Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 21. september 2026 13:02 Frá vinstri eru Inga Sæland, Kristrún Frostadóttir, Daði Már Kristófersson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir við kynningu fjárlagafrumvarpsins. Anton Brink Hlutfallsleg aukning útgjalda er mest í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu ef marka má fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027. Þetta segir hagfræðingur Viðskiptaráðs. Niðurskurður til vegamála hafi komið á óvart enda rími það illa við umræðu um mikla innviðauppbyggingu.
Viðskiptaráð Íslands birti í dag úttekt á fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027. Yfirheitið er: Hvert fara skattpeningarnir? Og er um að ræða yfirferð yfir helstu stærðir í fjárlögunum. Ragnar Sigurður Kristjánsson, hagfræðingur Viðskiptaráðs, segir tvö ráðuneyti með mesta útgjaldaaukningu. „Mesta útgjaldaaukningin á milli ára er annars vegar í félags- og húsnæðismálaráðuneytinu þar sem örorku- og ellilífeyrisbæturnar hækka um 25 milljarða á milli ára. Síðan er líka mikil útgjaldaaukning í atvinnuleysisbætur vegna verra atvinnuástands á Íslandi.“ „Í öðru sæti á eftir félags- og húsnæðismálaráðuneytinu er utanríkisráðuneytið þar sem er töluverð útgjaldaaukning í varnarmál sem má rekja til þess að menn séu að reyna að uppfylla þær skyldur sem við höfum nýlega undirgengist.“ Ráðuneyti Jóhanns Páls skeri sig úr Í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og forsætisráðuneytinu er lítil útgjaldabreyting á milli ára enda segir Ragnar að þau ráðuneyti hafi ekki marga einstaka málaflokka undir sínum hatti. „En umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið sker sig úr þar sem að það er samdráttur í útgjöldum um 6 prósent á milli ára. Þau lækka alls um 3,3 milljarða og helsta skýringin á því eru samdráttur í útgjöldum til loftslags- og orkusjóðs.“ Rími illa við umræðu um innviðauppbyggingu Ragnar segir að niðurskurður til vegamála hafi komið á óvart við gerð úttektarinnar. „Það sem kom kannski á óvart þegar tíu stærstu fjárlagaliðirnir voru skoðaðir var að það er niðurskurður til Vegagerðarinnar um rétt um 3,6 milljarða sem fer kannski illa saman við umræður um mikla innviðauppbyggingu. Það er alveg augljóst að það er viðhaldsþörf þarna. Og þarna er verið að skera niður fjárfestingarútgjöld á meðan útgjöld í tilfærslukerfin aukast töluvert á milli ára.“ Þá segir hann að vaxtaútgjöld ríkisins hækki um fimm prósent á milli ára. „Og eru orðin næststærsti fjárlagaliðurinn, einstaki fjárlagaliðurinn. Þetta eru bara vaxtagjöld af skuldum ríkissjóðs.“
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Flokkur fólksins Félagsmál Alþingi Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira