Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Aron Guðmundsson skrifar 1. september 2026 20:21 Markið sem Ármann Ingi skoraði var úr efstu hillu. Hér má sjá boltann stefna fram hjá Halldóri Snæ í marki KR og í netið. Vísir/Hulda Margrét KR bjargaði stigi gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Víkings Reykjavíkur í mögnuðum leik á Meistaravöllum í Bestu deildinni í kvöld. Bæði mörk leiksins komu í uppbótartíma. Lokatölur 1-1.
Stemningin á Meistaravöllum í kvöld var mögnuð. Hvert sæti skipað og staðið öxl við öxl á pöllunum sem búið var að setja upp. Umgjörðin frábær. Stuðningsmenn beggja liða sungu sig hása og fengu að upplifa alvöru spennutrylli í frábærri auglýsingu fyrir Bestu deildina. Leikurinn var sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland og það var Gummi Ben sem að lýsti herlegheitunum. Mörkin létu bíða eftir sér en komu að lokum. Klippa: Mörkin úr stórslag KR og Víkings Komið var fram á aðra mínútu uppbótartíma venjulegs leiktíma þegar dró til tíðinda. Varamaður Víkinga, Ármann Ingi Finnbogason átti þá skot fyrir utan teig sem að söng í fjærhorninu í marki KR og kom Halldór Snær Georgsson, markvörður Vesturbæinga engum vörnum við. Mark úr efstu hillu og virtist Ármann vera að tryggja Víkingum afar dýrmæt þrjú stig og í raun þá stimpla KR endanlega úr titilbaráttu. KR-ingar eru hins vegar ekki þekktir fyrir það að gefast upp. Sér í lagi ekki á heimavelli. Það sannaðist enn og aftur þegar að Arnóri Ingva Traustasyni tókst að jafna metin fyrir Vesturbæinga með skallamarki á lokasekúndu leiksins. Dramatíkin ótrúlega. Lokatölur urðu 1-1. Úrslitin gera það að verkum að enn munar átta stigum á milli liðanna í fyrsta og öðru sæti deildarinnar þegar að sex umferðir eru eftir af Bestu deildinni.
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Íslenski boltinn Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira