Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. september 2026 08:53 Lilja Alfreðsdóttir er formaður Framsóknarflokksins en var áður menningar- og viðskiptaráðherra. Vísir/Vilhelm Formaður Framsóknarflokksins, sem áður var með málefni fjölmiðla á sinni könnu, segir að mikilvægi fjölmiðla sé vanmetið á Alþingi. Umfang Ríkisútvarpsins sé að stækka á kostnað einkarekinna fjölmiðla. „
Þetta er alþjóðleg þróun sem kemur okkur svo sem ekki á óvart en hún er erfið viðureignar,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, sem ræddi málin í Bítinu á Bylgjunni. Staða fjölmiðla hefur verið mikið til umfjöllunar eftir að kvöldfréttir Sýnar, áður Stöðvar 2, voru lagðar niður fyrir viku. Þáttstjórnendur Bítisins vísa í tölur frá Hagstofunni í upphafi viðtalsins þar sem segir að rúmlega helmingur auglýsingatekna árið 2024 féll í skaut erlendra miðla. Lilja var menningar- og viðskiptaráðherra í ríkisstjórnum Katrínar Jakobsdóttur og Bjarna Benediktssonar þar sem málefni fjölmiðla féllu í hennar skaut. „Núna ætla ég að vera með játningu, ég sakna enn Fréttablaðsins. Vegna þess að það voru tvö blöð hér. Það var áfall þegar Fréttablaðið hætti að gefa blaðið út. Það skiptir máli að það séu tveir til þrír í þessu.“ Lilja segist sjálf hafa lagt til í fjölmiðlastefnunni árið 2024 að dregið yrði úr umfangi Ríkisútvarpsins. Hins vegar hafi umfangið þróast í aðra átt. „Umfang Rúv hefur verið að stækka og þá er meiri markaður fyrir auglýsingar þar. Þetta er eitthvað sem þarf að fara yfir og rýna,“ segir hún. „Ég tel að þeir hafi verið að stækka á kostnað einkarekinna fjölmiðla.“ Tekjufall fari Rúv af auglýsingamarkaði Lilja telur að staðan á fjölmiðlamarkaði hafi leitt til þess að ekki sé eins mikið aðhald í samfélaginu og áður. „Mikilvægi fjölmiðla er vanmetið á Alþingi Íslendinga. Þetta er heit kartafla, það vita allir að þetta skiptir gríðarlegu máli, bæði til að halda upplýstri umræðu og síðast en ekki síst að veita þetta aðhald,“ segir Lilja. Í hennar ráðherratíð hafi hún talað fyrir svokallaða Norðurlandamódelinu þar sem er sterkur ríkismiðill sem er ekki á auglýsingamarkaði og svo fleiri einkareknir fjölmiðlar. Hins vegar hafi enn ekki náðst sátt um breytingarnar. „Ef Rúv fer af auglýsingamarkaði er það mikið tekjufall. Menn hafa haft mismunandi skoðanir á því hvort það eigi að gera það upp, hvort Rúv eigi að fá eitthvað til baka eða ekki,“ segir hún. Þá hafi gögn sem hún hafði undir höndum sýnt fram á að ef Rúv færi af auglýsingamarkaði myndu tekjurnar ekki haldast innan Íslands heldur fara í enn auknari mæli úr landi. „Við myndum flýta þeirri þróun.“ Ættu að taka stærri skref „OECD hefur verið með lagasetningu sem ætti að ganga á öll samfélög okkar til að ná utan um þessa samfélagsmiðla og tæknirisa. OECD er búið að vera með þetta í sjö ár, ef ég man rétt, og við vorum alltaf að bíða svolítið eftir þessu til að vera með stærri ríkjum,“ segir Lilja. Nú ætti það að vera ofarlega á forgangslista stjórnmálamanna hérlendis að móta stefnuna á fjölmiðlamarkaðinum. „Það er ekki verið að taka nægilega stór skref til að þess að ná þessari samkeppni á fjölmiðlamarkaði sem er nauðsynleg,“ segir hún. „Ég segi það bara, við verðum að taka stærri skref og ég held að það sé best og ég legg það til að það sé gert í þokkalegri sátt.“
Fjölmiðlar Bítið Bylgjan Framsóknarflokkurinn Ríkisútvarpið Sýn Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Fleiri fréttir Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Sjá meira