Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Stefán Árni Pálsson skrifar 1. september 2026 10:06 Pálmi Rafn hefur staðið í ströngu undanfarna daga í Vesturbænum. vísir/sigurjón KR-ingar taka á móti Víkingum í stórleik tímabilsins í Bestu-deildinni hingað í kvöld. Búið er að gera ráð fyrir mörg þúsund manns á leikinn sem hefst klukkan 17:30. Víkingar eru fyrir leikinn átta stigum fyrir ofan KR. Liðin eiga eftir að mætast í tvígang, það liggur fyrir.
En KR þarf að sækja stigin þrjú til að galopna toppbaráttuna í kvöld. KR-ingar hafa staðið í ströngu við að undirbúa leikinn síðustu daga, enda dugar stúkan ein og sér ekki fyrir alla þá stuðningsmenn sem ætla að gera sér leið vestur í bæ í kvöld. „Við erum búin að plana þennan leik svolítið vel og reiknum með fullum velli. Þetta verður auðvitað hörku leikur og mun segja mikið til um baráttuna í deildinni,“ segir Pálmi Rafn Pálmason framkvæmdastjóri KR, í Sportpakkanum á Sýn í gær. Tímasetningin á leiknum er vissulega ekki ákjósanleg en hann var færður vegna þátttöku Víkinga í Evrópukeppni. „Við hefðum auðvitað kosið að hafa hann á sunnudeginum, eins og upphaflega stóð til, þannig að allir gætu auðveldlega komið. En hann var færður. Upphaflega var hann færður til fimm en við náðum aðeins að seinka honum þannig að fólk hefði tíma til þess að koma úr vinnunni. Ég reikna fastlega með því að það fari allir snemma úr vinnu, fái sér að borða og sjái frábæran fótboltaleik.“ Pálmi segir að leyfi sé fyrir um þrjú þúsund áhorfendum og býst hann við því að sá kvóti verði nýttur. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland og hefst útsending klukkan 17:10. Stúkan verður síðan strax að leik loknum. „Við eigum eftir að mæta og spila okkar rokk and roll fótbolta og höfum engu að tapa. Það er töluvert meiri pressa á hinu liðinu. Við erum með stúkuna, pallana okkar sitt hvoru megin við stúkuna þar sem Víkingar verða öðrum megin og við bjóðum þá bara velkomna. Síðan er búið að koma fyrir pallettum hér fyrir aftan okkur.“
Besta deild karla KR Víkingur Reykjavík Mest lesið Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Gísli kom af fjöllum þegar talið barst að Ljungberg Sport Fjórtán ára drengur gaf sig fram við lögreglu Sport Þjálfari Hákonar grét eftir leik Fótbolti Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira