Reyndu að bjarga málunum en voru of sein Bjarki Sigurðsson skrifar 15. september 2026 12:00 Orri Björnsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins, Karolína Helga Símonardóttir, oddviti Viðreisnar og Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Þau leiða meirihlutasamstarf bæjarins þetta kjörtímabilið og segjast hafa reynt hvað þau gátu að sjá til þess að Tækniskólinn myndi rísa í bænum. Nýr Tækniskóli verður ekki í Hafnarfirði eftir að bæjaryfirvöld flöskuðu á að kaupa lóðir sem þau höfðu lofað. Varaformaður bæjarráðs segir það vonbrigði að missa skólann úr bænum.
Framtíðarhúsnæði Tækniskólans verður ekki byggt í Hafnarfirði líkt og var undirritað í samkomulagi árið 2021. Þar samþykkti Hafnarfjarðarbær að leggja fram stofnfjárframlag frá bænum í formi lóðar án kvaða og gjalda ásamt beinu fjárframlagi. En kvaðirnar voru til staðar því lóðin var ekki laus og fimm árum síðar var ekki búið að ráðast í uppkaup á þeim lóðum sem þurfti að kaupa til að hægt væri að hefja framkvæmdir. Hildur Rós Guðbjargardóttir, oddviti Samfylkingar og varaformaður bæjarráðs, segir það leitt að missa þetta tækifæri. „Við í Samfylkingunni óskuðum allt síðasta kjörtímabil eftir því að málið yrði sett á dagskrá og varað við áskorunum í undirbúningi þess sem varða lóðakaup og nauðsynlegar samgöngubætur. Þarna voru það lóðamálin sem urðu til þess að ekki var hægt að verða við þessum áætlunum,“ segir Hildur Rós. Farið hafi verið á fullt eftir sveitarstjórnarkosningar í maí við að reyna að bjarga málum. Það hafi því miður ekki tekist. „Ég get í rauninni ekki skýrt það fullkomlega hvað gerðist þarna og hver ástæðan er fyrir því að þetta fór svona og af hverju lóðirnar voru ekki lausar. Við vissum alltaf að það þyrfti að fara í uppkaup á lóðum. Það var reynt að fara í uppkaup en við vöruðum við þessum áskorunum og höfðum miklar áhyggjur af því að það væri ekki nógu markviss vinna. Þetta væri ekki undirbúið nægilega vel. En ég get ekki svarað nógu vel hver ástæðan er fyrir þessu,“ segir Hildur Rós. Orri Björnsson formaður bæjarráðs vísaði á Hildi þegar fréttastofa reyndi að ná tali af honum varðandi málið og Þórður Þórarinsson, nýráðinn bæjarstjóri, hefur hvorki svarað símtölum né skilaboðum fréttastofu.
Hafnarfjörður Jarða- og lóðamál Framhaldsskólar Skóla- og menntamál Sveitarstjórnarmál Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Viðreisn Framsóknarflokkurinn Húsnæðismál Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Sjá meira