Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Samúel Karl Ólason skrifar 21. september 2026 14:00 Vólódímír Selenskí og Donald Trump á G7 fundi í Bandaríkjunum í ágúst. EPA/AARON SCHWARTZ Donald Trump bað Vólódímír Selenskí um að Úkraínumenn hættu árásum á olíuvinnslustöðvar í Rússlandi. Í símtali þeirra á milli í gær sagðist Trump hafa áhyggjur af því hvað þessar árásir væru að hafa slæm áhrif á heimsverð díselolíu. Trump sagðist vilja að rússnesk díselolía rataði á heimsmarkað svo verðið gæti lækkað.
Díselverð í Bandaríkjunum hefur aldrei verið hærra en það er nú. Í morgun kostaði gallonið af díselolíu um 6,5 dali í Bandaríkjunum (um 206 krónur á lítra) og hefur það hækkað um rúm sjötíu prósent frá því stríðið gegn Íran hófst. Stutt er síðan Trump lýsti því óvænt yfir að bæði Selenskí og Vladimír Pútín hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði. Ekkert slíkt samkomulag hafði þó náðst milli Úkraínumanna og Rússa. Það var í kjölfar þess að Trump hafði haldið því fram að hærra olíuverð og sérstaklega verð á díselolíu væri til komið vegna Úkraínustríðsins og árása Úkraínumanna á olíuvinnslur í Rússlandi en ekki vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran og meðfylgjandi takmarkana á flutningi olíuafurða frá Mið-Austurlöndum. Sjá einnig: Lýsti yfir samkomulagi sem lá ekki fyrir Financial Times sagði frá innihaldi símtals forsetanna í morgun en í frétt miðilsins er haft eftir úkraínskum embættismönnum að Trump hefði lagt mikla áherslu á díselolíu í samtali þeirra. Hann hafi kvatt Selenskí til að skipa hernum að hætta árásum á olíuvinnslur í Rússlandi. Nokkrum klukkustundum fyrir símtalið höfðu Úkraínumenn gert umfangsmikla drónaárás á Moskvu, þá umfangsmestu hingað til samkvæmt yfirvöldum í Rússlandi, og beindist hún að miklu leyti að einni stærstu olíuvinnslu Rússlands. Sala á olíu og olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins. Borgarstjóri Moskvu heldur því fram að Rússar hafi skotið niður 450 dróna yfir borginni eða á leiðinni þangað þegar árásin hér að neðan var gerð. 🔥 Our units lit up Moscow tonight. Literally.What a team👏@1usc_army @Raid_413 @414magyarbirds and 412 NEMESIS https://t.co/O8mMQsY4rX pic.twitter.com/kSYSmsGDdf— 🇺🇦 Unmanned Systems Forces (@usf_army) September 20, 2026 Selenskí sagði frá því í gær að hann hefði rætt við Trump, án þess þó að tala mikið um innihald samtals þeirra, og sagði að þeir myndu funda frekar á hliðarlínum allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í vikunni. Segir Rússa hafa misst tökin á framleiðslu Skömmu eftir að fyrstu fregnir bárust af innihaldi símtals þeirra í morgun birti Trump færslu á Truth Social þar sem hann sagði að „því miður“ hefðu Rússar misst stjórn á díselolíuframleiðslu þar í landi. Margar olíuvinnslur hefðu verið sprengdar og væru óstarfhæfar, í það minnsta tímabundið. Þá sagði Trump að binda þyrfti enda á „þetta fáránlega og endalausa“ stríð. Færsla Trumps á Truth Social. Eins og frægt er hét Trump því fyrir síðustu forsetakosningar fyrir tæpum tveimur árum að binda enda á stríðið á sínum fyrsta degi í embætti, eða jafnvel fyrr. Það hefur hins vegar ekkert gengið hjá forsetanum. Úkraínumenn og bakhjarlar þeirra í Evrópu hafa ítrekað reynt að fá Trump til að auka þrýstinginn á Rússa en síðan hann tók embætti hefur hann fá skref tekið í þá áttina. Þess í stað hefur hann reynt að þrýsta á Úkraínumenn um að verða við kröfum Rússa, samhliða því að hætta svo gott sem öllum stuðningi við Úkraínu. Ekki bara fórnarlambið sem þjáist Rússar hafa látið sprengjum rigna yfir borgir og bæi Úkraínu. Úkraínumenn skortir verulega flugskeyti í loftvarnarkerfi sem hægt er að nota til að skjóta niður rússneskar skotflaugar og ný tegund þotuknúinna sjálfsprengidróna hefur aukið skilvirkni árása Rússa. Sjá einnig: Kostaði 57 milljarða að verjast einni árás Samhliða þessu hafa Úkraínumenn átt í umfangsmiklum árásum gegn rússneskum olíuvinnslum frá því í nóvember í fyrra. Það hafði lítil áhrif á hráolíuverð á heimsvísu en staðan versnaði mikið og hratt í lok febrúar á þessu ári, þegar Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu stríðið gegn Íran og siglingar um Hormússund voru takmarkaðar verulega. Sjá einnig: Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Selenskí tjáði sig um stöðuna og færslu Trumps þar sem Bandaríkjaforsetinn segir að binda þurfi enda á stríðið. Í eigin færslu á samfélagsmiðlum segir Selenskí að Trump hafi rétt fyrir sér um að stöðva þurfi stríðið. Það hafi haft gífurlega miklar og slæmar afleiðingar. „Frá fyrstu mínútu hefur Úkraína leitað friðar. Við höfum þegar lagt fram tugi tillagna að því hvernig hægt sé að enda þetta stríð sæmd, tryggja öryggi og koma í veg fyrir nýja innrás Rússa.“ Hann segir að góðar hugmyndir um hvernig hægt sé að koma á friði séu nú til umræðu. Lausnir séu mögulegar og unnið sé að því að finna þær. Selenskí segir þó að ekki sé lengur hægt að bara sá sem ráðist sé á þjáist vegna stríðs. Stríð séu nú þess eðlis, vegna tækninýjunga, að árásaraðilinn muni einnig þjást. Indeed, this Russian war against Ukraine and against common sense must be ended. From the first year of the full-scale invasion, its consequences have been far-reaching: the loss of many lives, the destruction of cities and villages, food security, energy challenges, the… https://t.co/bguBQDfSYq— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) September 21, 2026
Bandaríkin Úkraína Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Vladimír Pútín Bensín og olía Hernaður Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Sjá meira