Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Sindri Sverrisson og Aron Guðmundsson skrifa 1. september 2026 21:06 Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, er ekki í uppáhaldi hjá Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings Reykjavíkur þessa dagana. Myndir af Aroni og Sölva / Hulda Margrét Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur, kaus að svara ekki mati Aron Sigurðarsonar, fyrirliða KR, á hans liði eftir leik Víkings og KR í Bestu deildinni í kvöld. Ummæli Arons væru ekki svaraverð, það væri ekki mikið vit í því sem hann hefur verið að láta út úr sér í aðdraganda leiksins.
Leikur KR og Víkings Reykjavíkur var frábær skemmtun. Stemningin var mikil og var boðið upp á dramatískar lokamínútur þar sem að bæði lið skoruðu sitt hvort markið í uppbótartíma. Úrslitin gera það að verkum að Víkingar eru enn með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar þegar að sex umferðir eru eftir af henni. Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, var kokhraustur eftir leikinn gegn Íslandsmeisturunum í kvöld. Segir KR besta liðið á landinu í dag. „Við erum bara betra lið,“ sagði Aron í viðtali við Sindra Sverrisson á Sýn Sport eftir leik kvöldsins. „Þeir eru bara bensínlausir, haltrandi. Ef þeir ná að haltra í áttina að þessum titli þá bara fair play á þá. Þeir eru með besta lið á landinu á hælunum. Við munum gera okkar. Sjáum hverju það skilar okkur fyrir lokaleikinn í Víkinni. Það sjá allir að við erum að koma. Við erum besta liðið á landinu í dag.“ Klippa: Sölvi segir ummæli Arons ekki svaraverð Ummæli Arons voru borin undir Sölva Geir, þjálfara Víkings Reykjavíkur í viðtali eftir leik: „Ég kýs að svara því ekki. Það er ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja síðustu daga. Kýs að svara því ekki. Ekki svaravert.“ Víkingar hafa verið í þéttu leikjaprógrami upp á síðkastið og þurftu að bíta í það súra að falla úr leik í umspili fyrir deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu í aðdraganda þessa leiks í kvöld gegn KR. Fyrir Evrópuleik Víkinga kom Aron með létta pillu á þá. Sagði að um væri að ræða leik fyrir Víkinga til þess að halda klúbbnum á floti. „Þeir eru að fara í risaleik, boginn er ekkert eðlilega mikið spenntur og þetta var krafa hjá þeim fyrir tímabilið, að komast inn í riðlakeppni. Þannig að ég held að þeir séu ekkert að pæla endilega í okkur. Þeir eru með annað og stærra til að pæla í,“ sagði Aron fyrir Evrópuleik Víkinga.
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira