sem heldur áfram: „Á síðasta ári var í ýmsum fjölmiðlum hérlendis og erlendis, þ. á m. hjá Heimildinni, fjallað um þann ágalla á framangreindu kerfi sem reyndist vera fyrir hendi, þ.e. að tilkynningar um sviptingar og takmarkanir starfsleyfa færu ekki í öllum tilvikum í réttan farveg innan EES ríkjanna. Embættinu var kunnugt um þennan veikleika, hafði komið þeim áhyggjum á framfæri við þá sem reka kerfið og hert eigið eftirlit. Mál sem þessi eru því komin í mun betri farveg frá því sem áður var þó svo enn megi bæta samstarf og gagnaskil milli ríkja.“ Veist þú meira um málið? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is Heilbrigðismál Embætti landlæknis Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira
Þetta staðfestir María Heimisdóttir landlæknir í skriflegu svari til fréttastofu. Heimildin greindi fyrst frá. Í umfjöllun Heimildarinnar kemur fram að rannsókn blaðsins í samstarfi við erlenda miðla hafi leitt í ljós að mögulega þrettán læknar hafi haldið starfsleyfi sínu hér á landi þrátt fyrir að vera bannað að starfa í öðrum ríkjum Evrópu eða í Bandaríkjunum. Starfsleyfi takmarkað þótt skilyrði sviptingar voru uppfyllt María segir í skriflegu svari til fréttastofu að mál þessara þrettán lækna hafi verið til skoðunar innan embættisins síðan að þeim barst listi frá Heimildinni. Hjá sex af þessum læknum var ekki talin þörf á að aðhafast. „Í þessum málum var ýmist talið rétt að fella starfsleyfi ekki niður hér á landi, eftir niðurfellingu í öðru landi, eða að ástæðu niðurfellingar í öðru landi var að rekja til niðurfellingar eða afsals starfsleyfis læknis hér á landi, sem síðar hafi verið endurútgefið,“ segir í svarinu. Í sjö málum taldi embættið rétt að aðhafast. Sex starfsleyfi voru felld niður en í einu tilviki var starfsleyfi takmarkað á grundvelli 3. mgr. 15. gr. laga um landlækni og lýðheilsu. Í þeirri grein er landlækni gert heimilt að takmarka starfsréttindi tímabundið ef skilyrði sviptingar eru fyrir hendi. Niðurfelling starfsleyfa var byggð á 7. og 8. mgr. 15. gr. sömu laga en þar segir: Byggi heilbrigðisstarfsmaður starfsréttindi sín hér á landi á starfsleyfi sem útgefið er í öðru landi falla starfsréttindi hans hér á landi niður ef hann er sviptur starfsleyfi í því landi. Starfsréttindi heilbrigðisstarfsmanns falla niður sé hann sviptur lögræði eða hann uppfyllir ekki lengur þau skilyrði sem krafist var þegar hann fékk starfsréttindi. Veikleiki á kerfinu en mál nú í mun betri farveg Í svarinu segir einnig að samkvæmt upplýsingum embættis landlæknis hafi læknarnir sjö ekki verið við störf á Íslandi þegar rannsókn þeirra hófst. „Embætti landlæknis berast tilkynningar um sviptingar og takmarkanir starfsleyfa heilbrigðisstarfsmanna innan EES ríkja í gegnum upplýsingakerfi ESB fyrir innri markaðinn (IMI). Gífurlegur fjöldi slíkra tilkynninga berst öllum EES ríkjum í gegnum það kerfi. Reynst getur eftirlitsstofnunum erfitt um vik að fylgjast með og skrá slíkar tilkynningar með viðeigandi hætti,“ segir María sem heldur áfram: „Á síðasta ári var í ýmsum fjölmiðlum hérlendis og erlendis, þ. á m. hjá Heimildinni, fjallað um þann ágalla á framangreindu kerfi sem reyndist vera fyrir hendi, þ.e. að tilkynningar um sviptingar og takmarkanir starfsleyfa færu ekki í öllum tilvikum í réttan farveg innan EES ríkjanna. Embættinu var kunnugt um þennan veikleika, hafði komið þeim áhyggjum á framfæri við þá sem reka kerfið og hert eigið eftirlit. Mál sem þessi eru því komin í mun betri farveg frá því sem áður var þó svo enn megi bæta samstarf og gagnaskil milli ríkja.“ Veist þú meira um málið? Sendu okkur fréttaskot. Einnig er hægt að senda póst á ritstjorn@visir.is
Byggi heilbrigðisstarfsmaður starfsréttindi sín hér á landi á starfsleyfi sem útgefið er í öðru landi falla starfsréttindi hans hér á landi niður ef hann er sviptur starfsleyfi í því landi. Starfsréttindi heilbrigðisstarfsmanns falla niður sé hann sviptur lögræði eða hann uppfyllir ekki lengur þau skilyrði sem krafist var þegar hann fékk starfsréttindi.
Heilbrigðismál Embætti landlæknis Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Fleiri fréttir Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Sjá meira